Fálkinn - 12.12.1962, Side 74
bct/uá/Z <í?/6é/ Ætó&í'
tzuáu-SííÆfca/euUd,
>• y'
Jólabækur LEIFTURS
Fálkanum hafa borizt nokkrar af út-
gáfubókum Leifturs fyrir þessi jól og
kennir þar margra grasa. Af sjálfsævi-
sögum eða slíkum bókum eru þessar:
Frú Sigríður Björnsdóttir frá Miklabæ
skrifar bók sem hún nefnir í Ijósi
minninganna. Segir hún þar frá æsku-
árum sínum, utanferðum og auk þess
eru þættir af nokkrum mönnum sem
höfundur kynntist. Sr. Sigurður Ólafs-
son skrifar sjálfsævisögu sem hann
nefnir Sigur um síðir. Segir höf. frá
uppvaxtarárum sínum hér heima, för
vestur um haf og hvernig hann brauzt
þar til mennta, og varð prestur, og
kynnum sínum af Vestur-íslendingum.
Þá er bók eftir Martinus sem heitir
Leiðsögn til lífshamingju. Ingimar
Óskarsson skrifar skeldýrafánu íslands
og er hún með meyndum af skeldýrum
þeim sem frá er skýrt í bókinni.
Af skáldsögum er þarna bók Guðrún-
ar frá Lundi, Stýfðar fjaðrir II, sem
er framhald af fyrri bók höfundar er
kom út fyrir síðustu jól. Ást í myrkri
heitir skáldsaga eftir unga konu, Ingi-
björgu Jónsdóttur. Þá er bók eftir Val-
borgu Bentsdóttur sem heitir Til þín.
Eru það ljóð og sögur. Bókin er mynd-
skreytt af Valgerði Briem.
Fyrir yngri lesendurna er ævintýri
eftir Hugrúnu sem heitir Sagan af
Snæfríði prinsessu og Gylfa gæsasmala.
Þá eru ennfremur bækur í þeim ung-
linga- og barnabóka flokkum sem
Leiftur hefur gefið út á undanförnum
árum svo sem: Matta Maja, Hanna,
Stína flugfreyja, Bob Moran, Konni
sjómaður, Kim og félagar og bók um
Lísu-Dísu.
70 FÁLKINN
Þrívíddakíkirinn ,',V1EW-MASTER“
(Steroscope) hefur farið sigurför um
víða veröld og náð miklum vinsæld-
um hjá börnum jafnt sem fullorðn-
um.
Myndirnar í ,,View-Master“ eru í
eðlilegum litum og sjást í „þremur
víddum", þ. e. hlutirnir í myndun-
um skiljast hver frá öðrum og í þeim
verða fjarlægðir auðveldlega greind-
ar.
Vér getum sent til þeirra, er þess
óska, skrá yfir þær myndir, sem til
eru hverju sinni, en jafnan er fyrir-
liggjandi hjá oss fjölbreytt úrval
mynda frá flestum löndum heims,
auk mikils úrvals ævintýramynda
fyrir börn.
,,View-Master“-kíkir kr. 149.00. 1
myndasería (3 hjól) 31 mynd kr.
75.00.
Sendum gegn póstkröfu.
Hans Petersen h.f.
Bankastræti 4 — Sími 2-03-1*.