Fréttablaðið - 06.11.2009, Blaðsíða 65
FÖSTUDAGUR 6. nóvember 2009 41
Kelly Osbourne hélt upp á 25 ára
afmæli sitt í síðustu viku og seg-
ist hún hafa fengið dásamlegar
gjafir frá vinum og vandamönn-
um. Bestu gjafirnar segir hún þó
vera gjöfina frá unnusta sínum,
fyrirsætunni Luke Worrall, en sá
gaf henni demantshring. „Hann
er búinn að vera að safna fyrir
þessu. Hringurinn er hjartalaga
úr hvítagulli og er alveg dásam-
lega fallegur.“ Gjöfin
frá foreldrum henn-
ar var þó ekki síðri
en þau gáfu henni
hvolp. „Hvolpurinn
er svartur og af teg-
undinni Pomeranian.
Hann er álíka stór
og peningaseð-
ill. Ég kalla
hann Sid og
hann er æði,“
sagði Kelly.
Ánægt af-
mælisbarn
Tónlist ★★★
Vinalög
Friðrik Ómar og Jógvan
Vel heppnað og
vingjarnlegt
Friðrik Ómar
og Færeying-
urinn Jógvan
Hansen
eru báðir
brosmildir og
snoppufríðir
söngvarar
sem leggja mikið upp úr fallegu
útliti og fagmannlegri framkomu.
Umbúðirnar eru góðar, rétt eins
og umslag þessarar tvöföldu plötu
ber með sér. Það sem meira er
og mikilvægara, innihaldið er líka
í fínu lagi. Hugmyndin að baki
verkefninu er sniðug og eflaust
löngu tímabær, eins og vinsældir
plötunnar sýna reyndar svart á
hvítu. Friðrik syngur þekkt færeysk
lög öðrum megin á meðan Jógvan
syngur íslenska óða hinum megin,
lög á borð við Ég er á leiðinni, Þú
komst við hjartað í mér og Rómeó
og Júlía. Báðir skila þeir sínu vel.
Friðrik syngur upphafslagið Eros
mjög fallega og í Syngjum saman
á Ragnheiður Gröndal sterka inn-
komu. Lögin Þú og hið þjóðlega
Lífsmyndin eru einnig prýðileg.
Þýddir textar Valgeirs Skagfjörð eru
sömuleiðis vel heppnaðir. Gaman
er að heyra Jógvan syngja íslensku
lögin á færeyskan máta þó svo
að útsetningarnar séu oftast nær
lítt frábrugðnar frumútgáfunum.
Best er upphafslagið Álfar þar sem
Jógvan gefur Friðriki ekkert eftir
hvað söngtilþrif varðar.
Freyr Bjarnason
Niðurstaða: Vel heppnuð plata
með tveimur vinalegum söngvur-
um.
„Print Magazine sendi mér einfaldlega tölvu-
póst þar sem fram kom að ég hefði verið valinn
í hundrað manna hóp sem var boðið að senda
inn möppu, sem ég gerði auðvitað. Nokkrum
mánuðum síðar fékk ég annan póst þar sem
mér var tilkynnt að ég væri einn af tuttugu
hönnuðum sem fengju umfjöllun í blaðinu.
Persónulega finnst mér þetta mikill heiður því
margir efnilegir myndskreytarar, hönnuðir og
ljósmyndarar hafa áður verið valdir sem New
Visual Artist,“ segir grafíski hönnuðurinn
Sveinn Þorri Davíðsson, sem var valinn New
Visual Artist 2009 af tímaritinu Print. Hann
er þriðji Íslendingurinn sem hlýtur þann titil,
en áður hafa Sigurður Eggertsson og Katrín
Pétursdóttir fengið nafnbótina. Sveinn Þorri
segir að titlinum hafi ekki fylgt nein verðlaun,
aðeins umfjöllun. „Ég fékk engin verðlaun,
bara grein um mig í blaðinu og opnu með verk-
unum mínum. Þetta er sennilega bara hlutur
sem er gott að hafa á ferilskránni sinni.“
Sveinn Þorri er fæddur og uppalinn á
Akureyri og eftir tvö ár á náttúrufræðibraut
Menntaskólans á Akureyri ákvað hann að
söðla um og hóf myndlistarnám. „Ég lærði
myndlist í Verkmenntaskólanum á Akureyri
í einhvern tíma. Eftir það fór ég suður og hóf
nám við Listaháskólann og útskrifaðist þaðan
í vor.“
Sveinn Þorri hefur verið búsettur í Berlín
síðastliðna sex mánuði og kann að eigin sögn
vel við sig í borginni. „Sigurður Eggertsson,
gamall vinur minn frá Akureyri, bauð mér
að koma og leigja með sér í Berlín þannig að
mér þótti ákvörðunin um að flýja land ekki
erfið. Ég byrjaði að vinna á auglýsingastof-
unni Plantage núna í október og líkar mjög vel.
Planið er að koma sér fyrir hérna í Berlín og
vera hér eitthvað áfram. Hér er fínt að vera,“
segir Sveinn Þorri að lokum. - sm
Titillinn góður í ferilskrána
MIKILL HEIÐUR Sveinn Þorri Davíðsson var kosinn New
Visual Artist ársins 2009 af tímaritinu Print Magazine.
KELLY OSBOURNE