Fálkinn - 25.04.1966, Side 30
Charlton Heston
er meðal hœst-
launuðu leikara
í Hollywood^
en hann hugsog
lítið um auð
og frægð,
Hann gengur
samvizkusamlega
að verki
sannfærður um
að kvikmyndir hans
ljái hinum góða
málstað lið
í heiminum.
CHARLTON HESTON
OG KOLLUN HANS
Á VORUM tímum bera kvikmynda-
leikarar mikla ábyrgð, segir Charlton
Heston, og það fer ekki milli mála, að
hann meinar það, sem hann segir, því
hann leggur áherzlu á hvert orð.
Hann lét þessi orð falla i Kairo,
þar sem hann er að leika i kvikmynd-
inni Karthoum. en hún fjallar um her-
ferð Gordons i Súdan og Heston leik-
ur í henni ásamt sir Laurence Olivier.
Þá hafði hann nýlokið við að leika í
myndinni .Hann skóp heiminn" (The
agony anó the ecstasy), sem fjallar um
30
Michelangelo, hinn mikla ítalska mynd-
höggvara. málara og byggingameistara.
Charlton Heston er ekki lengur ung-
ur og lífsglaður maður. Hann er kom-
inn yfir fertugt og gerir ekkert til að
leyna aldri sínum. Hárið er farið að
þynnast, og nefið og hakan bera aldrin-
um vitni. En persónuleiki hans er sterk-
ari en nokkru sinni fyrr. Augun eru
lífleg, og hann skiptir auðveldlega um
svinbrigði. Hann horfir fast á þann,
sem hann á orðastað við. Það er eins og
hann vilji komast að, hvort sá sé heiðar
legur maður eða ekki. Hann leikur sér
að borðhnífnum eins og hann væri
hættulegt vopn, og segist vera ánægður
með að hafa aldrei þurft að leika
skúrka, eða illmenni.
— Ég vil gjarna túlka hið góða. segir
hann hátíðiegri röddu
„Riddarinn á léreftinu“ eins og hann
hefur oft verið nefndur, ef til vill vegna
þess að hann leikur oftast söguleg hlut-
verk, er einhver víðlesnasti kvikmynda-
leikari vorra tíma. Mánuðum saman
kynnir hann sér þær persónur sem
FALKINN