Fálkinn - 25.04.1966, Qupperneq 6
Falkinn
15. tbl. — 39. áig. — 25. apríl 1966
EFIMI
'SVARTHÖFÐI SEGIR ............................ 6—7
ALLT OG SUMT.......................... 7—8
f LÍFSINS AKKORÐI, viðtal viS Birgi Engilberts,
ungt leikritaskáld .................... 11—12
ÚT f HÖTT ..................................... 11
HUNDUR SKRIFAR Á RITVÉL, athyglisverS grein 12—13
LÍF OG HEILSA, eftir Ófeig J. Ófeigsson lækni 13
VORTÍZKAN, myndir .......................... 14—15
DAUÐINN BATT ENDA Á TILRAUNINA, frásögn
af vísindamanni er dó úr sýkinni er hann rann-
sakaSi ................................ 16—17
f SVIÐSLJÓSINU: ÆSKAN OG NÓTTIN, frásögn
í myndum af næturskemmtun í Reykjavík . . 18—23
ARFUR ÁN ERFINGJA, spennandi framhaldssaga
eftir Eric Ambler ..................... 24—25
RÓSARIDDARINN, frásögn af þýzkum kvenna-
flagara ............................... 26—27
VERÐUR VELGENGNI JOHN Le CARRE DAVID
CORNWELL AÐ FALLI? .................. 28—29
CHARLTON HESTON OG KÖLLUN HANS . . 30—31
ÉG ER SAKLAUS, framhaldssaga eftir Astrid
Estberg, sögulok ...................... 32—34
STJÖRNUSPÁ .................................... 35
BARNASÍÐA ..................................... 44
KROSSGÁTA ..................................... 46
KVENÞJÓÐIN ................................. 48—49
FORSÍÐUMYND: Hljómar í Breiðfirðingabúð, „allar vilja
meyjarnar eiga þá“.
í nœsta blaði verður meSal annars stutt
kynning í móli og myndum á óperunni
Ævintýrum Hoffmanns sem frumsýnd verS-
ur í ÞjóSIeikhúsinu innan skamms. Þá
verSur grein um enskan lœkni sem gerir
uppskurð á konubrjóstum og stœkkar þau
eSa minnkar eftir atvikum. ViS verSum og
meS Sendibréf úr fortíSinni eftir Jón Helga-
son, frásagnir af atburSum, mönnum og
málefnum fyrir 40 árum. Ekki má heldur
gleyma frásögn af konu sem lengi var
meS Iœknisáhald innan í sér, en þar
hafSi þaS gleymzt er hún var skorin upp.
Ný framhaldssaga hefst, BRENNIMERKT,
sœnsk Iœknasaga. Þá má nefna smágrein-
ar um ensku forsœtisráSherrafrúna, um
hvernig konur í París greiSa hár sitt nú,
fyrir utan föstu þœttina: SvarthöfSi segir
og Líf og heilsa, og ýmislegt fleira.
RMjóri: Slgvaldt Hjálmarsson (áb.). BlaOamaSur: Steinunn S.
Briem. Ljðsmyndari og útlitsteiknari: Rúnar Gunnarsson. Franv
kvæmdastjóri: Hrafn Þórisson. ,Aunlísingar: Fjóla Tryggvadóttlr.
Dreifíng: Kristján Arngrímsson. Útgef.: Vikublaðið Fálkinn h.f.
AOsetur: Ritstjórn, afgreiSsia og auglýsingar: Grettisgötu 8,
Reykjavík, Simar 12210 og 16481. Pósthólf 1411. — Verð i lausa-
sölu 30,00 kr. Askrift kostar 90,00 kr. á mánuði, á ári 1080,00 kr.
Setning og prentun kápu: Félagsprentsmiðjan h.f. Prentun megin-
máls: Prentsmiðja Þjóðviljans. Myndamót: Myndamót h.f.
FÁMENN skattalögregla á íslandi þarf að sinna verkum,
sem aðeins hefði verið hægt að leysa með eins konar
herútboði. Og enn er farið með skattsvik hér, eins og feimnis-
xnál, sem aðeins má ræðast í saumaklúbbum eða í kaffi á
Hótel Borg. Þessi leynd hefur gert skattalögreglunni ónauðsyn-
lega erfitt um vik. Fresturinn sem menn fengu til að játa
áralangan stuld sinn frá samfélaginu, bar engan árangur, af
því til þessa dags hafa skattsvikarar haft á tilfinningunni, að
þeim muni verða hlíft. Þögnin og leynileg málsmeðferð gef-
ur þeim þessa trú, og gerir þá gunnreifari í baráttunni fyrir
framhaldi þess ráns og þjófnaðar, sem skattsvikin eru og hafa
ætíð verið. Undanskilinn þessum málum er svo söluskatturinn,
sem er eins konar svikaskóli, þar sem enginn umbúnaður
fylgir af hálfu hins opinbera, eins og innsigluð stimpluri á
peningakössum, sem tíundar saldona. Slíkt mundi koma í
stað drengskaparloforða og annarra hárra orða, sem eru orðiri
að háði. Hið opinbera sjálft stendur því óbeint að sjálfsnámi
manna, þegar um það er að ræða að komast undan því að
greiða opinber gjöld.
Þolendur og þeir sem lifa vel
OPINBERIR starfsmenn, einnig þeir, sem sjá um álagn-
ingu útsvara, verða að bera opinber gjöld fyrir þá sem
kunna að svíkja undan skatti. Það hlýtur að vera skemmtileg
atvinna fyrir mann sem reiknar út logna framtalsskýrslu að
vita að maðurinn sem taldi fram er í raun og sannleiká með
báðar hendur í vösum hans og geta þó ekkert gert, því þeir
sem kunna þetta, hafa sína „reikninga“ í lagi. Fræg er sagan
af business-manninum, sem var skattfrjáls ár eftir ár af því
hann skrifaði á skýrsluna sína: „Aumingi á framfæri móður
sinnar“. Hvort sem hún er sönn eða login, þá sýnir hún þó
hvernig menn hugsa sér ástandið í þessum málum. Öðru
hverju rofar í svínaríið. Það gerist með ýmsu móti. Það
gerist nú orðið í sumum skilnaðarmálum, að konurnar heimta
þrjátíu, fjörutíu eða fimmtíu þúsund króna framlag á mánuði,
og það af nær útsvarslausum aumingjum. Auðvitað vita þess-
ar konur hvað fyrrverandi eiginmenn þeirra þola að greiða,
þótt skattayfirvöldin hafi aldrei vitað það. Svo halda stjórn-
völdin, að nokkrir menn geti kippt þessu í lag án nokkurs
stuðnings almennings og án þess að gera uppskátt um sakar-
aðila, eins og í öðrum sakamálum. Þeir sem hafa losnað við
■ Próf upp í Verzl-
unarskólann
Kæri Fálki!
Mig langar að bera fram
nokkrar spurningar í sambandi
við próf inn 1 Verzlunarskóla
Islands, sem ég er að hugsa
um að þreyta í vor. Það á
kannski ekki við að leggja
þannig fyrirspurnir fyrir Fálk-
ann, en ég vissi bara alls ekki
hvert ég átti að snúa mér, og
ég vona að þið svarið mér
greinilega í blaðinu! — Og þá
koma spurningarnar:
1. Þarf maður að fá einhverja
vissa aðaleinkunn til að ná
inn í skólann, eða er farið eftir
einkunn í hverju fagi sem próf-
að er í?
2. Ef svo er hve hátt verður
maður þá að fá í hverju próf-
fagi — eða aðaleinkunn ef far-
ið er eftir þvi?
3. Er ekki rétt að inntöku-
prófið sé þreytt síðast í maí?
Svo þakka ég fyrir blaðið,
sem mér þykir mjög skemmti-
legt. Sérstaklega fyrir þáttinn
„í sviðsljósinu", hann mættí
gjarnan vera miklu, miklu
lengri. — Framhaldssagan er
flott.
Með fyrirfram þökk,
EG.
P.S. Er alveg hættur rithand-
arlestrarþátturinn i blaðinu?
Ég sakna hans.
Svar:
PrófiS þreyta miklu fleiri en
6
FALKINN