Fréttablaðið - 06.11.2009, Side 36
6 föstudagur 6. nóvember
Jólamyndin Desember
verður frumsýnd í kvöld
með söngkonunni
Lovísu Elísabetu
Sigrúnardóttur í
einu aðalhlutverka. Lov-
ísa ræðir leikarareynsl-
una í viðtali við Föstu-
dag, tónleikaferðir með
Emilíönu, baráttuna við
lamandi sviðsskrekk og
sambúð hundar, kattar
og tveggja söngkvenna í
miðborg Reykjavíkur.
Viðtal: Hólmfríður H. Sigurðardóttir
Ljósmyndir: Stefán Karlsson
L
ovísa er að dunda við
að koma sér fyrir á
nýju heimili í hjarta
miðbæjarins þegar
blaðamaður bank-
ar upp á. Hún er nýkomin aftur
heim úr Evróputúr þar sem hún
hitaði upp fyrir Emilíönu Torr-
ini. „Ég fékk að fljóta með í rút-
unni hennar Emilíönu og var fljótt
komin í þá rútínu að keyra á dag-
inn, sofa á nóttunni í rútunni og
vakna í nýrri borg. Við vorum úti
um alla Evrópu en mest í Þýska-
landi. Ég túraði líka með henni
í vor og það var magnað að sjá
muninn á því hvernig þetta var
þá og núna, því hún hefur slegið
í gegn þarna. Þetta var mjög
skemmtileg ferð. Bandið hennar
Emilíönu var líka allt mjög hjálp-
legt við mig. Þegar líða tók á túr-
inn höfðu allir í bandinu boðist til
að hjálpa mér og á einum tíma-
punkti var ég komin með fullt
band í upphituninni og Emilíönu
að syngja bakraddir, klædda upp
sem flottur karlmaður. Svo spilaði
ég líka á bassa með þeim í nokkr-
um lögum í settinu þeirra.“
UPPHAF LEIKFERILS?
Það er ekki laust við eftirvænt-
ingu hjá Lovísu, enda stutt í
frumsýningu bíómyndarinnar
Desember, þar sem hún þreytir
frumraun sína sem leikkona. Það
var í desember í fyrra að Lovísa
fékk símtal frá Hilmari Oddssyni
kvikmyndaleikstjóra. Hann vildi
vita hvort hún kynni kannski líka
að leika. „Ég svaraði strax nei!
Alls ekki, enda hef ég aldrei sóst
eftir því,“ segir Lovísa. En þegar
Hilmar útskýrði fyrir henni að
karakterinn sem hann vildi fá
Lovísu til að leika væri söng-
kona í myndinni ákvað hún að
hugsa málið. Hún fékk handritið
sent og fylltist áhuga. „Stuttu
seinna var ég mætt í prufu með
Tómasi Lemarquis. Þetta endaði
svo með því að Hilmar ákvað að
taka sénsinn og velja mig og ég
tók áhættu með því að treysta
mér í þetta. Þetta var mjög mikil
áskorun fyrir mig. En mér finnst
gaman að ögra sjálfri mér. Og það
er ekki beint oft sem manni býðst
að leika í kvikmynd svona upp úr
þurru.“
LÍK AÐALPERSÓNUNNI
Ástu, sem Lovísa leikur, langar
mikið að verða söngkona en lítið
hefur orðið úr því hjá henni. Hún
á auðugan unnusta sem er útfarar-
stjóri og vinnur hjá honum sem
líksnyrtir. Flækjan hefst svo fyrir
alvöru þegar fyrrverandi kærast-
inn, leikinn af Tómasi Lemarquis,
snýr aftur frá útlöndum og hrist-
ir upp í gömlum tímum. Lovísa
er nýbúin að sjá myndina sjálf.
Hún segir það hafa verið skrýt-
ið að horfa á sjálfa sig á bíótjald-
inu. „Mér finnst myndin góð og
allir hinir leikararnir frábærir.
En ég sá auðvitað lítið annað en
mig sjálfa. Og ég fór til dæmis að
taka því persónulega hverju mín
persóna svaraði hinu eða þessu.
Mér fannst þetta bara vera ég
sjálf þarna á tjaldinu,“ segir Lov-
ísa, sem náði ágætri tengingu við
persónuna, sem hún segir líka
sér að mörgu leyti. „Hún er samt
miklu meiri pæja heldur en ég,
er alltaf voðalega vel til höfð og
svona. Hún býr líka í voða fínu
húsi, enda er kærastinn hennar
svolítið ríkur.“
FLÓKIN FJÖLSKYLDUBÖND
Lovísa segist sjálf vera rík, þótt
hún syndi ekki í seðlum eins og
kvikmyndapersónan. Hún á margt
gott fólk að – stóra og flókna nú-
tímafjölskyldu. Pabbi hennar er
ættaður frá Srí Lanka en alinn
upp í Bretlandi, þannig að hún
á skyldfólk bæði í Bretlandi og á
Srí Lanka. Amma hennar í móður-
ætt býr í fögrum dal í Portúgal,
þar sem hún ræktar grænmeti og
ávexti. Og mamma hennar býr á
Íslandi með eiginmanni sínum
og systkinum Lovísu. „Ég er mjög
rík. Ég á tvo pabba og fjögur syst-
kini. Mamma á tvö börn, pabbi á
eitt og ég eina stjúpsystur.“
TVÆR SÖNGKONUR
Sjálf hefur Lovísa komið sér upp
vísi að fjölskyldu. Hún saman-
stendur af kærustunni, Agnesi,
hundinum Sheva, sem býr til
skiptis hjá Lovísu og fyrrverandi
eiginmanni hennar, og hinum
ógnarstóra, loðna og silfur gráa
Gosa, ketti Agnesar. Þær Agnes
og Lovísa eru að stíga fyrstu sam-
búðarskrefin og íbúðin er full af
hljóðfærum. Það má ímynda sér
að mikið verði sungið á nýja
heimilinu enda er Agnes söng-
kona eins og Lovísa. „Hún er með
massífa rödd,“ segir Lovísa með
aðdáun. „Það er gaman að syngja
með henni og ég er viss um að
við eigum eftir að gera meira
af því einhvern tímann. Hún
DREYMDI ALDREI UM AÐ LEIK
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n
Uppáhaldsborgin þín:
Reykjavík.
Tónlistin sem kemur þér í gott
skap:
Það fer bara eftir því hvernig gott
skap ég vil komast í, ég á nokkur.
Fyrirmyndir lífs þíns:
Fjölskyldan mín og vinir.
Land sem þig langar að heim-
sækja:
Srí Lanka.
Skemmtilegast að gera:
Mér finnst gaman að reyna og
læra nýja hluti.
En leiðinlegast:
Ef mér finnst eitthvað leiðinlegt
þá nenni ég ekki að velta mér
upp úr því, auðvitað er ýmislegt
sem mér finnst leiðinlegt.
Stutt uppskrift að
góðri helgi:
Vakna ekki of
seint, borða
góðan mat, hitta
kæra vini og
helst plana ekki
of mikið og bara
sjá hvað gerist.
Fjölhæf Þrátt fyrir að vera haldin sviðsskrekk hefur Lovísa spreytt sig á ótrúlegustu sviðum frá því fyrsta plata hennar kom út.