Fréttablaðið - 05.11.2009, Side 46

Fréttablaðið - 05.11.2009, Side 46
 5. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR12 ● neyðarkall Íslenskir björgunarsveitarmenn eru eitthvert það merkilegasta fyrirbrigði sem ég hef kynnst. Þetta eru menn (af báðum kynj- um, svo því sé haldið til haga) sem, hvort sem er af skyldu- rækni eða ástríðu, æða upp um fjöll og firnindi þegar vindhrað- inn er alltof margir metrar á sekúndu. Þetta eru menn sem rjúka út í veður og vind þegar öll heilbrigði skynsemi segir manni að sitja inni í sófa með bjór í hönd og horfa á fótbolta. Þetta er með öðrum orðum hálfbilað fólk upp til hópa og er þá kannski full vægt til orða tekið. Því er stundum haldið fram af hreinni illkvittni að þegar einhver týnist þá sé það yfirleitt björgunarsveitarmaður. Því er líka haldið fram af sömu hvötum að björgunarsveitarmenn séu upp til hópa ævintýramenn sem noti björgunarsveitarstarfið til að fá útrás fyrir sínar hvatir. Vissulega er ekki ólíklegt að einhverjir gangi í björgunar- sveitir vegna áhuga á fjallapríli og 44 tommu dekkjum. Það er líka bara allt í góðu lagi með það. Ég er nefnilega ekki viss um að það væri heppilegt að björgunarsveitir landsins væru einvörðungu mannaðar fólki sem hefði bara ástríðu fyrir lestri góðra bóka og hannyrðum en alls enga lyst á útivist. Í björgun- arsveitir þarf sæmilega bilað fólk sem er tilbúið til að stökkva af stað fyrirvaralaust, hvort sem er frá vinnu, kvöldmat eða keleríi. Ég þekki vissulega björgunar- sveitar menn sem ekki er við bjargandi ef út í það er farið en í öll þau skipti sem ég hef orðið vitni að björgunaraðgerðum (sem er býsna oft á síðustu árum) hafa allir þeir sem að þeim koma unnið af fagmennsku og fórnfýsi. Sjálfur hef ég sem betur fer ekki enn þurft á björgunarsveitum að halda (sjö, níu, þrettán). Engu að síður veitir það öryggistilfinn- ingu (samanber Vespre-dömu- bindin með vængjunum) að vita af fílefldum körlum og konum í viðbragðsstöðu. Því er ég mun rólegri í mínum sófa með minn bjór í hendi að ég veit að til eru þeir sem eru nógu bilaðir til að æða af stað, út í glórulausa stórhríðina þegar neyðarkallið kemur. Gisli Einarsson Við bjargandi Gísli Einarsson fréttamaður telur björgunarsveitarmenn merkilegt fyrirbrigði. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Frá árinu 1996 hafa Slysavarna- félagið Landsbjörg tekið þátt í könnun á öryggisbúnaði leikskóla- barna í bílum. Þessi könnun hefur verið innt af hendi af félagseining- um Slysavarnafélagsins Lands- bjargar og starfsfólki þeirra aðila sem að könnuninni standa. Fyrsta árið sem könnunin var gerð voru 28 prósent barna laus í bílum og árið eftir voru 32 pró- sent barna laus. Árið 2008 var þetta hlutfall komið niður í 3 prósent sem er frábær árangur. Þrátt fyrir góðan árangur und- anfarin ár er ekki hægt að segja að 97 prósent barnanna séu í réttum öryggisbúnaði þar sem 11 prósent þeirra voru eingöngu í bílbelti sem er ekki réttur öryggisbúnaður fyrir leikskólabörn. Aldrei er þó hægt að sætta sig við að ekki sé vel búið að öllum börnum og ávallt bætast nýir foreldrar við. Því verður sífellt að halda fræðslunni áfram. Betur má ef duga skal Kannanir sýna að sífellt fleiri huga að öryggisbúnaði barna í bílum. Frábært að hægt sé að bæta ástand liðanna með náttúrulegu efni Hvað getur NutriLenk gert fyrir þig? Með árunum rýrnar brjóskvefurinn sem veldur því að liðirnir slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin byrja að núast saman, sérstaklega í stóru liðamótum eins og í mjöðmum, hryggjar-og hnjáliðum. Þess vegna er allt tilvinnandi að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan hátt. Náttúrulegt byggingarefni fyrir liðbrjóskið NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum. Vara ársins! NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki. NutriLenk var valið heilsuvara ársins 2004 í Noregi. NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun. Prófið sjálf-upplifðu breytinguna! NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum, Fræinu Fjarðarkaupum og stærri Hagkaupsverslunum. Liður með slitnum brjóskvef Heilbrigður liður Ég þurfti að fara í skurðaðgerð 1991, þar sem ég var með of löng liðbönd og var að smella úr lið í tíma og ótíma. Þannig að farið var að kvarnast upp úr liðbrjóskinu. Eftir aðgerðina minnkuðu verkirnir en hurfu ekki. Að ganga niður stiga og langar stöður ollu sárum verkjum. Starf mitt krefst þess að ég þarf að standa mikið og var það ekki auðvelt. Reyndi margt Ég hef reynt margar leiðir til að minnka verkina án þess að nota verkjalyf sem því miður dugðu ekki. Með árunum jukust verkirnir og útlitið var ekki bjart. NutriLenk til sölu á Íslandi Fyrir tæpu ári frétti ég af nýju bætiefni, NutriLenk, sem er vinsælt efni í Noregi og Svíþjóð, hjá fólki sem er með slitna og auma liði. Satt að segja var ég ekkert sérlega jákvæð á að NutriLenk gæti hjálpað mér frekar en margt annað en sló til, enda allt tilvinnandi. Byrjaðiá að taka inn 6 töflur á dag í tvær vikur samkvæmt ráðleggingum og eftir það 2 töflur á dag. Eftir 2-3 vikur fann ég greinilegan mun Já, það ótrúlega gerðist, ég fann greini- legan mun eftir 2-3 vikur á NutriLenk Nú tæpu ári seinna er ég nánast verkja- laus og einnig eru verkir vegna slits í fingrum horfnir. Ég tek nú inn 2 töflur af NutriLenk á dag og ég get sannarlega sagt að NutriLenk hefur gert kraftaverk fyrir mig. Það að standa við afgreiðslu, ganga niður brekkur og stiga er ekki stórmál lengur ... Ég horfi bjartsýn til framtíðar, NutriLenk er himnasending fyrir mig og frábært að það skuli vera hægt að bæta liðheilsuna með náttúrulegu efni segir Margrét að lokum. Mikilvægt er að annast sig vel allt lífið. Mjög nauðsynlegt er að neyta góðs kalks með D-vítamíni fyrir beinin. KOLOS er t.d. góður kostur, öflugt D-vítamín með kalki. 1 glas af KOLOS inniheldur 180 töflur sem er 6 mánaða skammtur og á góðu verði. Umboðsaðili: Gengur vel ehf., Fann mikinn mun innan 3ja vikna Margrét Óskarsdóttir NÁTTÚRULEGT FYRIR LIÐINA Í mörg ár hefur Bo st ndað áhugamál sín þrátt fyrir stirða og auma liði. Hann lét ekki þráláta verki og stirðleika stöðva sig. „Eftir að ég kynntist NutriLenk er lífið langtum léttara og bjartara,“ segir hinn sænski Bo Tavell, 65 ára. „Það er klárt mál að líf mitt er allt annað og betra eftir að ég byrjaði að nota NutriLenk.“ Bo Tavell hefur mýmörg áhugamál og vill lifa lífinu til hins ýtrasta. Hann ekur vélhjóli og er virkur í torfæruakstri, sem er mjög erfitt vélhjólasport. Bo fer einnig á brimbretti, skíði og lagar húsið si t svo ei thvað sé nefnt. Fyrir nokkrum árum fór hann að verkja í fingur og hné. Ég er þver og vildi ekki láta neitt stoppa mig „Ég þverkallaðist við og lét ekkert stoppa mig í að lifa virku lífi og gerði það oft á hnefanum sem var erfitt! Hugurinn náði ekki alltaf að yfirstíga sársaukann og var ég farinn að framkvæma minna og minna.“ Hné og fingur „Ég viðurkenni að geðslagið og liðirnir voru ekki upp á sitt besta og var ég orðinn hálf niðurdreginn þegar góður vinur benti mér á NutriLe k. Strax eftir tveggja vik a inntöku fann ég fyrir miklu létti og átti mun betra með að hreyfa mig og best var að endurheimta húmorinn á ný,“ segir Bo skellihlæjandi. 4.500 km á vélhjóli „Fyrir nokkru var mér boðið í brúðkaup til Rúmeníu. Ég ákvað að fljúga til Rómar og keyra þaðan á vélhjóli í brúðkaupið sem var 2.250k leið! Sem gerir jú 4.500 km báðar leiðir. Áður en é byrjaði að taka inn Nut iLenk h fði ég aldrei okkurn tí ann getað fari út í vona ævintýri í því ást ndi sem ég var. En eftir að ég kynntist NutriLenk þá var ekki mikið mál að leggja upp í þetta ævintýri sem gekk alveg fyrirtaks vel. Reynar fann ég fyrir smá þreytuverk í baki eftir að hafa setið svona lengi á hjólinu en það hefðu nú flestir gert!” bætir Bo kíminn við. Mæli gjarnan með NutriLenk „Ég mæli eindregið með því að þeir sem hafa auma og slitna liði taki inn NutriLenk.“ Það var orðið dýrt að geta varla hreyft sig Bo Tavell 65 ára Nú er ég liðug r á ný!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.