Vaka - 01.11.1927, Blaðsíða 36
HERMANN JÓNASSON:
[vaka]
354
Þetta er auðveldara, eí' gert er á uhglingsárunum, áður
en viljalíf afbrotamannsins full harðnar. En þeim venj-
um eða löstum, sem eru orsakir flestra afbrota, svo
sem langvarandi slœpingsháttur, drykkjuskapur, vont
félagslíf o. 11., verður ekki útrýmt nema með því móti
að temja afbrotamanninum aðrar venjur. Það, sem
bezt stælir viljalíf afbrotamannsins og beinir í rétt
horf, er reglubundin vinna. Ef það tekst að temja af-
brótámönnunum reglubundna vinnu og kenna þeim ást
á vinnunni, er þessum orsökum afbrotanna þar með
útrýmt og manninum venjulega borgið. „í sveita þíns
andlitis skalt þú þíns brauðs neyta“ er eitt bezta boð-
orðið, sem mannkynið getur lifað eftir, þvi ef þessu boði
er fylgt, verða flest önnur boðorð óþörf. — Að temja
föngunum reglubundna vinnu er fyrsta boðorðið í
hverju nýtízku fangahúsi nútímans, — og að halda af-
brotamönnum til vinnu, eftir að þeir koma úr fanga-
húsunum, er talið ekki síður nauðsynlegl. —
Rannsókn á þeim orsökum, er skapa það viljalíf, er
leiðir einstaklinginn inn á glæpabrautina, hefir leitt at-
hygli refsiréttarfræðingánna að uppeldi barnanna. „Frels-
ið barnið og glæpunum er útrýmt“ er heróp þeirra,
sem lengst ganga á þessu sviði. Ekkert er greinilegra
séreinkenni hinnar nýju stefnu en einmitt viðleitnin
að f y r i r b y g g j a afbrotin. Engir hafa bent jafn
greinilega og forvigismenn nýju stefnunnar á það, hve
vonlaust er að hamast einatt á afleiðingunum (glæp-
unum), en láta orsakirnar eiga sig. — Allir refsirétt-
arfræðingár nútímans eru sammála um það, að aðal-
áherzluna beri að Ieggja á að fyrirbyggja með því að
skapa sem bezt uppvaxtarskilyrði fyrir hvert barn og
hvern ungling, og temja þeim strax á uppvaxtarárun-
um þá ráðbreytni, sem gefur einstaklingunum kjöl-
festu i lífinu. — Það er inarg reynt, að þeir einstak-
lingar, sem byrja í bernsku á afbrotum og alast upp i
löstunum, verða verstu böðlar þjóðfélagsins, og annað