Fréttablaðið - 05.11.2009, Síða 80

Fréttablaðið - 05.11.2009, Síða 80
DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 Mest lesið VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI Halla komst áfram Söng- og leikkonan Halla Vilhjálms dóttir sendi lagið How í vefkeppni Melodifestivalen, sem er undankeppni Eurovision í Svíþjóð, eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum. Lagið er nú komið í tíu laga úrslit og næsta daga fellur eitt lag úr keppni á dag þangað til eitt stendur uppi sem sigurvegari. Sigurlagið verður svo á meðal laga í Melodifestivalen og sigurvegarinn í þeirri keppni fer í lokakeppni Eurovision. Árangur Höllu er frábær, en íslenskir fjölmiðlar virðast þó hafa misskilið vefkeppn- ina. Umræður á Rás 2 í gær og frétt á Pressan.is bentu til þess að Halla væri komin í tíu laga úrslit sem er ekki rétt. Vinsælir vinir Vinalög, plata Jógvans Hansen og Friðriks Ómars, hefur slegið í gegn og er mest selda plata landsins um þessar mundir. Ekki er minni spenna fyrir plötunni meðal frænda okkar í Færeyjum, en þar er platan uppseld. Þrátt fyrir að þar búi aðeins um 50.000 manns hefur platan selst litlu minna en á okkar risavaxna 300.000 manna skeri – og er þá ekki miðað við höfðatölu. Málefnaleg endurvinnsla Í skipulagsráði Reykjavíkurborgar hefur verið rætt um fjarveru fulltrúa og formanns Framsóknar. Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson hefur átt svo bágt með að mæta á fundi að hann hefur í raun fengið um 53 þúsund krónur í laun fyrir hvert sinn. Formaðurinn skýrir þetta með því að hann hafi í nógu að snúast í pólitíkinni. Árið 2008 sagði Sigmundur hins vegar að honum dytti ekki í hug að taka við sæti í skipulagsráði sem pólitískt skipaður fulltrúi, heldur ætti valið að vera faglegt. Árið 2009 hefur pólitíkin yfirhöndina. - afb, kóþ Svansmerkt prentverk 1 Íslenskt flugfélag flýgur með flóttamenn til Íraks 2 Festi hendi í hakkavél 3 Dæmdur nauðgari laus vegna dráttar á upplýsingum 4 McDonalds vill ekki koma aftur 5 Sigmundur Davíð fékk 53 þúsund fyrir hvern fund

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.