Vaka - 01.11.1927, Blaðsíða 19
[vaka]
NÝUNGAR í SKÓLAMÁLUM.
337
verður aldrei komizt, að menn verði að læra sjálfir.
Öll menntun er í raun og veru sjálfmenntun, þó unrdð
sé undir umsjón og ineð leiðbeiningum kennara. Þess-
vegna er allt til bóta, sem eykur trygginguna fyr-
ir sjálfsstarfi nemendanna. 1 skólum í strjálbýli, þar
sem aðeins starfa einn til tveir kennarar, kemur flokk-
unin af sjálfu sér. Hún er nauðsyn, sein ekki verður
hjá komizt, en þar fyrir er vitanlega mikill rnunur á
því, hversu vel kennurunum tekst að flokka og líta eftir
starfsemi inargra flokka í senn. Ég hefi séð mjög lof-
samleg ummæli erlendra námsstjóra um starfshátt
sveitaskólanna. Erfiðið auki þar getuna og árangur-
inn verði þar stundum undursamlegur, þegar borið sé
saman við stórskóla þéttbýlisins, sem búi við öll þau
þægindi, sem uppeldisfrömuðum hef.ir komið til hug-
ar að heimta. Mega þau ummæli heita fagnaðarboð-
skapur fyrir íslenzka kennarastétt, sem löngum verður
að miklu leyli bundin við smáskóla strjálbýlisins,
kosti þeirra og galla. Ef það verður þess valdandi, að
hæfileikar vaxi til að láta læra og starfa mikið, án þess
að of mikið sé kennt og skipað, þá er göllunum
snúið i kosti. Þá er og byggt á grundvelli hinnar eldri,
skólalausu menningar, sem aldrei náði til allra, en
kom einstökum hæfileikamönnum til mikils þroska.
Aðferðir þeirra tíma eiga án efa erindi til skólanna.
()g ef þeim er beitt, má vænta, að skólarnir skili fram-
takssömum, sjálfstæðum mönnum, sem þá standa feti
framar fortíðinni fyrir leiðsögn góðs kennara. Það
vottar þegar fyrir því, að unglingaskólar gangi í þjón-
ustu sjálfmenntunarinnar svokölluðu, en það eiga
barnaskólarnir líka að gera.
Ein hin þekktasta tilraun til að auka sjálfstætt starf
skólanemenda er hin svokalla Dalton-aðferð. Hefir
hún náð all-miklum tökum á skólastarfi víða um heim.
Náinsskráin er syrpa af verkefnum. Eitt verkefni er lagt
fyrir nemendurna i einu. Að þvi á að vinna í eina viku,
22