Vaka - 01.11.1927, Page 45

Vaka - 01.11.1927, Page 45
[vaka] ANDLEGT LÍF A ÍSLANDI. 363 ar bækur nú eru orönar rándýrar. En menntamenn, miðstétt og yfirstétt í bæjum á íslandi, lesa færra en sömu stéttir í höfuðmenntalöndum Evrópu. Og menn- ingarhrifning er þar meiri og heitari en á íslandi. Hugur Islendinga beinist nú hvað mest að pólitísk- um þrætum um kaupfélög og jafnaðarmennsku, tekju- skatt og einkasölur. Þessar stælur skipa nú á tímum öndvegið í áhugalífi íslendinga á sania hátt og menn- ingarfyrirbrigðin — í bókmenntum, leiklist, myndlist, sönglist o. s. frv. — skipa æðsta sess í hugum að minnsta kosti miðstétta og yfirstétta t. d. á Norður- löndum og i Þýzkalandi. í Noregi er meira talað um Hamsun en um Lijkke eða Mowinckel. A íslandi eru Jún Þorláksson og Júnns Júnsson nefndir tuttugu sinn- uni meðan Einar Benediktsson er nefndur einu sinni. í fyrra sumar var konungi vorum haldin vegleg veizla af bæjarstjórn Reykjavíkur. Fulltrúum ýmsra ,,stórvelda“ innan þjóðfélagsins var boðið formönn- uin útgerðarmannafélags, sjómannafélags, iðnaðar- inannafélags o. s. frv. — svo sem sjálfsagt var. En ég veit ekki hvernig farið hefði, ef hans hátign hefði látið í Ijós þá ósk, að heilsa upp á þá fulltrúa andlegs lífs og lista, sem veizluna sætu. Forseta íþróttasambands fslands hafði verið boðið — en ekki forseta hins ald- argamla Bókmenntafélags íslands (verndari Kristján konungur X.), heldur ekki Einari Júnssi/ni frá Galta- íeUi o. s. frv. Þessi gleymska lýsir höfuðborg íslands betur en langt mál, bænuin, þar sem hugsað er og talað um kau]>- gjald og gróða, gjaldþrot og sjóðþurðir, húsabrask. verðlag, stjórnmál og mörg önnur mikilvæg efni, sem varða veraldlegan farnað þjóðarinnar, — þar sem allt annað er ofar á baugi i almenningshugum en bók- menntir og andlegt líf. Ég hygg að islenzk þjóðarsál hafi ekki um langt skeið verið frábitnari skáldskap en einmitt nú á þess-

x

Vaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.