Fálkinn - 25.04.1966, Qupperneq 31
honum hefur verið falið að leika, les
allt, sem hann kemst höndum yfir um
þær, þangað til hann er viss um að
gjörþekkja manninn og tímabil hans í
sögunni.
Stoltir forfeður.
Heston fæddist í Evanston í Illinois-
ríki í Bandaríkjunum og er af skozkum
ættum. Hann á stolta og sterka ætt á
bak við sig. Forfeður hans voru meðal
pílagrímanna á Mayflower, skipinu sem
flutti 100 púritana frá Southamton á
Englandi til Bandaríkjanna árið 1620,
sem lögðd grundvöllinn að fyrstu raun-
verulegu nýlendunni í Nýja Englandi
í Massaehusetts. Þetta var fólk sem
ekki vílaði fyrir sér að brenna hvern
þann á báli, sem grunaður var um
galdrakukl, fólk, sem refsaði þeim með
fangavist, sem dirfðust að hlæja við
guðsþjónustu á sunnudögum og sem
neyddi fjöldann allan af pílagrímum til
að snúa aftur til Bretlands vegna þess
að þeir höfðu valið bæjum sínum
spaugileg nöfn.
Enginn veit, hvernig það æxlaðist
svo til, að Heston varð kvikmynda-
leikari, en hægt er að gera sér það í
hugarlund. Hann hefur sjálfsagt haft
á tilfinningunni, að hann væri eins
konar „trúboði" hefði köllun, sem hann
þyrfti að fylgja og það er þessi ósveigj-
anleiki, sem einkennir hann enn í dag.
Hvað sem öðru líður, hefur hið að-
Iaðandi og karlmannlega útlit hans ekki
riðið baggamuninn og beint honum inn
á leiksviðsbrautina. Hann hafnar þeirri
aufflvsingastarfsemi, sem hver kvik-
mvndaleikari hefur um persónu sína.
Ekki er það heldur metorðagirnd,
sem rekur hann áfram, hann er þegar
orðinn nógu frægur. Þá er það ekki
ágirnd, því að hann fær upp í 42 millj-
ónir króna fyrir hverja mynd, eða ein-
hver hæstu laun, sem Hollywoodstjarna
fær.
— Kannski fá kvikmyndaleikarar of
mikið fyrir sinn snúð, segir hann.
— En ef þeir gera skyldu sína af
heilum hug og auðmjúku hjarta, þá
verður að fyrirgefa þeim forréttindin.
Hættulegast er, þegar hégómleikinn
nær tökum á þeim og þeir láta stjórn-
ast af peningagræðgi. vegna þess að
maður á aðeins að láta stjórnast af sam-
vizku sinni.
Heston lítur út fyrir að hafa alizt
upp á búgarði í sólríku umhverfi og
innan um stórar nautgripahjarðir. En
sólbruninn, sem hefur opnað honum
marga möguleika í kúrekamyndum, er
ekki arfur frá bernskunni. Hann ólzt
ekki upp meðal nautgripa á neinum bú-
garði, heldur innan um stóra hlaða af
bókum. Hann gekk á háskóla, áður en
hann byrjaði að leika í kvikmyndum,
en það var árið 1950, og einnig vann
hann bæði við útvarp, sjónvarp og
leikhús.
í stríðinu gat hann sér góðan orð-
stit Hann gekk i flugherinn sem ó-
breyttur en kom heim með kafteinstign
að striðinu loknu. Að hverju, sem hann
tekur sér fyrir hendur, gengur hann
með oddi og egg.
Hvers vegna aðeins hlutverk
úr fortíðinni?
Eftir að Charlton Heston lék hlut-
verk Mósesar árið 1956 í stórmyndinni
„Boðorðin tíu“, hefur hann næstum
ævinlega haft hlutverk í sögulegum
stórmyndum, eins og t. d. „Ben Hur“,
„E1 Cid“ „The greatest story ever told“
og „Stríðshetjan“. Hvers vegna leikur
hann ekki hlutverk úr nútímanum?
Hvers vegna kastar hann ekki af sér
fornsögulegum kuflum og kyrtlum og
klæðist nútímafatnaði? Hvers vegng
leggur hann svo mikla áherzlu á sögu-
leg hlutverk?
Mörgum kvikmyndaleikaranum myndi
vefjast tunga um tönn, ef hann ætti
að svara þessum spurningum, en ekki
Charlton Heston. Hann hefur einfalt
svar á reiðum höndum. Til þess að geta
leikið eins og hann álítur að eigi að
gera, verður maður að skilja sjálfan
sig.
— Eftir „Boðorðin tíu“, hefur mér
ekki tekizt að komast í takt við nútím-
ann, segir hann.
— Hver voru fyrstu viðbrögð yðar,
Þegar yður var boðið hlutverkið í
Michelangelo?
— Þau, sem verða hjá sérhverjum
leikara, þegar hann fær tilboð um
skemmtilegt hlutverk — gleði.
— Álítið þér, að leikari verði að
draga að útliti til dám af þeirri persónu,
sem honum er falið að túlka?
— Nei, það er hinn innri maður
persónunnar, sem er örðugri viðfangs
en útlitið. Það er ekki hægt að sminka
innrætið.
— Hvernig tókst yður að vera Heston,
en verða Michelangelo?
— Mér tekst aldrei að hætta að vera
ég sjálfur, og ég get aldrei fyllilega orð-
ið Michelangelo, eða Macbeth, eða þá
Móses. En hver maður hefur í sér hrá-
efni, sem gerir honum kleift að túlka
hvaða persónu sem er, allt frá brjálæð-
ingum til spámanna. Hlutverk leikar-
ans er að reyna að vinna úr þessu hrá-
efni.
— Haldið þér, að hugmynd Michel-
angelos um miskunnsaman, góðviljaðan
guð, sé nær sannleikanum en hinar
miðaldalegu hugmyndir um strangan og
hefnigjarnan skapara?
— Hugmynd hvers og eins um sinn
guð, er hin eina rétta.
— Eruð þér sammála Michelangelo
í því að karlmannslíkaminn sé full-
komnari en konunnar?
— Tja ... Er ekki bezt að láta hann
svara því sjálfan í verkum sínum.
Móðurmálið er bezti
túlkunarmátinn.
— Hvernig skýrið þér það aðdráttar-
afl sem Evrópa hefur á Bandaríkja-
menn. m. a. leikstjóra?
— Ég gæti aldrei unnið með áraneri
með evrópskum leikstjóra. Ekki ein-
ungis vegna tungumálaruglingsins,
heldur einnig vegna þess, hve erfitt er
að komast á sömu bylgjulengd og þeir.
Ég held alls ekki, að þessar alþjóðlegu
kvikmyndir skari á nokkurn hátt fram
úr. Þó að Sophia Loren tali vafalaust
ágæta ensku, er hún ekki í essinu sínu
nema í ítölskum myndum. Leikarinn á
að leika á sínu eigin máli og með leik-
stjórum, sem tala sama tungumál. jafn-
vel þó að hlutverkin séu ekki viðkom-
andi föðurlandi þeirra ...
— Því er haldið fram, að bandarísk-
ar kvikmyndir jafnist ekki á við
evrópskar, heldur hann áfram. — En
stórmynd er mynd, sem tekst að ná til
milljóna og aftur milljóna fólks og
hefur gleðiboðskap að flytja.
— Hverjir eru uppáhaldsrithöfundar
yðar?
— Shakespeare og Hemingway.
— Tómstundaiðja yðar er teiknun.
Hafið þér nokkra uppástungu um,
hvernig fólk ætti að nýta frístundir
sínar?
— Að gera eitthvað. Vera ekki aðeins
hlutlausir áhorfendur. Kynslóð Michel-
angelos skapaði endurreisnina, við horf-
um á sjónvarp.
Það sem ég vil kenna
barninu mínu ..
— Ef þér gætuð sent þrjá hluti til
annarrar plánetu til að gefa íbúunum
þar sýnishorn af mannlífinu á jörðinni,
hvað mynduð þér þá velja?
— Kvenmann, styttuna af Davíð
eftir Michelangelo og ritsafn Shake-
speares.
— Hvað mynduð þér gera, ef þér
vissuð að dómsdagur væri á morgun?
— Njóta lífsins í dag.
Framh. á bls. 37.
á\
FALMNN