Fréttablaðið - 06.11.2009, Page 40

Fréttablaðið - 06.11.2009, Page 40
 6. NÓVEMBER 2009 FÖSTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● jólahlaðborð Það var árið 1980 sem veitinga- húsið Brauðbær/Óðinsvé aug- lýsti „danskt jólahlaðborð“ í há- deginu. Í Morgunblaðinu árið 1985 er skrifuð grein um þetta uppátæki, sem þá hafði staðið yfir í fimm ár. Segja veitingamenn þar að jólahlaðborðið sé sótt í danska fyrirmynd og jólahlaðborð sé eitthvað sem Danir „hugga“ sig við í aðventunni. Þá sé jóla- hlaðborðið svipað í hugum Dana og þorrabakkinn hjá okkur. Næstu árin á eftir juk- ust vinsældir jólahlaðborða og þau unnu sér fastan sess á mörgum veitingahúsum og eru orðin að föstum lið á aðventu. En jólaborðið var þó enn um sinn auglýst undir „dönsku“ þema og auglýsti Hótel Saga jóla hlaðborð „að dönskum hætti“ og með „dönsku snapsi“ og árið 1987 auglýsti Holiday Inn einnig jólahlaðborð með „dönsku þema“. Árið 2003 var ár jólahlað- borðanna ef marka má dag- blöðin, en þá var fólk líka farið að panta sér sæti á hlaðborðinu með miklum fyrirvara, jafnvel í september og október. Nú má segja að réttirnir á jólahlaðborðinu séu danskir í grunninn þótt íslenskt hráefni fái alltaf meira og meira að njóta sín. - jma Fyrstu jólahlaðborðin voru meðal annars haldin á Hótel Óðinsvéum. Jólahlað- borðin voru með dönskum brag í byrjun enda sótt þangað. Jólamatseðill á rólegum og „rjóm- antískum“ nótum verður í notk- un á Hótel Klaustri Kirkjubæjar- klaustri laugardagskvöldin 5. og 12. desember og Sigurður Daði Friðriksson matreiðslumaður sér um að töfra fram hvern réttinn eftir annan. Þá verða líka sértilboð á gistingu og morgunverði fyrir þá sem taka allan pakkann, 9.250 krónur fyrir manninn eða 18.500 krónur fyrir parið en annars kost- ar jólahlaðborðið 6.250 krónur á mann. Sérstakur barnaafsláttur er svo fyrir sex til tólf ára börn. Þess má geta að Kirkjubæjar- klaustur er annálað fyrir náttúru- fegurð og veðursæld. - gun Rólegheit og rjómantík Rómantíkin ræður ríkjum á Hótel Klaustri. Nokkrir herramenn hafa verið fastagestir á fyrsta jólahlað- borði haustsins á Hótel Loftleiðum í fjölda ára. Það er orðin hátíðleg hefð og Örn Ottesen, fjármálastjóri Nóa Siríus, sem er einn úr hópnum, útskýrir hvers vegna. „Ákveðinn kjarni er búinn að hitt- ast reglulega í sundi þrisvar í viku í fimmtán ár, frá því Árbæjarlaug var opnuð 1994. Alltaf í hádeginu. Fleiri hafa svo bæst í hópinn. Við köllum okkur pottorma og umræðu- efnið í pottinum er yfirleitt matur og hvaða vín sé best með hvaða rétti. Við erum svoddan matmenn. Fljótlega eftir að sá siður komst á að hittast í lauginni datt okkur í hug að skella okkur á jólahlaðborð saman og byrjuðum á að fara á Hótel Borg. Þar voru þá Ida David- sen og Marentza Poulsen að sjá um matinn. Síðan fóru þær þaðan út á Loftleiðir og við fylgdum þeim. Ida hefur verið stopult síðan en Mar- entza staðið vaktina og við mætum alltaf fyrsta kvöldið sem hlaðborðið er.“ Þetta eru sem sagt vanafastir menn. Örn segir þá jafnan fá sér einn forrétt áður en þeir setjast í salinn og svo sé Marentza alveg búin að kenna þeim hvernig þeir eigi að umgangast jólahlaðborðið. „Mörgum hættir til að fara að borð- inu og fá sér á fullan disk. Þá vita þeir ekkert hvað þeir eru að gera,“ segir hann með áherslu. „Marentza kenndi okkur að taka eitt, í mesta lagi tvennt á diskinn í einu, borða rólega og njóta bragðsins. Hún sagði við okkur: „Þið megið fara hundr- að sinnum að borðinu en ég vil ekki sjá ykkur fara með hlaðna diska til baka!“ Svo við förum margar ferðir og höfum gaman af. Dönsku hefð- irnar kringum jólahlaðborðið eru alveg frábærar að mínum dómi. Smurða brauðið er það sem við sækjum mikið í og svo smökkum við alla hina réttina líka.“ Nú styttist í þessa miklu matar- hátíð og Örn segir þá félaga fyrir löngu farna að hlakka til enda sé byggð upp spenna allt árið. „Um leið og jólahlaðborðið er búið förum við að telja niður til þess næsta. Það er auðvitað löng bið eftir 51. föstu- deginum en nú er bara einn eftir þar til sá rétti kemur.“ - gun Við köllum okkur pottorma Pottormarnir og smurbrauðsjómfrúin. Bjarni Sigurðsson, Oddur Eiríksson, Sigurjón Stefánsson, Marentza Poulsen, Eyþór Tómas Heiðberg, Karl Nilson Guðbjartsson, Bjarni Ásbjörnsson og Örn Ottesen Hauksson. MYND/MOTIV/JÓN SVAVARSSON Jólahlaðborðin til sög- unnar á 9. áratugnum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.