Fréttablaðið - 06.11.2009, Side 64
40 6. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
Hin ljúfsára jólamynd,
Desember, var forsýnd í
Háskólabíói á miðvikudag
en myndin verður tekin til
almennra sýninga í dag.
Desember gerist í Reykjavík á jól-
unum og fjallar um popparann
Jonna sem snýr heim til Íslands
eftir að hafa flutt óvænt til Argent-
ínu nokkrum árum áður. Leikstjóri
myndarinnar er Hilmar Oddsson
og með aðalhlutverkin fara Tómas
Lemarquis og Lay Low.
FRUMSÝNING Á DESEMBER
GLATT Á HJALLA Það var glatt á hjalla á forsýningunni í gær. Hér óskar leikarinn Ingvar E. Sigurðsson aðstandendum myndarinnar
til hamingju. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ARI KRISTINSSON Kvikmyndatökumaðurinn
og leikstjórinn Ari Kristinsson var meðal
frumsýningargesta.
THOR VILHJÁLMSSON Rithöfundurinn
Thor Vilhjálmsson mætti á frumsýn-
inguna og tók í spaðann á Tómasi
Lemarquis.
Tónlist ★★
Surprise
Lára
Ekki nógu óvænt
Lára munstrar landsliðsmenn úr
bransanum á þriðju plötuna sína.
Þarna eru kempur eins og Jakob
Smári Magnússon bassaleikari, Pétur
Hallgrímsson gítarleikari og Arnar Þór
Gíslason trommari. Seint verður því
hægt að segja að platan sé ekki þétt
og vel spiluð og hljómurinn á henni er
líka mjög traustvekjandi. Pró, eins og
sagt er. Lára hamrar fílabeinið, syngur
af öryggi en heldur tak-
markaðri útgeislun
á köflum, semur
lögin og textana.
Lára hefur áður gert kassagítarpopp og oft verið á
ljúfu nótunum. Nú er hún í mun meira stuði og fer
miklu poppaðri slóðir en áður. Stundum hljómar hún
á pari við pjúra poppdívur eins og Avril Lavigne – til
dæmis í titillaginu sem opnar plötuna með trukki – en
þó er oftast styttra í „listrænni“ poppdívur eins og
Reginu Spektor og Fiona Apple.
Í bíómyndum skiptir söguþráðurinn öllu máli.
Það skiptir engu máli hversu myndir eru dýrar
eða leikararnir myndarlegir – ef söguþráður-
inn er klisjukenndur og þá er myndin slöpp.
Í tónlist snýst þetta um melódíurnar. Skilja
lögin eitthvað eftir sig? Langar mann til að
heyra þau aftur? Þrátt fyrir alla hæfileikana
og vandaða umgjörðina þá flaskar Lára á
þessu. Sem poppplötu vantar hana fleiri góð
lög, sterkara heilalím. Þessi plata stendur því
ekki undir nafni. Hið óvænta vantar.
Dr. Gunni
Niðurstaða: Poppuðustu plötu Láru vantar bara
góðu lögin.
Lögfræðingur breska viðburða-
fyrirtækisins élan annars vegar
og lögfræðingur Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar og Ingibjargar
Pálmadóttur hins vegar reyna nú
að semja vegna ógreidds reikn-
ings og ágreinings um lokaupp-
gjör í tengslum við brúðkaup
þeirra hjóna í nóvember fyrir
tveimur árum. Eins og Fréttablað-
ið greindi frá í gær var fyrirtöku
málsins frestað á miðvikudaginn
og ekki liggur fyrir hvort eða hve-
nær það verður tekið fyrir að nýju.
„Ef okkur tekst að semja þá verður
málið fellt niður. Ef það tekst ekki
mun dómari ákveða nýja dagsetn-
ingu fyrir nýja fyrirtöku málsins,”
segir Eiríkur Gunnsteinsson, lög-
fræðingur élan.
Viðburðafyrirtækið breska sá
um alla skipulagningu á brúð-
kaupi Jóns Ásgeirs og Ingibjarg-
ar sem haldið var með mikilli við-
höfn. Séra Hjörtur Magni gaf þau
saman í Fríkirkjunni að viðstödd-
um helstu fyrirmennum þjóðar-
innar meðal annars forsetanum,
Hreiðari Má Sigurðssyni og Björg-
ólfi Guðmundssyni. Veislugestir
héldu síðan í Hafnarhúsið þar sem
var dansað langt fram eftir nóttu
undir taktföstum undirleik Gus
Gus. Ekki liggur fyrir hversu há
upphæðin er sem deila fyrirtæk-
isins og hjónanna snýst um. - fgg
Samningaleiðin reynd
GLÆSILEGUR VIÐBURÐUR Ekkert var til
sparað þegar Jón Ásgeir og Ingibjörg
Pálmadóttir gengu í það heilaga fyrir
tveimur árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Tveir meðlimir Kardashian-fjöl-
skyldunnar stigu inn í hnefaleika-
hringinn þar sem þau öttu kappi
við fólk sem hafði greitt háar fjár-
hæðir til þess að geta lúskrað á
einum Kardashian. Loturnar
fóru fram í Commerce-spila-
vítinu í Kaliforníu og var
hluti af góðgerðaviðburði
sem haldinn var til að safna
fé til styrktar samtökunum
Dream Foundation.
Það voru systkinin Rob
og Kim Kardashian sem
öttu kappi við karlmann
og konu og lauk bar-
dögunum á þann veg
að Rob var fluttur á
sjúkrahús en Kim fékk stærðarinnar
glóðarauga. „Rob missti hjálminn
sinn og þegar hann beygði sig eftir
honum fékk hann högg í höfuðið og
endaði á spítala með heilahrist-
ing. Við vorum öll miður okkar
vegna þessa. Stúlkan sem ég
barðist við var hörð og sú gat
látið höggin dynja,“ skrifaði
Kim á bloggsíðu sinni eftir
bardagann.
Kýld fyrir peninga
HART BARIST
Kardashian-fjölskyldan
keppti í hnefaleikum.
Kvikmyndir ★★★★
Paranormal Activity
Leikstjóri: Oren Peli
Alvöru hryllingur
Hjón verða vör við ýmsa yfirnáttúrulega hluti í húsinu sínu að næturlagi:
raddir, andardrátt og klór á veggjum. Katie er sannfærð um að þar sé
einhver vera sem vill þeim illt, og ákveður Micah að setja upp myndavél í
svefnherbergi þeirra til þess að fylgjast með verunni.
Paranormal Activity er ansi tilkomumikil frumraun leikstjórans og
handritshöfundarins Oren Peli. Líkt og í kvikmyndinni Blair Witch Project er
áhorfendum talið trú um að hér sé á ferðinni raunverulegt myndefni. Allir
leikarar myndarinnar eru óþekktir og myndin er öll tekin upp á handhelda
myndavél sem er
meðhöndluð af
aðalleikurunum. Í
raun er uppsetning
myndarinnar eins
einföld eins og
hægt er að hugsa
sér. Áhorfend-
ur fylgjast með
daglegum hlutum
í lífi þeirra hjóna
og að næturlagi
heimsækir yfirnátt-
úruleg vera þau.
Leikstjóranum Peli
tekst með persónulegu útliti og áferð myndarinnar að skapa eitt magnað-
asta andrúmsloft í hrollvekju sem ég hef upplifað í langan tíma.
Hjónakornin eru leikin af nýstirnunum Katie Featherston og Micah Sloat,
og eru þau virkilega sannfærandi í hlutverkum sínum. Taugaveiklun og óða-
got þeirra eru ekki frábrugðin þeim sem maður einmitt hefði haldið að fólk
myndi grípa til við samskonar aðstæður.
Nánast allar hrollvekjur í dag einblína á snögga klippingu, hraða mynda-
töku og virðast aðstandendur alltaf stíga sama feilskrefið: að afhjúpa
andstæðinginn of snemma, en það gerist ekki í Paranormal Activity. Ekki eru
þær margar hrollvekjurnar sem hafa látið mig ríghalda í armana á sætinu og
langað að skrækja eins og smástelpa, en Paranormal Activity er ein þeirra.
Vignir Jón Vignisson
Niðurstaða: Fantagóð hrollvekja sem er meðal þeirra bestu síðustu ár.
alltaf í leiðinni!
oða pylsu
5 Líf
ubrauð
ÓDÝRT
ALLA DAGA!
G
g
yls
5
o
p299kr.