Fálkinn - 25.04.1966, Side 26
ROSARIDDARINN
HANN VANN ÁST ÞEIRRA OG FÓR MEÐ PENINGANA
ORÐIN, sem tilfærð eru hér
að framan, eru leyndardómur-
inn við hinn 51 árs gamla hjú-
skaparsvikara, Helmut Hoinka.
Orðin, sem sérhver kona þráir
að heyra og hræra við hjarta
hennar. Hoinka þekkti þennan
veikleika og þrána, sem lifir í
einmana konuhjarta.
Hann var kurteis, riddaraleg-
ur og tillitssamur. Hann gaf
sér ævinlega tíma, hlustaði ró-
lega á það, sem þær höfðu að
segja og sýndi skilning á sorg-
um þeirra og áhyggjum.
Hann var alltaf óþreytandi,
þegar hann var að vinna ást
konu . .. og peningana hennar
Hann veitti þeim ást, en tók
peningana til endurgjalds.
Hann vakti tilfinningar þeirra
og gerði konuna að ástmey,
félaga, móður, systur ... gerði
hana að nauðsyn. Hann sýndi
þann rétta hæfileika, og sál-
fræðilegu þekkingu, til að
vinna allt. bæði ástina og pen-
ingana
— Hann kom svo vel fyrir
segir Ilse X.
— Faðir minn, sem hafði
verið fangavörður í þrjátíu ár,
gat jafnvel ekki séð, að hann
var svikari. Hann sagði jafn-
vel við mig, að ég ætti að
giftast honum og sjálfur hef-
ur hann gefið honum 20.000
mörk! segir Hilde Y.
— Ég fórnaði honum bæði
öllu mínu lausafé og sparifé,
vegna þess að við ætluðum að
setja á stofn fyrirtæki saman.
Alls voru þetta 73,000 mörk,
segir Veronika Z.
Og þannig fór hann að i
fjöldamörgum tilfellum. Vonir
kvennanna um að hafa loksins
höndlað hamingjuna, enduðu í
skömm og niðurlægingu, og i
dag sitja þær sviknar, von-
lausar og aftur einar síns liðs.
DÆMIGERT TILFELLI
Dyrabjallan hringir . . . Hann
er að koma. Marion gengur til
dyranna og opnar, og henni
er næstum drekkt í heilum haf-
sjó af rauðum rósum. Dökk-
rauðum rósum. Ilmurinn slævir
hana og hún verður ringluð af
litnum.
Blóm.
Og í gegnum blómahafið sér
hún í tvö brún augu. Mild, ást-
úðleg og biðjandi augu, og hún
heyrir djúpa rödd:
— Gott kvöld. Ég leyfði mér
að taka með mér þessi blóm,
og ég vona, að þér falli þau?
Marion getur aðeins kinkað
kolli. Allt hringsnýst fyrir aug-
unum á henni. Rósirnar, augun,
dökkt hárið, karlmannlegt and-
litið og vel klæddur og spengi-
legur líkaminn.
Hún býður gestinum inn fyr-
ir og finnur brennandi augna-
ráð hans hvíla á sér. Hvað er
eiginlega orðið langt síðan karl-
maður hefur fært henni rósir?
Og hvað er langt síðan karl-
maður hefur horft á hana á
þennan hátt. . . ?
— Ég heiti Heinz Markgraf,
segir maðurinn, og hún finnur
þétt handtak hans. Hversu oft
hefur hún ekki þráð þvílíkt
handtak?
Hún nær valdi á sér með
mestu erfiðismunum og gengur
með gesti sínum inn í dagstof-
una. Markgraf litast um, virðir
fyrir sér húsgögnin og brosir
viðurkenningarbrosi.
— Þér búið hlýlega, segir
hann. — Mjög smekklega. Mað-
ur hefur á tilfinningunni, að
þessu er öllu komið fyrir af
konu á hinn umhyggjusamleg-
asta hátt...
Marion roðnar. Hún er ekki
því vön, að henni séu slegnir
gullhamrar. Hún flýtir sér fram
í eldhús og leitar að vasa undir
blómin. Hún lítur í spegilinn
og virðir fyrir sér klæðnað
sinn, brennir sig næstum á
kaffikönnunni, þurrkar rykið
af sparibollunum og nær í
þeytta rjómann og heimabök-
uðu jarðarberjakökuna í ís-
skápinn.
Heimska gæs, hugsar hún.
Þú hagar þér eins og stelpu-
krakki. Þú með þín 37 ár á
bakinu ....
En þegar hún situr á ný
frammi fyrir Markgraf, finnst
henni hún aftur orðin svo
hjálparlaus, en því fylgir samt
engin óþægindatilfinning.
Umsvifalaust fer hann að
segja konunni, sem hafði svar-
að hjúskaparauglýsingu hans,
frá sjálfum sér. Frá kaupsýslu
sinni, sem hann verður að sinna
um allt Þýzkaland á eilífum
ferðalögum.
Svo er komið að henni. Hún
segir honum frá stöðu sinni
sem einkaritara og frá sam-
starfsfólki sínu á skrifstofunni,
frá foreldrum sínum og frá
litla bílnum... Og hún segir
honum, að hún sé góður kokk-
ur og að hún hafi lifað spart,
eigi peninga í bankanum og
sultutau í kjallaranum!
í fyrsta skipti hlustar karl-
maður á það, sem hún hefur
fram að færa.
Myndarlegur maður og vel
siðaður. Maður, sem hefur
sömu áhugamál og hún sjálf
og vill kvænast!
— Ég sé framtíð okkar ljós-
lifandi fyrir mér, segir hann.
— Okkar framtíð.
— Mér stendur stórkostlegt
tækifæri til boða. Ég get nefni-
lega komizt yfir tízkuhús í
Múnchen, og það er alls ekki
svo dýrt. Ég þarf ekki annað
en kaupa einn náunga út úr
fyrirtækinu og það er mitt.
Nei, ekki mitt, heldur okkar!
Marion heldur, að hana sé
að dreyma.
Og hún er sem í leiðslu,
þegar hann stendur á fætur
og sezt við hliðina á henni í
sófann. Varlega, en ákveðið
leggur hann handlegginn utan
um hana og kyssir hana.
— Þú ert falleg, hvíslar
hann í eyrað á henni. — Mig
hefur alltaf langað í konu eins
og þig.
Markgraf sagðist ætla að
heimsækja hana daginn eftir,
en hann hringir bara. Því mið-
ur verður hann að fara i ferða-
lag í verzlunarerindum.
Marion getur vel skilið það,
en hún verður að viðurkenna
fyrir sjálfri sér, að hún þráir
hann.
Þrem dögum síðar kemur
kort:
„Ég hlakka til að sjá þig
aftur!“
Og þegar hann stendur
frammi fyrir henni viku síðar,
er henni orðið Ijóst, að þetta
er maðurinn, sem hún hefur
beðið eftir.
Enn er hann með rósir með
sér, og hann er eftirtektarsam-
ur, kurteis, slær henni gull-
hamra, strýkur hana og kyssir
og gistir hjá henni um nóttina.
Marion veit ekki, hvernig
það hefur gerzt. Hún hefði
aldrei trúað, að hún gæfi sig
svo fljótt manni á vald. En
það er öðruvísi með Heinz.
Öðru hverju leyfir hún hon-
um að taka af sér myndir í
ástandi, sem hún hefði áður
álitið ósiðlegt.
— Ég mun ætíð minnast þin,
eins og þú ert nú. Ástmær mín,
segir hann um leið og hann ýtir
á takkann á myndavélinni.
En næst er Heinz breyttur.
Hún finnur, að hann hefur
þungar áhyggjur af einhverju.
26
FALKINN