Fálkinn - 25.04.1966, Page 36
• Hundur skrifar
Framh. af bls. 13.
Frú Borgese hefur gert til-
raunir með önnur dýr. Á Ind-
landi hafði hún fíl, sem gerði
kúnstir með rananum. „Hann
var fyrsta flokks.“ Síðar, í San
Fransisco, fékk hún sér simp-
ansa, sem hét Bob. Hún kenndi
honum í Santa Barbara, þar
sem hún eyðir nokkrum mánuð-
um á ári við miðstöð fyrir at-
huganir á lýðræðisstofnunum.
Hún hefur Arli með sér þangað
og á tímabili lét hún Bob og
hann vinna saman.
Síðar á þessu ári mun frú
Borgese gefa út bók á forlagi
MacGibbon & Kee undir nafn-
inu „Hvíti snákurinn“. Hún
fjallar um aðferðir til að ná
sambandi við dýr og auðvitað
um Arli og vélritun hans að
miklum hluta. Nafnið á bókinni
er úr einu af Grimms ævintýr-
unum, þar sem konungur nokk-
ur etur bita af hvítum snáki,
til að geta skilið tungumál dýr-
anna.
• Svi&sljósið
Framh. af bls. 20.
fjörið, þegar DÁTAR voru þar.
Ég fer líka stundum í Búðina,
en húsakynnin í Lídó eru ólíkt
skemmtilegri. En hér eftir verð-
ur maður að láta sér Búðina
nægja, þ. e. a. s. ef maður nær
þá í miða nógu fljótt.“
Já, ungu stúlkurnar eru ó-
myrkar í máli og er það skiljan-
legt.
Ég hef frétt, að einn dans-
staður hér í borg ætli að reyna
að feta í fótspor Lídó með því
að hafa opið tvö kvöld í viku
fyrir æskufólkið og hafa til
staðar vinsælar „beat“-hljóm-
sveitir. Hvort þetta tekst, getur
oltið á ýmsu.
Kannski verður þetta til þess
að forráðamenn æskulýðsmála
rumski af Þyrnirósatsvefninum
og fari að hugsa rökrétt. Það
skyldi þó aldrei verða?
• John le Carre
Framh. af bls. 29.
það og reyna að halda dvöl-
inni í sviðsljósinu við algert
lágmark. Stephen, sem er
fjögurra ára, segist ekki ætla
að aka slökkvibíl, þegar hann
verður stór. Hann ætlar að
skrifa bækur. Timothy, tveggja
ára, hefur ekki neinar ákveðn-
ar fyrirætlanir.
hans miklu : strangari, eins og
eiginkonum er títt.
Cornwell hjónin búa nú í
Vín í stórri leiguíbúð í hinu
fagra Hohe Warte hverfi. Fyrri
leigjandi íbúðarinnar var Her-
bert von Karajan hljómsveitar-
stjóri. Þar er stór garður, tjörn
og dásamlegt útsýni yfir Vínar-
borg, sem David segir að bæti
upp þunglamaleg barokk hús-
gögnin og dökka drungalega
litina. Þau kjósa bæði „meiri
dirfsku" í innanhúss skreyt-
ingu.
Cornwell vinnur í skrifstofu
sinni á efri hæðinni við óbrotið
rósaviðarskrifborð, sem er gjöf
frá Ann Þau lifa kyrrlátu lífi,
hitta fátt fólk, fara öðru hvoru
í bíó. í vor munu þau flytjast
aftur til Englands.
„Við ætlum að kaupa hús
uppi í sveit,“ segir Ann, „heim-
ili fyrir börnin, þar sem þau
geta ærslazt án þess að þurfa
að óttast húsráðandann." Ann
Cornwell hefur heilbrigðar
skoðanir á peningamálum, og
stafar það ef til vill af hálf-
skozku ætterni hennar. „Mér
finnst bjánalegt að sóa pening-
um til ónýtis. Ég hugsa oft til
þess, hve ánægð við vorum með
lítið. Það er svo auðvelt að
missa gamla vini, sem halda, að
þeir „hafi ekki efni á að þekkja
mann lengur.“ Vandinn er að
láta ekki peningana glepja sér
sýn en leggja meiri rækt við
gott fólk.“
Hún hefur komizt að raun
um, að það er ekkert sældar-
líf að vera eiginkona rithöf-
undar. („Að búa með rithöf-
undi er eins og að búa með
konu, sem er síþunguð,“ segir
David) Það er jafnvel enn erf-
iðara, þegar rithöfundurinn
verður frægur. Engri konu fell-
ur vel að vera gerð hornreka
meðan manni hennar er hamp-
að.
„Maður reynir að taka því
með kímni, en hún þynnist út
eftir því sem líður á kvöldið,"
segir Ann. Hún er ekki upp-
næm fyrir mönnum, sem stíga
í vænginn við hana, vegna þess
að þeir halda, að hún hafi ver-
ið skilin eftir úti í kuldanum.
Hún er í eðli sínu raunsæis-
manneskja og gérir greinar-
mun á gömlum vinum og
„fólki, sem myndi ekki hafa
litið við okkur áður.“ Hún hef-
ur skömm á fólki, sem þykist
elga hvert bein í manni henn-
ar vegna þess að það hefur les-
ið bækur hans, og henni er illa
við að vera kölluð „frú le
Carré.“ Margir lesendur hafa
velt vöngum yfir þessu dul-
nefnl. Cornwell, sem oft er við-
,,Ég hef farið í Lídó einu
sinni til tvisvar í viku,“ sagði
Sigrún Harðardóttir, 16 ára,
„en það var tvímælalaust mesta
Cornwell þykir gaman að
hafa drengina hjá sér, nema
þegar hann er að skrifa. Þeir
fara í dularfulla njósnaleiki
saman, og hann sinnir lítt um
að aga þá. í því efni er konan
MYNDAMOT HF.
MORGUNBLAÐSHÚSINU SfMI 17152
EKCO
SJÓNVARPSTÆKIÐ
SEM VEKUR ATHYGLI.
MJÖG
HAGSTÆÐIR
AFBORGUNARSKILMÁLAR
OOFÍ&Ka
Laugavegi 178, sími 38000.
RAF-VAL
Lækjarg. 6 A, sími 11360,
utan og á það til að gleyma
stefnumótum eða fara upp í
rangan strætisvagn, rankaði
einu sinni við sér á gráviðris-
degi í East End borgarhlutan-
um. Þar kom hann auga á skilti
á lítilli skóvinnustofu, sem á
stóð Le Carré. Þannig atvikað-
ist það.
David Cornwell hefur tekið
sér fyrir hendur að gera athug-
anir á hinum ýmsu fyrirbær?
um velgengninnar. Hann er
agndofa yfir þeim peningafúlg-
um, sem hann þarf að borga
fólki fyrir að hjálpa honum að
spara peninga. Því fleira fólk,
sem maður ræður til að taka
ákvarðanir fyrir sig, þeim mun
fleiri ákvarðanir þarf maður
að taka sjálfur. Hann er konu
sinni sammála í því, að fjar-
stæða sé að fleygja peningum
í ekki neitt. Ekkert athugavert
við að ferðast á öðru farrými.
Fyrir skömmu þurfti Ann að
fá nýjan kjól fyrir óperudans-
leik í Vínarborg; í stað þess að
greiða frægu tízkuhúsi 1000
dali fyrir kjól, keypti hún hann
í lítilli kjólaverzlun í London
á 60 pund.
Þegar Cornwell fékk sig
lausan úr utanríkisþjónustunni
í fyrravor, fluttu þau inn í stórt
hús á Krít, þar sem Ann mat-
reiddi stórar máltíðir handa
fjölda manns. Síðar fluttu þau
til eyjarinnar Spetsai en fannst
þau einangruð þar. David kann
vel við örvandi félagsskap á
kvöldin.
„Það bezta, sem fylgir vel-
gengninni," segir Cornwell, „er
að athyglisvert fólk fær áhuga
á að tala við mann. Vandamálið
er að aðlaga hina nýju lifnaðar-
hætti hinum gömlu. Flestir
okkar vinir eru frá því ég var
kennari og sendiráðsritari, og
við viljum halda þeim. Það er
hvorki tilgerð né meinlætasemi
sem því veldur, heldur aðeins
persónulegur smekkur og heil-
brigð skynsemi. Ég hef alltaf
skrifað við þvingandi aðstæður
og með báða fætur á jörðinni.
Ég myndi glata sköpunargáf-
unni í lúxusmettuðu andrúms-
loftinu á Waldorf Astoria.
Skapandi hæfileiki má aldrei
verða þræll peninganna. En
það er svo allt of auðvelt. Ann
sagði við mig eitt kvöldið, að
peningar væru ágætir til síns
brúks, — en einhvern veginn
myndi hún ekkert taka það
mjög nærri sér þótt þeir væru
farnir... ég held ég skilji,
hvað hún átti við.“
Verður velgengni Le Carré
David Cornwell að falli? Ég
held ekki.
36 FÁLKINN