Fálkinn - 25.04.1966, Qupperneq 37
• Charlton Heston
Framh. af bls. 31.
— Hvaða hugmyndir gerið
þér yður um helvíti?
— Það er staður, þar sem
ekki er til neins að vinna,
einmitt eins og sumt fólk
hugsar sér himnaríki! Staður,
þar sem manni heppnast allt,
sem maður tekur sér fyrir
hendur og þar sem allir gera
nákvæmlega það, sem mað-
ur ætlast til af þeim. Minnizt
þess, að manneskjan er eina
lifandi veran, sem heimtar
meira en hún getur fengið. Ef
fnanni mistækist aldrei, nyti
maður aldrei þeirrar gleði að
þurfa að berjast við erfiðleik-
ana.
Síðan árið 1944 hefur Heston
verið kvæntur Lydiu Clarke og
á með henni tvö börn, dreng
og telpu, sem heitir Frazer og
Holly Ann.
— Viljið þér að börn yðar
velji sér sín framtíðarverkefni,
eða munuð þér reyna að leið-
beina þeim?
— Ég verð að kenna börn-
um mínum, hvað það er í ver-
öldinni, sem er í rauninni eftir-
sóknarvert, en þau verða sjálf
að læra að bera sig eftir því.
Charlton Heston er enginn
ofstækismaður. Hann er frið-
samur, heiðarlegur og réttsýnn.
Jafnvel þótt hann hefði ástæðu
til, myndi hann aldrei ofsækja
neinn, en hann er ekki í vafa
úm, að svo er margt sinnið sem
skinnið.
• Ég er saklaus
Framh. af bls. 34.
Louise hitnaði í hamsi. Hvaða
Undarlegu spurningar voru
þetta? Hún yrði að stilla sig,
Varðveita ytri rósemi og svara
eins eðiilega og henni væri
unnt.
- Ég iagði ekki á minnið,
með hvaða seðlum ég borgaði,
sagði hún.
— Getur ekki átt sér stað, að
þér hafið greitt i skóverzluninni
með tveim hundrað króna seðl-
úm og fengið tíu krónur og
eitthvað af smámynt til baka,
greitt siðan í kjólaverzluninni
með öðrum tveim hundrað króna
seðlum einum fimmtiu króna
seðii og tveim tíu króna seðl-
um. Eða er þetta ekki rétt?
— Ju-ú, það getur verið. En
hvaða máli skiptir það?
— Það skiptir mjög miklu
máli. Hundrað króna seðlarnir
og fimmtíu króna seðlarnir voru
nefnilega einmitt þeir, sem stoiið
var úr launaumslögum verka-
mannanna hérna á Malingsfors.
Getið þér gefið skýringu á þvi,
hvernig þessir seðlar gátu verið
í yðar eigu?
Louise fölnaði, svo að jafn-
vel varirnar urðu hvítar. —
Nei... það er ósatt... það geta
ekki hafa verið þeir peningar,
hvernig getur yður dottið slíkt
í hug?
— Það er meira en hugdetta,
það er sannað mái.
Fingur Ulfs hvítnuðu um pípu-
hausinn. Hann starði utangátta
á Louise og Karlson lögreglu-
fulltrúa. Louise... þetta hlaut
að vera einhver misskiiningur!
Augu hennar voru róleg og
nærri barnslega spyrjandi... og
heimskuleg, nákvæmlega eins og
þau áttu að sér. En hún var
fölari...
— Nú jæja, hvernig hefur
yður tekizt að sanna það?
—- Stigman veiðistjóri tekur út
úr bankanum töluvert háar upp-
hæðir í hverjum mánuði, þegar
hann þarf að greiða vinnulaun,
sagði Karlson lögreglufulltrúi.
Við slrk tækifæri afgreiða bank-
arnir oft peninga í heilum búnt-
um, og eru þá seðlarnir í þeim
í réttri númeraröð. Þegar nú
hluti af peningunum hvarf, gerði
bókhaldarinn, herra Jansson, sér
það ómak að skrifa niður númer-
in á öllum þeim hundrað króna
og fimmtíu króna seðlum, sem
verkamennirnir fengu, og siðan
gerði hann okkur viðvart um,
hvaða númer vantaði í seðlaröð-
ina. Við gáfum bönkunum síðan
fyrirmæli um að tilkynna strax,
ef seðlar með þessum númerum
kæmu inn. Og þetta gerðist á
þriðjudaginn, þegar stór skó-
verziun og kjólaverzlun lögðu
inn dagssjóði sína. Bílstjórinn
yðar staðfesti, að þér hefðuð
heimsótt einmitt þessar verzl-
anir. Svo þér höfðuð ekki heppn-
ina með yður, frú Reiner. Því
miður verð ég að handtaka yður
sem alvarlega grunaða um þjófn-
að.
— Hvernig hefði ég átt að ná
peningunum úr peningaskápn-
um? Ungfrú Bergström hafði
lykilinn...
— Þér hafið líklega fundið
hinn, sem lá í leynihólfinu í her-
bergi herra Stigmans?
— Nei, það kemur ekki til
mála. Ég... ég hlýt að hafa
fengið þessa peninga hjá ung-
frú Bergström. Hún vildi fá
skipt í smáseðla og lét mig hafa
nokkra hundrað króna seðla.
— Jæja, hvenær gerði hún
það?
— Daginn sem .., sem veiði-
stjórinn þurfti að hverfa frá
vegna skógareldanna, sagði Lou-
ise. Þau voru að ljúka við launa-
útreikningana ...
Það marraði í stiganum. Jannis
Anna birtist á stigapallinum
sýningarbíll á staðnum
Komið
ið - Reynið
ALLTAF FJOLGAR
VOLKSWAGEN
S'iml
21240
HEKLA hf
■ Laugavegi
170-17 2
FALKINN
37