Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.11.2009, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 06.11.2009, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI jólahlaðborðFÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2009 Löngu farnir að hlakka tilNokkrir herramenn hafa verið fastagestir á jólahlaðborði Hótel Loftleiða í fjölda ára. BLS. 4 Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Maður verður auðvitað þreyttur á því, eftir að hafa undirbúið matar-boð í þrjá daga sem inniheldur flóknar borðskreytingar, silfur-fægingar, útskorin grasker, flug-elda og nánast lifandi dúfur flögr-andi um stofuna, að falla svo í skuggann af vinkonunni sem mætir með sósu „from scratch“ og hún færallan heiðurinn “ Bakar brauð sem stelur senunni í matarboðum Lára Björg Björnsdóttir er ekki ein af þeim sem leika sér að því að vippa upp flóknum réttum. Þess vegna leggur hún meira upp úr því að skreyta matarborðið. Nema þegar kemur að brauðinu hennar. Lára Björg Björnsdóttir með brauðið góða sem hún hefur bakað síðan hrunið varð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON 375 g hveiti 3 sléttfullar tsk. lyftiduft1 kúfuð tsk. salt100 g cheddar-ostur, rifinn gróft (má nota parmesan ef vill) Fyrst er hveiti, salti, lyftidufti og rifnum osti blandað í skál. Í aðra skál er blandað mjólk, ab-mjólk eggjum plötuna er það pensl-að með eggjablönd-unni og jafnvel smá parmesan stráð fi CHEDDAR-BRAUÐ BLÚS- OG DJASSHÁTÍÐ Akraness verður haldin dagana 6. til 8. nóvember. Hátíðin fer að mestu fram í Gamla kaupfélaginu og einnig er dagskrá á kaffihúsinu Skrúðgarðinum á laugardag-inn. Miðaverð fyrir hvert kvöld er 2.000 krónur en einnig er hægt að fá helgarpassa á 4.000 krónur. Snitzel samloka Kaffi tería Perlunnar á 4. hæðSnitzel samloka með súrsuðum rauðlauk, fersku káli og piparrótarsósu Jólahlaðborð Perlunnar hefst 19. nóvember Tilboð mán.-þri. 6.890 kr. — Verð: 7.890 kr. Villibráðarhlaðborðinu lýkur 18. nóvember Tilboð mán.-þri. 7.290 kr. — Verð: 8.290 kr. Aðeins 790 kr. FÖSTUDAGUR 6. nóvember 2009 — 263. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG Grafík í Norræna húsinu Félagið Íslensk Grafík heldur upp á fjörutíu ára afmæli með sýningu í Norræna húsinu. TÍMAMÓT 30 LÁRA BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR Lærði að baka brauð þegar sverfa tók að • matur • helgin Í MIÐJU BLAÐSINS JÓLAHLAÐBORÐ Kræsingar, karókí og kveðskapur um jólin Sérblað um jólahlaðborð FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Afsláttardagar fi mmtudag til sunnudags Opið til 19 HEILBRIGÐISMÁL Sú hætta er óhjá- kvæmileg að lagning Suðvestur línu hafi neikvæð áhrif á vatnsverndar- svæði og um leið neysluvatn ef mengunar slys verði. Þetta kemur fram í umhverfismati Skipulags- stofnunar um framkvæmdina. Er þar tekið undir áhyggjur heilbrigðis- nefnda sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu. Framkvæmdin er engu að síður talin svo þjóðhagslega mikil- væg að rétt sé að ráðast í hana. Fagaðilar töldu að best væri að fara aðra leið með línuna en yfir vatnsbólin. Sveitarfélögin töldu þá leið hins vegar heppilegasta, enda væri lína þar fyrir og vegur henni tengdur. Hann þyrfti að styrkja, en með því væri komist hjá því að leggja nýjan veg. Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, segir að allrar varúðar verði gætt við lagningu línunnar. Engin eiginleg viðbragðsáætlun sé til ef mengunarslys verði, en þau mál verði að skoða. Þórður segir fyrirtækið ekki tryggt fyrir tjóni af því tagi; besta tryggingin sé að standa vel að málum. Sérstak- lega verði hugað að því í útboðinu og við val á verktökum. Hjá Orku- veitunni eru til viðbragðsáætlanir verði slys. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að við framkvæmdir Klæðningar inni á vatnsverndar- svæðinu sumarið 2007 hafi þrír vörubílar oltið. Svo heppilega hafi viljað til í öll skiptin að þeir ultu á „rétta hlið“ þannig að búnaður tengdur olíunni skemmdist ekki og ekki dropi af olíu lak niður. Fjórði bíllinn valt utan svæðisins og olíu- pannan fór undan honum með þeim afleiðingum að mikil olía fór í jarð- veginn. Bæði heilbrigðisnefnd Hafnar- fjarðar- og Kópavogssvæðis og Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur töldu framkvæmdina geta ógnað vatns- bólunum. Brugðist var við ábend- ingum þeirra um framkvæmdatíma og ýmislegt fleira. - kóp / sjá síðu 4 Framkvæmdin gæti ógnað vatnsbólunum Skipulagsstofnun telur lagningu Suðvesturlínu geta ógnað vatnsbólum höfuð- borgarsvæðisins. Heilbrigðisnefndir lýstu áhyggjum sínum en töldu línuna þjóðhagslega mikilvæga. Slys hafa orðið við framkvæmdir á svæðinu. UMFERÐ Verkefni lögreglunnar eru síbreytileg. Það sannaðist enn eftir hádegi í gær þegar lög- reglumenn óku fram á pylsu- vagn sem hjólbarði hafði sprung- ið á og stóð af þeim sökum úti á götu á fjölförnustu gatnamót- um landsins, þar sem mætast Kringlumýrarbraut og Mikla- braut. Ökumaður bílsins, sem hafði verið með með pylsuvagninn í eftirdragi, sá sem var að vagn- inn skapaði hættu á gatnamótun- um og kallaði til dráttarbíl frá Vöku til að fjarlægja hann. Lögregluþjónarnir áttu leið hjá og liðsinntu Vökubílstjóran- um við að koma vagninum upp á pallinn og í kjölfarið á brott svo umferðin gæti gengið greiðlega fyrir sig á ný. - sh Stopp á gatnamótum: Pylsuvagn olli vandræðum í umferðinni PYLSUNUM BJARGAÐ Á BÍLINN Þegar sprakk á vinstra dekki vagnsins var illt í efni. Þá lá á að koma hjólasjoppunni úr umferðinni. Það gekk greiðlega. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVANDÍS DÓRA EINARSDÓTTIR Leikur í rússneskri stórmynd Frábært tækifæri fyrir leiklistar- nema Heimsækir börnin Damien Rice spilar í hljóðveri Sigur Rósar og heimsækir íslensk leikskólabörn. FÓLK 42 Nokkuð hvasst Í dag verður strekkingur vestan til og við suðurströndina en annars hægari. Horfur eru á rigningu sunnan- og suð austanlands og úrkoman teygir sig yfir Norðausturland síðdegis. VEÐUR 4 6 4 3 5 5 DÓMSMÁL Gamli Landsbankinn hefur höfðað sex skuldamál gegn eignarhaldsfélaginu Imoni og verða þau tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku. Félagið er í eigu Magnúsar Ármanns, sem var umsvifamikill athafnamaður í uppsveifl- unni. Eitt málanna tekur á kaupum Imons á fjögurra prósenta hlut í Landsbankanum fyrir fimm millj- arða króna nokkrum dögum fyrir hrun bankans. Allt fjármagn til kaupanna fékk félag Magnúsar lánað hjá gamla Landsbankanum með veði í stofn- fjárbréfum félagsins í Byr sparisjóði. Imon var stærsti hluthafi Byrs á þessum tíma. Viðskiptin eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara vegna gruns um markaðsmisnotkun. Landsbankinn hefur þegar gert veðkall í félag- inu og leyst til sín stofnfjárbréfin í Byr. - sh / sjá síðu 4 Gamli Landsbankinn sækir að eignarhaldsfélagi sem hann lánaði milljarða: Lánaði fyrir kaupum í sér Loksins sigur hjá Fram Fram og Akureyri unnu sína fyrstu sigra í N1-deild karla í gær. ÍÞRÓTTIR 48 Tvö hundruð vesen Ímynd strætisvagna er enn sú að þeir séu samgöngumáti fyrir undirmálsfólk, segir Pawel Bartoszek. Í DAG 24 PALESTÍNA, AP Mahmoud Abbas, forseti Palestínustjórnar, hefur tilkynnt að hann ætli ekki að bjóða sig fram í kosningum í jan- úar. Hann sagðist ekki hafa áhuga á því vegna pattstöðunnar í friða- viðræðum, sem hann segir bæði Ísraela og Bandaríkja- menn bera ábyrgð á. Abbas skýrði frá þessu í sjón- varpsávarpi, en orðaði mál sitt þannig að skilja mátti á honum að hugsanlega gæti látið sannfær- ast um að skipta um skoðun. Jafnskjótt og ákvörðun hann barst út hringdu til hans forsetar Egyptalands og Ísraels, konungur Jórdaníu og landvarnaráðherra Ísraels að hvetja hann til að hætta við að hætta. - gb Forseti Palestínustjórnar: Abbas ekki í framboð næst MAHMOUD ABBAS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.