Fálkinn - 25.04.1966, Síða 17
VíSINDAMADUR I VIN SMITAÐIST ER HANN GERÐI VIRUSTILRAUNIR A DYRUM
DAIiÐIIMN BATT ENDA
Á TILRAUINIIINIA
Dr. Moritsch stundaði
vírusrannsóknir og var
kominn á spor banvæns
vírnsafbrigðis.
Hann dó áSur en
hann hafSi lokiS
rannsóknum sínum —
úr vírussiúkdómi.
VIÐARÞILJUÐ skrifstofa í Vínar-
háskólanum stendur auð. Skrif-
stofa yfirmanns heilbrigðismálastofnun-
ar skólans. Gólfklukkan í horninu
stendur. Hún hefur ekki verið dregin
upp í fimm vikur. Jafnlengi hefur um-
ráðandi þessarar skrifstofu legið með-
vitundarlaus í sjúkrahúsi háskólans.
Hann er nú látinn og var banamein
hans heilabólga sem lamaði stóran
hluta œðakerfisins.
Hans Moritsch, doktor og prófessor,
varð fórnarlamb rannsókna þeirra sem
hann vann að, lífsstarfs síns. Hann
smitaðist af Vírussjúkdómi.
Enn einn hefur bætzt í hóp þeirra,
sem látið hafa lífið við að kanna ókunna
hættulega stigu í heimi sjúkdómafræð-
innar.
Dr. Moritsch var 41 árs og fjögurra
barna faðir. Hann hafði þegar á unga
aldri getið sér mikinn orðstír og var
aðeins 36 ára, þegar hann var skipað-
ur yfirmaður heilbrigðismálastofnunar-
innar við háskólann í Vín.
Hann hafði lengi unnið að rannsókn-
um á vírussjúkdómum. sem gátu borizt
frá dýrum til manna. Hann varð skyndi-
lega frægur 1957, er hann sýndi fram
á að ákveðin tegund blóðmaura sem
mikið var um í héruðunum umhverfis
Vín, gat borið með sér vírus, sem olli
heilabólgu i mönnum. Orsakavaldur
sjúkdómsins, sem kallaður var „vor-
veikin“, var fundinn.
Dr. Moritsch öðlaðist mikla frægð
fyrir árangur þessara rannsókna sinna
en hann varð líka að gjalda þeirra, því
að hann fékk heilahimnubólgu og lá
milli heims og helju í fjórar vikur.
Hann hafði verið svo óheppinn að stinga
sig, þegar hann var að störfum á rann-
sóknarstofu sinni. En ekki var hann
fyrr kominn á fætur en hann hélt til-
raunum sínum áfram.
Síðustu mánuðina logaði oft Ijós í
rannsóknarstofunni langt fram á nótt.
Dr. Moritsch lagði nótt með degi við
tilraunir sínar til að leysa gátu herp-
vírusanna. Vísindaleg þekking á þess-
um vírusum er mjög takmörkuð. Vitað
er, að þeir orsaka hinar tiltölulega mein-
lausu hitabólur á vörum og slímhúðum
sem oft fylgja hitasótt og allir þekkja.
En það kemur líka fyrir að herp-
vírusar valda heilabólgu eða heila-
himnubólgu, sem getur dregið fólk til
dauða. Álitið er, að þessi mikli munur
á sjúkdómseinkennum stafi af því, að til
sé afbrigði af vírusnum, sem sé miklu
hættulegra. Þó hefur til þessa ekki
tekizt að greina neinn mun á vírusn-
um jafnvel ekki í rafeindasmásjá.
Dr. Moritsch var — að því er sam-
starfsmenn hans ætla — kominn á spor
aðferðar til greiningar þessa hættulega
vírusafbrigðis. Honum hafði þegar tek-
izt að einangra þennan dularfulla sjúk-
dómsvald í heilahlutum tveggja fórnar-
dýra herp-vírussins. Síðan flutti hann
vírusinn yfir í heila hvítra músa og
fylgdist með viðbrögðum þeirra.
Mánudagsmorgun einn kenndi Mori-
tsch sér lasleika. Hann var heitur og
sveittur og hafði þrautir í höfði. ..Ætli
ég sé bara ekki að fá flensu,“ sagði
hann við Eddu konu sína. En hann var
ekki einu sinni búinn að kveðja börnin
sín fjögur þegar það leið yfir hann.
Starfsbræður hans fluttu hann á há-
skólasjúkrahúsið
Dr. Moritsch lá í dái í meira en
mánuð. Hann fékk hjálparöndun og
næringu sem sprautað var í æð Hæf-
ustu sérfræðingar önnuðust hann Hann
dó án þess að komast aftur til með-
vitundar Það er ekki til neitt lyf gegn
herp-vírusnum. Dr. Moritsch hætti lífi
sínu f leit að bví — og fanaði.
FALKINN