Fálkinn - 25.04.1966, Síða 47
Hrein
frísk
heilbrigð
húð
taZ skíptir »kki móli, hvernig húð þír hafiíí
ÞaS er engin húð eins.
En Nivea hæfir sérhverri húS. hví Nivea-creme
eSa hin nýia Nivea-milk gefur húðinni allt sem hún
þarfnast: Fitu, raka og hið húðskylda Euzerit.
Og þess vegna getur húð yðar
notið þeirra efna úr Nivea sem hún þarfnast helzt.
Hún getur sjólf ókveðið það magn, sem hún
þarfnast af fitu og raka.
Þetta er allur leyndardómurinn við ferska, heilbrigða og
Nivea-snyria húð.
• Arfur án erfmgja
Framh. af bls. 43.
ir, herra... Ég býst við, að
herra Budd hafi gert grein fyrir
erindi minu?“
„Jú, mikil ósköp. Sehneider
Johnson málið. Ég myndi hafa
getið mér þess til hvort eð var.“
Hann gaut augunum á George.
„Þér hafið þá fundið það?“
„Fundið hvað, herra?“
„Dagbókina og myndirnar og
það allt. Þér funduð það?“
„Það er úti í bifreiðinni, herra,
ásamt nokkrum persónulegum
munum yðar, sem voru í kass-
anum.“ Moreton kinkaði kolli.
„Ég veit um þá. Ég lét þá þar
sjálfur — ofan á hitt. Ég setl-
aðist til, að óviðkomandi myndu
þá hugsa sem svo, að þetta væri
aðeins drasl frá mér, allt
saman."
„Ég er vist ekki alveg með á
nótunum, herra ...
„Auðvitað ekki! Nú skal ég
skýra það fyrir yður. Sem fjár-
haldsmanni bar mér skylda til
að skila öllu af mér, hverju
tangri og tetri. En þetta trúnað-
armál hafði ég enga löngun til
að láta af hendi. Ég hefði helzt
viljað eyðileggja það, en Greener
& Cleek voru því mótfallnir. Þeir
sögðu, að ef svo færi, að það
kæmi upp seinna og John J. réði
fram úr því, þá yrði ég illa sett-
ur."
„Já, einmitt...“
„Þess vegna gat ég aðeins
reynt að hylja það — og það
hefur ekki heppnazt fullkom-
lega.“ Moreton starði íhugandi
út í garðinn andartak, svo sneri
hann sér aftur rösklega að
George, eins og hann vildi
hrista af sér óþægilegar minn-
ingar. „Og nú eru yfirvöldin
líklega að teygja sig eftir pen-
ingunum, gæti ég imyndað
mér?“
\,Já. Þau vilja fá að vita, hvort
herra Sistrom muni leggjast
gegn því.“
„Og Harry Budd, sem ekki
vill ata sinar fallegu hendur,
getur varla beðið þangað til
hann hefur losnað við málið úr
sínu húsi?, ha? Jæja, þér þurf-
ið ekki að svara þessu. Við
skulum snúa okkur að efninu.“
„Á ég að sækja skjölin út í
bílinn, herra?"
„Þess þarf ekki. Ég þekki þau
út í æsar. Lásuð þér litlu bók-
ina, sem Hans Schneider skrif-
aði fyrir börnin sín?“
„Já.“
„Hvað fannst yður um hana?“
„Þegar ég var búinn að lesa
hana,“ svaraði George brosandi,
„hét ég þvi með sjálfum mér
að segja aldrei mínum börnum
bardagasögur af mér." Gamli
maðurinn hló við.
„Krökkunum verður ekki
skotaskuld úr því að veiða þær
Framh. á bls. 50.
47
FALKINN