Fálkinn - 25.04.1966, Qupperneq 40
HÉILDSÖLUBIRGÐIR
KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ H.F.
SÍMI 24120
ADLER vél er allra bezt
allir nota
ADLER,
ADLER hér og
ADLER þar,
ADLER alls staðar.
SKREFSTOFUÁHÖLD
Skúlagötu 63 • Sími 1 7966
• Arfur án erfmgja
Framh. af bls. 25.
unargögnum undir slíkum kring-
umstæðum. Til dæmis þóttist
maður einn frá Chicago eiga til-
kall til arfsins út frá minningu
um, að faðir hans hefði kallað
Ameliu frænku sína „bölvaða
nízkunorn". Annar byggði kröf-
ur sínar á gömlu bréfi frá dönsk-
um ættingja, sem hét Schneider.
Og til voru þeir, sem skirrðust
við að láta sönnunargögn sin
fylgja af ótta við, að þeim yrði
stolið og notuð öðrum til upp-
dráttar. Síðast en ekki sízt voru
það málflutningsmennirnir ...
Aðeins 34 af fyrstu 700 erfða-
kröfunum, sem George endur-
skoðaði, höfðu verið í höndum
lögfræðinga, en það tók hann
fulla tvo daga að pæla í gegn-
um þau rit!
Aðra vikuna tókst George að
komast upp í 1900 þrátt fyrir
illkynjað kvef. í lok fjórðu vik-
unnar hafði hann lokið við helm-
ing skjalasafnsins. En hann var
líka að verða töluvert niðurdreg-
inn. Starfið var í sjálfu sér leið-
inlegt, en hann varð auk þess
að sætta sig við að vera hafður
að skotspæni fyrir striðnislega
vorkunn samverkamanna sinna.
Á mánudagsmorgun, fimmtu
vikuna, horfði hann með við-
bjóði á skjalahlaðann, sem enn
beið rannsóknar hans.
„Eigum við að ljúka við O-in,
herra Carey?“ sagði húsvörður-
inn, sem hafði umsjón með
skjalasafninu í kjallaranum,
þurrkaði rykið af bögglunum og
bar þá upp til skrifstofu Georges.
„Nei — það er bézt að við
byrjum á P-unum.“
„Ég gæti fljótlega náð út því,
sem eftir er af O-unum, ef þér
óskið þess, herra Carey."
„Gott og vel, Charlie. Ef þér
getið náð þeim án þess að allt
hrynji niður.“ Atlagan, sem hann
hafði þegar gert að loftháum
hlöðunum, hafði smám saman
grafið undan stöðugleikanum.
„Ég sé um það, herra Carey!"
Charlfe náði taki á stórum
böggli neðst í hlaðanum og
kippti í. Þessu fylgdi brakhljóð
og síðan drunur, þegar skriða af
böggium hvolfdist yfir hann í
rykskýi. Hóstandi og formæl-
andi birtist hann aftur á yfir-
borðinu og tók um höfuð sér.
Blóðið fór að renna úr löngu
fleiðri ofan við augun.
„1 guðs bænum, Charlie, hvern-
ig vildi þetta til?“ Húsvörður-
inn sparkaði í eitthvað hart
undir bögglahrúgunni.
„Þessi ótuktar hlutur skall í
höfuðið á mér, herra Carey,“
sagði hann. „Honum hlýtur að
hafa verið stungið inn í hlaðann
einhvers staðar."
„Getið þér séð um yður sjálf-
ur?“
„Já, mikil ósköp. Þetta er að-
eins skeina, herra Carey.“
„Þér ættuð samt að láta binda
um hana.“
Þegar George hafði fengið einn
lyftusveininn til þess að hjálpa
húsverðinum og rykið var lagzt
aftur inni í skjalasafninu, fór
hann þangað og virti fyrir sér
hrúguna. Bæði O-in og P-in voru
horfin undir hrærigraut af S-um
og W-um. Hann ýtti nokkrum
bögglum til hliðar og kom auga
á það, sem valdið hafði meiðsli
húsvarðarins. Það var stórt,
svartlakkað skjalaskrin, af þeirri
gerð, sem áður fyrr stóðu í
löngum röðum í skrifstofum
fjölskyldulögfræðinga. Á lokinu
stóð með hvítum stöfum „Schnei-
der — Trúnaðarmál."
George dró kassann út úr
bögglahlaðanum og reyndi að
opna hann. Hann var læstur og
lykill var hvergi sjáanlegur.
Hann hikaði stundarkorn. Verk-
efni hans í þessu máli var að-
eins að endurskoða hinar inn-
sendu erfðakröfur, og það var
heimskulegt að eyða tímanum í
að svaia forvitni sinni varðandi
innihald gamals skjalakassa. Á
hinn bóginn myndi verða um
klukkustundarbið þangað til
skjalasafnið yrði komið í samt
lag aftur. Hann gekk inn í verk-
stæði húsvarðarins, fann þar
hamar og meitil og sneri aftur
til kassans. Hann eyðilagði lás-
inn með fáeirium höggum og
gat undið lokið upp.
Við fyrstu sýn virtist fátt
annað vera í kassanum en per-
sónulegir smáhlutir úr skrifstofu
Moretons. Þar var minnisbók i
skinnbandi með upphafsstöfum
hans í gyllingu, skriffæri, út-
skorinn vindlakassi úr tekki og
bréfabakki. Hann lyfti upp bakk-
anum. Undir honum sá harin
þykka bókhaldsbók með utaná-
skriftinni „Þýzkalands-rannsókn
varðandi Schneider eftir Robert
L. Moreton 1939“. Hann opnaði
hana og leit yfir fyrstu síðurn-
ar — þetta var nánast dagbók.
Hann lagði hana til hliðar til
frekari athúgunar síðar. Undir
henni lá manila-umslag, sem
hafði að geyma fjölda ljós-
mynda mestmegnis af þýzkum
skjölum af einhverju tagi. Auk
þess var ekki annað í kassanum
en innsiglaður böggull og inn-
siglað umslag. Á böggulinn var
skrifað „Bréfaskriftir milli Hans
Schneider og eiginkonu hans
ásamt fleiri skjölum, fundnum
af Hilton G. Greener og Robert
L. Moreton í eigum hinnar látnu
Ameliu Schneider Johnson, sept.
1938“. Á umslaginu stóð „Ljós-
mynd fengin í hendur R. L. M.
af séra Weichs i Bad Schwenn-
heim“.
George lagði einkaeigur More-
tons aftur í kassann, en tók af-
ganginn með sér upp í skrif-
stofuna. Þar opnaði hann fyrst
innsiglaða böggulinn.
Bréfin i bögglinum voru ná-
kvæmlega númeruð og merkt af
herra Greener og herra More-