Fálkinn - 25.04.1966, Page 43
ekki? Nú verðið þér að lofa
mér þvi, að þreyta hann ekki
um of. Eins og er má hann sitja
uppi fyrir hádegi, en við verð-
um að fara varlega. Kransæða-
stifla." Hún gekk á undan gegn-
um húsið út á gleryfirbyggða
verönd að baki þess.
Herra Moreton lá studdur af
svæflum, vafinn i teppi og ias
í bók, sem stóð í lesgrind. Hann
heilsaði George hjartanlega, ýtti
lesgrindinni frá og settist upp
með erfiðismunum. Hann talaði
með mjúkum, þægilegum mál-
rómi, og af honum lagði daufan
lavendel-iim.
1 nokkrar minútur spurði hann
George um kunningja sína hjá
Lavaters og annars staðar í
Philadelphia. Að lokum hallaði
hann sér aftur og sagði bros-
andi:
„Kathy, nú ætlum við herra
Carey að ræða ofurlítið saman
um viðskiptamál!"
„Þá það, en reyndu nú ekki
of mikið á þig!“ Hann svaraði
ekki, en þegar hún var farin,
sagði hann:
„Viljið þér eitthvað að drekka,
ungi maður?“
„Nei, þakka yður kærlega fyr-
Framh. á bls. 47.
Kæri Astró!
Mig langar mjög mikið til að vita eitthvað um framtíðina
og þá einna helzt um ástamálin og hvort ég verð hamingju-
söm í hjónabandi. Hvernig fjármálin verða. Einnig langar
mig til að vita hvort ég og strákur sem er fæddur 1946 eig-
um saman og einnig langar mig til að vita hvernig þú heldur
að þessi strákur sé. Við erum búin að vera saman lengi og ég
er mjög hrifin af honum og ég held að það sé eins með hann.
Það versta er að hann drekkur dálítið mikið og er þá vondur.
Heldur þú að það muni lagast.
Með fyrirfram þökk.
Dúa.
Svar til Dúu:
Þessi piltur er mjög veikur
fyrir víni. Hann er með mán-
ann í fiskamerkinu, og um þá
afstöðu er það að segja að þetta
fólk er mjög næmt, hlédrægt
og óstöðugt tilfinningalega.
Þessi afstaða er mjög hættu-
leg vegna þess að löngun í vín
og önnur eiturlyf sækir mjög
að því. Leiðindi sækja oft að
því og þess vegna sækist það
oft eftir að stytta sér stundir
á miður æskilegan hátt. Samt
sem áður er fólk með þessa af-
stöðu oft miklum hæfileikum
búið. Það er skapandi hug-
rænt og hefur mikla listræna
tjáningarhæfileika. Það elskar
og skilur fegurð og ef áhuga
þess er beint inn á þessar
brautir nær það oft miklum
árangri. Þannig held ég að
þetta sé með þennan pilt þinn.
Hann er ýmsum hæfileikum
búinn en er kannski of hlé-
drægur til að láta þá uppi. Þú
ert mjög jákvæð og sterk
stúlka þó þú sért ung ennþá og
átt eftir að þroskast mikið. Á
þennan pilt getur þú haft mikil
og góð áhrif þó ég sé ekki viss
um að það eigi fyrir ykkur að
liggja að giftast hvort öðru, að
minnsta kosti ekki á næstu ár-
um. Þetta ár er að mörgu leyti
erfitt fyrir vin þinn en árið
1967 mun verða breyting á til
batnaðar og á þessu tímabili
mun vakna hjá honum löngun
til listrænnar tjáningar. Þú
skalt gera þitt til að svo verði.
Því þótt þið giftist ekki þá
mun ávallt verða mjög hlýtt á
milli ykkar. Þú munt að öllum
líkindum giftast fremur seint
en hjónabandið mun verða far-
sælt. Ekki verða börnin mörg
varla meira en eitt til tvö.
Fyrri hluta lífsins muntu
þurfa að fara sparlega með
peninga og ég held að þú getir
það og munir gera. Aftur á
móti virðist svo sem þú hafir
nóg af öllu og vel það og þurf-
ir ekki að kvíða peningaleysi
í ellinni. Þú munt ferðast mikið
um ævina og þá einna helzt
vegna starfs þíns. Þú munt
hafa með höndum mikilvægt
starf og það mun verða tekið
mikið tillit til þess sem þú hef-
ur að segja. Þú ættir að halda
námi áfram og yfirleitt að
reyna að læra sem mest. það
mun verða þér nauðsynlegt upp
á seinni tímann.
DALA-GARN
Hekliö og prjóniö úr Dala-garm, gæðin alltaf þau sömu.
Ný mynstur og uppskriftir - Nýir litir.
Dala-garniö fæst um allt land.
DALA-UMIIO«I«
SVEFASÓFASETT
Ný gerð af settuni. Sófanum niá breyta í svefn-
sófa með einu handtaki. Þægileg húsgögn í ein-
staklingsherbergi og litlar ibúðir.
Póstsenduni.
SEDRIIS s.L
lirM.ALWVLIt/JIA
Hverfisgötu 50 — Sími 18830.
FALKINN
43