Vaka - 01.11.1927, Side 23

Vaka - 01.11.1927, Side 23
vaka] NÝUNGAR í SKÓLAMÁLUM. 341 óttinn leiðir sjaldnast til góðs. Hinsvegar verða börn og unglingar seint leyst undan aga og umvöndun full- orðna fólksins. Allt er undir því komið, hvernig ag- anum er beitt. Það má án et'a fullyrða, að sá agi sé beztur, sem minnst ber á. Það má stjórna skóla án þess að svo líti út, að tilgangur kennaranna sé að láta börn- in kenna á valdi sínu. Það þarf annar réttur að svífa yfir vötnunum en réttur þess, sem er sterkari. Merkar tilraunir hafa verið gerðar ti! að fá skóla- stjórnina í hendur nemendunum Deildirnar velja starfsmenn sína, og skólinn allur i sameiningu dóm- ara sína og franrkvæmdastjórn. Skólinn er fullvalda ríki, en kennararnir standa álengdar. Slíkum tilraun- um er borin mjög misjafnlega sagan. Sumir láta mik- ið af árangrinum, aðrir illa og segja, að jafnvel nem- endunuin sjálfum sé slík stjórnarbylting ógeðfeld. Er sennilegt, að ósamræinið stafi frá því, að veldur hver á heldur, en ef svo er, þá sannar það, að sjálfstjórn nemendanna fer eftir því, hvaða kennarar standa bak við. Kennararnir verða að standa bak við hið „full- valda“ skólariki, þó ósýnilegir séu. Það fer eftir stjórn- arhæfileikum kennarans, hversu mikið vald má fá í hendur nemendunum. Sá kennari, sem með tiltrú og trausti vekur ábyrgðartilfinningu nemenda sinna, get- ur öruggur gengið langt í því, að selja nemendum sín- um sjálfstjórn. Aginn er þar l'yrir ekki úr sögunni. Munurinn er sá einn, og þó reyndar mikill, að einn byggir á óttanum, en annar á traustinu, og mun það valda miklu um framtíð barnánna, á hvort foreldrar og kennarar treysta meir: ótta barnsins við yfirboðar- ann eða traust yfirboðarans á barninu. V. Það, sem hér hefir verið minnsl á, er sérkennilegt um þá skólahreyfingu, er nú gengur yfir: ríkari á- herzla lögð á það, sem nemandann snertir, en náins-

x

Vaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.