Vaka - 01.04.1927, Page 60
[VAK A]
UM BERSÖGLI.
Der Eine fragt: Was kommt danacll?
Dcr Andere fragt nur: Ist es recht?
Und also unterscheidet sich
der Frcie von dem Knecht*).
Theodor Storm.
I. Þjóðníðingurinn.
Meisiaraverk I b s e n s „Þjóðníðingurinn“ er ein hin
beiskasta og áhrifamesta lýsing í bókmenntum heims-
ins á örlögum og uppskeru manns, sem boðar nýjan og
afdrifamikinn sannleik, án þess að hyggja að afleið-
ingunuin — hvernig orð hans komi öðrum: einstakl-
ingum og almenningi, valdhöfuin og þjóðfélagi.
Sjónleilíur Ibsens gerist í litlu bæjarfélagi, sem fyrir
nokkrum árum hefir ráðist í að hagnýta heilsulindir
er spretta i nágrenni bæjarins, veita þeim inn i hann
og Iáta gera þar dýra haðstöð. Fyrirtækið hefir bless-
ast, aflað sér orðstírs og stórum aukið velmegun bæjar-
ins.
En svo fer að bera á því að sumir gestanna veikjast
af böðunum, bæði af taugaveiki og öðrum sjúkdómum.
tíaðlæknirinn, dr. Stockmann, rannsakar málið í kyr-
þev og það sannast að baðvatnið er pestnæmt. Það
hefir af sparnaðarástæðum verið leitt frá þeim lind-
um, er næstar voru bænum, en kringum þær eru ó-
þverrakeldur, sem eitra það.
Baðlæknirinn verður himinlifandi þegar hann keinst
að þessu — uppgötvun hans frelsar ótal menn frá
*) Einn spyr: Hverjar verða afleifíin)<arnar? Annar spyr að
eins um eitt: Er j>að rétt? Og hetta skilur milli frjálsborins
manns og þýs.