Fréttablaðið - 06.11.2009, Page 12
12 6. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
STJÓRNMÁL Helmingur þeirra frambjóðenda til
Alþingis, sem ekki höfðu skilað inn fjárhags-
upplýsingum um framboð sitt til Ríkisendur-
skoðunar á miðvikudag, var úr VG, eða 18 af 36.
Greint var frá því í blaðinu í gær að þessir
frambjóðendur brjóta lög um fjármál stjórn-
málasamtaka, og brotin eiga að geta kostað sex
ára fangelsi.
Drífa Snædal, framkvæmdastýra VG skýrir
skussahátt frambjóðendanna með því að í for-
vali flokksins hafi verið óhemju mikil þátttaka,
og að sáralítill kostnaður hafi verið við fram-
boðin.
„Við vorum með 103 í forvali sem eru jafn-
margir og buðu sig fram í hinum flokkunum.
Svo fór enginn yfir 300 þúsund krónur í kostn-
að, þar sem það var blátt auglýsingabann í for-
valinu,“ segir hún. Samkvæmt lögum er þeim
engu að síður skylt að greina frá því, að
kostnaðurinn hafi verið þessi.
Drífa segist hafa boðist til að senda
senda Ríkisendurskoðun yfirlýsingu um
þetta fyrir hönd alla frambjóðendanna
en stofnunin hafi viljað fá yfirlýsingu
frá hverjum og einum, skiljanlega, segir
Drífa.
Ekki einungis Ríkisendur-
skoðun hafi ýtt á eftir því við
frambjóðendurna að skila
inn upplýsingunum, heldur
einnig skrifstofa flokks-
ins.
„Þannig að þetta er
bara á þeirra ábyrgð,“
segir Drífa Snædal.
Þess skal getið að
í tilkynningu Ríkisendurskoðunar var
nafn Fidu Abu Libdeh á lista yfir fram-
bjóðendur í forvali VG, en hún tók ekki
þátt í því. Skrifstofu VG varð á að setja
Fidu á listann. Skussarnir voru því
ekki 37, eins og sagt var í gær. - kóþ
DRÍFA SNÆDAL Framkvæmdastýra
VG segir að metþáttaka hafi
verið í forvali VG fyrir síðustu
kosningar. Skrifstofa flokksins
hafi hvatt fólk til að skila
upplýsingunum til Ríkis-
endurskoðunar.
STJÓRNSÝSLA Greiðslur til ríkis-
starfsmanna fyrir gistingu á
ferðalögum innanlands hafa
verið lækkaðar um rúman fjórð-
ung samkvæmt nýrri ákvörðun
ferðakostnaðarnefndar. Þá lækka
greiðslur fyrir gistingu og fæði
um 15,5 prósent.
Greiðslur vegna fæðis, hvort
heldur sem er hálfan eða heilan
dag, hækka hins vegar um 4,4
prósent.
Fyrri gjaldskrá tók gildi 1.
júní, en núverandi um mánaða-
mótin. Dagpeninganefnd fer fram
á að ráðuneyti kynni stofnunum
og fyrirtækjum sem undir þau
heyra nýju ákvörðunina, en hana
er líka að finna á slóðinni www.
fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.
html. - óká
Ríkisstarfsmenn:
Dagpeninga-
greiðslur lækka
BREYTTAR GREIÐSLUR
Greiðslur til ríkisstarfsmanna á
ferðalögum innanlands á vegum
ríkisins á þessu ári.
Vegna 1. nóv. 1. jún. Breyting
Gisting og fæði í einn sólarhring
18.700 kr. 22.132 kr. -15,5%
Gisting í einn sólarhring
10.400 kr. 14.182 kr. -26,7%
Fæði heilan dag
8.300 kr. 7.950 kr. +4,4%
Fæði hálfan dag
4.150 kr. 3.975 kr. +4,4%
Heimild: Lögbirtingablaðið
Fjórtán umsækjendur eftir
Fjórtán umsækjendur eru nú um
stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins, því
Viðar Kárason hefur dregið umsókn
sína til baka.
STJÓRNSÝSLA
EVRÓPUMÁL Stefán Haukur
Jóhannesson, sendiherra gagn-
vart Evrópusambandinu, verð-
ur aðalsamningamaður Íslands í
aðildarviðræðunum við Evrópu-
sambandið. Níu sitja í samninga-
nefndinni en við hlið hennar starfa
tíu samningahópar um sértæk mál-
efni. Formenn þeirra hafa verið
valdið en þá skipa fulltrúar ráðu-
neyta og stofnana ásamt fulltrúum
hagsmunaaðila, félagasamtaka og
háskólasamfélagsins. Sérstaklega
var litið til samningareynslu og
sérþekkingar við skipan í nefnd-
ina og hópana.
Í tilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu segir að gert sé ráð fyrir
því að á næstu vikum eða mánuð-
um ljúki framkvæmdastjórn ESB
gerð álits síns um aðildarumsókn
Íslands en á grundvelli þess taki
aðildarríkin ákvörðun um að hefja
formlegar aðildarviðræður.
Nefndin sem semur við ESB
Utanríkisráðherra hefur skipað níu manna samninganefnd vegna aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Tíu
sértækir samningahópar starfa með nefndinni. Flestir samningamanna eru lögfræðingar og/eða embættismenn.
Deildarforseti
lagadeildar HÍ frá
2007.
Prófessor í stjórn-
skipunarrétti við
lagadeild Háskóla
Íslands frá 2002.
Skrifstofustjóri
og lögfræðingur
í dómsmálaráðu-
neytinu frá 1995-
2001.
Formaður sérfræð-
inganefndar Evrópuráðsins um bætt
réttarfar í mannréttindamálum frá
2009.
BJÖRG
THORARENSEN
Sviðsstjóri alþjóða-
og öryggissviðs
utanríkisráðuneytis-
ins frá 2007.
Yfirmaður flótta-
mannaaðstoðar SÞ
í Austur-Jerúsalem
2005-2007.
Staðgengill sendi-
herra í Brussel,
2004-2005.
Varafastafulltrúi
Íslands hjá SÞ í New York, 2000-
2004.
Starfsmaður stjórnmáladeildar NATO,
1994-1997.
Þátttaka í samningaviðræðum um
aðild Íslands að EES.
GRÉTA GUNN-
ARSDÓTTIR
Skrifstofustjóri á
viðskiptasviði utan-
ríkisráðuneytisins
(ESB-mál) og stað-
gengill sviðsstjóra.
Fulltrúi utanríkis-
ráðuneytisins í
Brussel 2003-2007,
staðgengill sendi-
herra 2005-2007.
Hefur starfað í utan-
ríkisþjónustunni frá
1999 en var áður fulltrúi dómsmála-
ráðuneytisins í Brussel.
Hefur tekið þátt í ýmsum viðræðum
fyrir hönd Íslands um EES og ESB.
HÖGNI S.
KRISTJÁNSSON
Kennsla við
Símenntun Háskól-
ans á Bifröst, 2009.
Sérfræðingur á
Rannsóknarmið-
stöð Háskólans á
Bifröst, 2006-2008.
Framkvæmdastjóri
Nepals hugbúnaðar
ehf., 2002-2004.
Rekstrarstjóri Safna-
húss Borgarfjarðar,
2004.
Hefur birt greinar í innlendum
fræðitímaritum og flutt fjölmörg
erindi á sviði landbúnaðar- og
byggðamála.
Sat í sveitarstjórn Borgarbyggðar fyrir
Framsóknarflokkinn.
KOLFINNA
JÓHANNES-
DÓTTIR
Sviðsstjóri við-
skiptasviðs utan-
ríkisráðuneytisins
frá 2007.
Skrifstofustjóri
Evrópuskrifstofu
utanríkisráðuneyt-
isins, 2007.
Starfsmaður
utanríkisráðuneyt-
isins frá 1996.
Í samninganefnd
um Icesave, 2008-2009 og um
lánaviðræður við Norðurlönd o.fl.
Þátttaka í fjölda viðræðna fyrir hönd
Íslands um málefni EES og ESB.
MARTIN
EYJÓLFSSON
Sendiherra Íslands
gagnvart ESB í
Brussel.
Fastafulltrúi gagn-
vart Alþjóðavið-
skiptastofnuninni
WTO, EFTA og SÞ í
Genf 2001-2005.
Starfsmaður
utanríkisþjónust-
unnar frá 1986,
skrifstofustjóri og
starfsmaður fastanefnda. Hefur tekið
þátt í margvíslegum samningaviðræð-
um fyrir hönd Íslands. Var formaður
vinnuhóps um aðild Rússlands að
WTO frá 2003 og formaður í þriggja
manna gerðardómi í ,,stáldeilu”
Bandaríkjanna og Evrópusambands-
ins, 2002-2003.
STEFÁN HAUKUR
JÓHANNESSON
Ráðgjafi í utan-
ríkis málum í for-
sætisráðuneytinu
frá 2006.
Sendiherra
Íslands á Indlandi,
2006.
Skrifstofustjóri í
utanríkisráðuneyt-
inu 2002-2005,
sendifulltrúi í
sendiráðinu í
Brussel 200-2002, varafastafulltrúi
hjá NATO og VES 1997-2000. Hefur
tekið þátt í fjölda samningavið-
ræðna fyrir hönd Íslands, ekki síst á
sviði öryggis- og varnarmála.
STURLA SIGUR-
JÓNSSON
ÞORSTEINN
GUNNARSSON
Ritstjóri Frétta-
blaðsins, 2006-
2009.
Sendiherra í
Kaupmannahöfn
og London, 1999-
2005.
Dóms- og kirkju-
málaráðherra og
sjávarútvegsráð-
herra 1991-1999.
Forsætisráðherra,
1987-1988.
Fjármálaráðherra, 1985-1987.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
1983-1991. Alþingismaður 1983-
1999.
Framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins 1979-1983,
ritstjóri Vísis 1975-1979.
ÞORSTEINN
PÁLSSON
Sérfræðingur hjá
Rannís, 2009.
Rektor við
Háskólann á Akur-
eyri, 1994-2009.
Fulltrúi mennta-
málaráðuneytis
við sendiráðið í
Brussel, 1993-
1994. Deildar-
sérfræðingur í
menntamálaráðu-
neytinu, 1990-
1994. Formaður rannsóknar- og
þróunarhóps EES, 1994 og hefur
verið fulltrúi í nefndum á vegum
EES, EFTA og ESB.
FORMENN SÉRSTAKRA SAMNINGAHÓPA
EES I, vörur, orka, samkeppnismál o.fl.
Bryndís Kjartansdóttir, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu.
EES II, félagsmál, þjónusta, fjárfestingar, umhverfismál o.fl.
Anna Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu.
Lagaleg málefni
Björg Thorarensen, deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands.
Sjávarútvegsmál
Kolbeinn Árnason, lögfræðingur, fyrrverandi skrifstofustjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu.
Landbúnaðarmál
Sigurgeir Þorgeirsson, ráðuneytisstjóri sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytisins.
Utanríkis- og öryggismál
María Erla Marelsdóttir, deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu.
Fjárhagsmálefni
Maríanna Jónasdóttir, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu.
Myntbandalag
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Byggðamál og sveitarstjórnarmál
Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu.
Dóms- og innanríkismál
Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Bæjarráð Voga hyggst setja upp nefnd
með Ungmennafélaginu Þrótti til að
vinna að því að Unglingalandsmót
UMFÍ verði haldið í Vogum á 80 ára
afmælisári Þróttar sumarið 2012.
SVEITARSTJÓRNIR
Vilja landsmót í Voga
HELG ATHÖFN Strangtrúaðir hindúar,
búnir kókoshnetum, taka þátt í
helgiathöfn í Koneswara-musterinu í
Trincomalee-umdæminu á Srí Lanka.
NORDICPHOTOS/AFP
Helmingur frambjóðenda sem ekki skila fjárhagsupplýsingum vegna alþingiskosninga er í Vinstri grænum:
Enginn eyddi meira en 300 þúsund