Vaka - 01.11.1927, Side 61

Vaka - 01.11.1927, Side 61
[vaka] UAUGABROT. 379 hann beizklega, einkum þegar hann minntist bróður síns og barnsins. En þá var allt um seinan. — Svo hljóðar sagan. Og geta menn nú sjálfir dregið nokkurar ályktanir um það, hvernig kirkjunni og sum- um kirkjunnar þjónum hefir farizt allt til þessa að rækja köllun sína í heiminum, að stuðla að því, að kærleikur- inn geti þróazt á jörðu hér. [Ur niðúrlaginu af fyrirlestrum próf. A. H. B. um „Trú og vísindi" og er þetta ]>rentað hér ti) sanianhurðar við grein sira G. K. i „Bjarma" 1. sept. 1>. á., er ekki þykir að öðru leyti vert að svara.] ORÐABELGUR. ALÞINGISHÁTÍÐIN. Nú er mikið ritað og rætt um alþingishátíðina 1930. Fréttir berast um það, að hingað ætli að streyma fjöldi manns úr tveim heimsálfum. Hver maðurinn spyr ann- an: hvað eiguin vér að gera, hvað getum vér gert? Til- lögum rignir niður, sem bersýnilegt er, að verða ekki frainkvæmaar og á ekki að framkvæma. Ef menn segja hug sinn allan, játa flestir, að i þeim sé illur uggur. Þeir eru hræddir um, að þjóðin ráði ekki við hátíða- höldin, að þau verði henni til skammar. Sami uggurinn virðist vera annars staðar. Vestur-íslendingar búast til að koma hingað í stórhópum, og þeim þykir heima-land- inn tómlátur um viðbúnað. Einhver Þjóðverji sendir fyr- irspurn, hvað sé farið að gera hér til þess að undirbúa komu sína. Spurningin er látin ganga áfram til stjórn- arinnar. Það er víst ætlazt til, að stjórnin sé við því búin, að búa um hann í flatsæng uppi á stjórnarráðskvisti, ef hann fær ekki inni á Hótel ísland eða Fjallkonunni. En er það annars ekki hálfgert öfugstreymi að þurfa að kvíða fyrir þessari hátíð? Niðjar vorir munu öfunda þá, sem fengu að lifa slíkt merkisár. Uggurinn hlýtur að bera vott um, að vér hugsum rangt um tilhögun hátiða- haldanna.

x

Vaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.