Fréttablaðið - 06.11.2009, Page 62
38 6. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Íslenska leikkonan Anita
Briem hefur verið dugleg
við sækja viðburði í Holly-
wood enda er slíkt alveg
bráðnauðsynlegt þegar fólk
er að koma sér á framfæri í
hinni stóru Hollywood.
Anita var meðal gesta í boði sem
góðgerðarsamtökin Big Broth-
ers/Big Sisters hélt á Beverly
Hills-hótelinu í miðborg Holly-
wood. Þar var meðal annars valin
besta unga tilvonandi stórstirnið
og maður ársins valinn. Samtök-
in hafa verið starfandi í Banda-
ríkjunum í heila öld og hafa það
að leiðarljósi að hjálpa ungu fólki
sem býr við þröngan kost að ná
takmarki sínu.
Anita var að sjálfsögðu mynduð
af ljósmyndara Getty Images en
þær myndir birtast á opinberri
vefsíðu myndaveitunnar og er
aðgengileg öllum helstu fjölmiðl-
um heims. Hins vegar virðist ljós-
myndarinn hafa kolfallið fyrir
handtöskunni sem Anita bar og
skónum hennar því þetta tvennt
var myndað alveg sérstaklega.
Ekki kemur fram hvaðan skórn-
ir og taskan eru en þóttu augsýni-
lega nokkuð smart.
Anita er nú að ljúka við að
leika í kvikmyndinni Dead of the
Night á móti sjálfu Ofurmenninu,
Brandon Routh. Myndin er byggð
á vel þekktri ítalskri myndasögu
og hefur af þeim sökum hlotið
nokkra umfjöllun meðal mynda-
sögunörda. freyrgigja@frettabladid.is
Veski og skór An-
itu vekja athygli
TASKAN OG SKÓRNIR Anita var í skóm sem vöktu mikla athygli á góðgerðarsam-
komu í Beverly Hills nýverið. Þá þótti veskið augljóslega smart. NORDICPHOTOS/GETTY
> ERFITT AÐ GRENNAST
Ofurfyrirsætan Heidi Klum segist eiga
erfitt með að losna við aukakílóin sem
hún bætti á sig þegar hún gekk með
dóttur sína Lou. Dóttirin fæddist fyrir
þremur vikum og Klum er með
böggum hildar yfir því að vera
ekki búin að ná öllu af sér.
„Þetta er erfiðara nú með
fjórða barnið en með hin.
Ég er líka orðin 36,“ segir
hún.
Tónleikaserían Duplex verður haldin í
fyrsta sinn á Sódómu og Batteríinu á laug-
ardaginn. Þar koma fram Retro Stefson,
XXX Rottweiler, Sykur, Snorri Helgason,
Nolo og DJ Musician.
„Hugmyndin spratt upp af annarri hátíð,
Innipúkanum, sem var líka á Sódómu og
Batteríinu,“ segir Steinþór Helgi Arn-
steinsson, einn af skipuleggjendunum.
„Þarna getur fólk labbað á milli staða enda
er dagskránni raðað þannig að þú getur til
dæmis byrjað á Sódómu og farið síðan yfir
á Batteríið.“
Duplex verður haldin fyrsta laugardags-
kvöld hvers mánaðar og boðið verður upp
á margt af því forvitnilegasta sem er að
gerast í íslenskri tónlist. „Ég held að þetta
ætti að verða skemmtileg viðbót í tónlist-
arlífið,“ segir Steinþór, sem kom einnig að
skipulagningu tónleikaraðarinnar Réttir í
haust. „Þetta er mun einfaldara og ekkert
eins og Réttir eða Airwaves, enda er þetta
bara eitt kvöld á tveimur stöðum.“ Miða-
verð er 1.000 kr og gildir miðinn, eða öllu
heldur armbandið, á báða staðina. -fb
Duplex haldin í fyrsta sinn
SYKUR Hljómsveitin Sykur er á
meðal þeirra sem spila á Dup-
lex á laugardaginn. MYND/HÖRÐUR
„Davíð Oddsson ólst þarna upp til átta
ára aldurs. Hann er meira að segja
fæddur í húsinu,“ segir athafnamaður-
inn Valdimar Árnason.
Valdimar vinnur nú að því að breyta
hinum sögufrægu Ljósheimum á Sel-
fossi í farfuglaheimili. Húsið hefur
staðið autt í tvö ár, en héraðsfrétta-
blaðið Dagskráin sagði frá áformum
Valdimars í gær. Dvalarheimili aldr-
aðra var síðast í húsinu, en það var á
sínum tíma byggt yfir héraðslækninn
Lúðvík Norðdal, afa Davíðs Oddsson-
ar, sem rak læknastofu í kjallaranum.
„Það er gríðarlegur og mjög vaxandi
iðnaður hér á Selfossi,“ segir Valdi-
mar spurður um ferðamannastraum-
inn í gegnum bæinn. „Það er ekk-
ert farfuglaheimili hér í kring, nema
á Eyrarbakka. Þar er Anna Sigríður,
systir mín, með farfuglaheimili.“
Valdimar hyggst safna sögum fólks-
ins sem eyddi ævikvöldinu í húsinu
og hengja á veggi farfuglaheimilisins
ásamt myndum. „Ég ætla að hafa sög-
urnar bæði á íslensku og ensku. Það
verður gaman fyrir ferðamennina að
sjá gömul skrítin andlit og lesa góða
sögu fyrir neðan,“ segir hann. „Við
ætlum að reyna að halda í þessi
gömlu sögulegu gildi.“
Farfuglaheimilið tengst Hostel-
keðjunni í Reykjavík og opnar 1.
maí á næsta ári. 25 tveggja
manna herbergi verða í
boði ásamt svefnpoka-
plássi fyrir 30 manns
og að sjálfsögðu
morgun matur fyrir
gestina. - afb
Farfuglar á fæðingarslóðum Davíðs
SÖGUSLÓÐIR Valdimar hyggst halda
í gömlu sögulegu gildin. MYND/MHH
Robin Wright, fyrrverandi eigin-
kona Sean Penn, hefur flutt með
börnin sín frá Hollywood. Hún
segir samfélagið í kvikmyndaborg-
inni ekki vera heilbrigt á nokk-
urn hátt. „Þetta samfélag er hald-
ið þráhyggju gagnvart frægð og
frægu fólki,“ sagði Wright á blaða-
mannafundi nýverið en hún sótti
um skilnað frá hinum skap stóra
Penn í ágúst síðastliðnum.
Penn segir hjónaleysin Brad Pitt
og Angelina Jolie vera víti til varn-
aðar.
Þau gangi í gegnum helvíti á
hverjum einasta degi í baráttu
sinni við ljósmyndara sem elti þau
og börnin þeirra á röndum.
Farin frá Hollywood
ÆTLI HANN PANTI GIST-
INGU? Davíð Oddsson
fæddist í húsinu sem
Valdimar breytir nú í
farfuglaheimili.
DAGSKRÁIN:
SÓDÓMA
22.30 - Nolo
23.30 - Snorri Helgason
01.00 - Retro Stefson
BATTERÍ
23.00 - DJ Musician
00.00 - Sykur ásamt
gestum
01.30 - XXX Rottweiler
The Capacity to
Avoid Incapacity
AR
G
H
1
1/
20
09
Virkjum fjölbreyttari
mannauð
Félags- og
tryggingamálaráðuneytiðNordisk Ministerråd
Norræn ráðstefna
Hilton Reykjavik Nord
ica hótel
9. og 10. nóvember 2
009.
Öllu fólki er mikilvægt
að vera virkir þátttake
ndur í verðmætasköpu
n
í samfélaginu. Á ráðst
efnunni „Virkjum fjölb
reyttari mannauð“ fjal
lar
fagfólk á sviði endurhæ
fingar frá öllum Norðu
rlöndunum um leiðir t
il
að virkja fólk á ný sem
staðið hefur utan vinn
umarkaðarins vegna
sjúkdóma, slysa eða la
ngtímaatvinnuleysis.
Rætt verður um aðstæ
ður á íslenskum vinnu
markaði í ljósi krepp-
unnar, kynnt ný skýrsl
a um þróun atvinnuás
tands á síðustu árum h
já
ríkjum OECD og fjallað
um nýsköpun á sviði s
tarfsendurhæfingar.
Sjónum verður sérstak
lega beint að ungu fól
ki.
Ráðstefnugestir geta t
ekið þátt í málstofum
um starfsendurhæfing
u,
atvinnumál ungs fólks
, langtímaatvinnuleysi
og nýja aðferðafræði
til
að efla virkni atvinnula
usra.
Ráðstefnan stendur kl
. 17.30–19.30 mánud
aginn 9. nóvember og
kl. 9.00–16.30 þriðjud
aginn 10. nóvember.
Ráðstefnan fer fram á
ensku. Hún er öllum o
pin eins lengi og húsrú
m
leyfir og aðgangur er ó
keypis.
Skráning á: http://you
rhost.is/arbejde-til-all
e-2009
Dagskrá er birt á: http
://www.felagsmalarad
uneyti.is/radstefnur/