Fréttablaðið - 14.11.2009, Qupperneq 2
2 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
geta ekki hitt hópinn. Vonist hann
til að bréf sitt svari einhverju af
þeim spurningum sem bréfritar-
ar leita svara við. Þá vísar hann á
Franek Rozwadowski, sendifulltrúa
AGS hér á landi. Hann muni glaður
skýra afstöðu AGS.
Gunnar Skúli segir nokkra úr
hópnum hafa fundað mörgum sinn-
um með Rozwadowski. Svör hans,
sem varði greiðsluþol Íslands og
afstöðu sjóðsins tengda Icesave-
deilunni, séu ekki fullnægjandi og
því hafi verið leitað eftir fundi með
framkvæmdastjóranum.
jonab@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL Einkavæðing bank-
anna lagði grunninn að of mikilli
áhættusækni þeirra á sama tíma og
regluverk og eftirlit með þeim var
lélegt. Rætur vandans hér liggja í
fjármálageiranum og vill Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn (AGS) koma í
veg fyrir að slíkur harmleikur endur-
taki sig. Hann mun ekki þrýsta á um
einkavæðingu bankanna.
Þetta er á meðal þess sem fram
kemur í svarbréfi Dominiques
Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra
AGS, til Gunnars Sigurðssonar,
leikara og leikstjóra. Bréfið var
sent í fyrradag en birt á vef AGS
í gær.
Bréf framkvæmdastjórans var
svar við bréfi sem fimmtán manns
sendu honum í októberlok. Þar á
meðal voru Einar Már Guðmunds-
son rithöfundur, Halla Gunnars-
dóttir, alþjóðastjórnmálafræðing-
ur og fyrrverandi aðstoðarmaður
Ögmundar Jónassonar, og Lilja
Mósesdóttir alþingismaður. Í bréf-
inu var óskað eftir því að svar yrði
sent á heimili Gunnars.
Gunnar, sem var staddur í Wash-
ington í Bandaríkjunum, hafði ekki
séð bréfið þegar Fréttablaðið náði
tali af honum síðdegis í gær.
„Við erum nýbúin að sjá bréfið.
Við hefðum viljað fá það sent til
okkar en ekki að það hefði verið
birt á netsíðu AGS. Þá höfðum
við vænst þess að hitta sjóðsstjór-
ann. En hann vill það ekki,“ segir
Gunnar Skúli Ármannsson, einn
þeirra sem sendu bréfið til Strauss-
Kahn. Hann segir óráðið um næstu
skref.
Í svarbréfi framkvæmdastjóra
AGS biður hann forláts á því að
Nánar á
eða í síma
Flug til og frá Alicante með sköttum
og öðrum greiðslum, frítt fyrir golfsettið í flug,
gisting á 4* Hotel Villaitana ásamt morgunverði,
7 golfdagar með ótakmörkuðu golfi og
íslensk fararstjórn.
Verð á mann í tvíbýli:
117.800 kr.
Áramótaferð og
Opna Express á
La Sella, Spáni
Verð á mann í tvíbýli:
169.600 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og frítt
fyrir golfsettið í flug. Akstur til og
frá flugvelli. Gisting á 5* Marriott
Hóteli sem er rétt við golfvöllinn. 8
golfdagar með 27 holum á dag, fríar
kerrur og Opna Expressmótið. Ísle sk
fararstjórn.
28. des. - 5. jan. 2010
Fararstjóri: Björn Eysteinsson
Ein skærasta perla golfvalla á
Costa Blanca svæðinu
Ómar, fölnaðirðu þegar þú
fréttir af þessu?
„Nei, en þetta fólk er ekki alveg að
kveikja á perunni.“
Heilbrigðisráðuneytið ætlar að banna
átján ára og yngri að nota ljósabekki.
Ómar Ómarsson, eigandi sólbaðsstof-
unnar Smart, vill að aldurstakmarkið sé
16 ár.
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur karl-
maður hefur verið dæmdur í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í sex mán-
aða fangelsi, skilorðsbundið, fyrir
sérstaklega hættulega líkamsárás.
Þá var hann dæmdur til að greiða
þeim sem hann réðst á tæpar 360
þúsund krónur í skaðabætur.
Árásarmaðurinn sló með gler-
flösku í höfuð mannsins sem hlaut
skurð ofan við hársvarðarlínu
vinstra megin. Sauma þurfti með
sex sporum.
Maðurinn hugðist athuga líðan
árásarmannsins sem lá í gólf-
inu eftir að hafa lent í átökum á
skemmtistaðnum Nasa, en afleið-
ingarnar urðu ofangreindar. - jss
Skilorð og skaðabætur:
Skar karlmann
með glerflösku
ALÞINGI Paddan skógarmítill, sem
er blóðsuga sem leggst á spendýr
og fugla, er líklega orðin land-
læg á Íslandi. Hún getur verið
varasöm fólki
enda getur hún
borið alvarlega
sýkla í menn og
valdið bakteríu-
sýkingu.
Á undanförn-
um árum hafa
þrjú tilvik sýk-
innar greinst í
fólki en ekkert
þeirra var skráð
með uppruna á Íslandi.
Þetta kemur fram í svari heil-
brigðisráðherra við fyrirspurn
Sivjar Friðleifsdóttur.
Sýking af völdum skógarmítils
er læknanleg með sýklalyfjum.
Heilbrigðisráðherra ætlar að fela
sóttvarnalækni að fræða almenn-
ing um lífsferil skógarmítils og
hvernig forðast má skaða af hans
völdum. - bþs
Skógarmítill líklega landlægur:
Fólk frætt um
lífsferli og skaða
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður-
nesjum og Útlendingastofnun
vísuðu í gær tveimur frönskum
karlmönnum úr landi. Við
afskipti lögreglu vaknaði grun-
ur um að þeir væru hingað
komnir í ólögmætum tilgangi.
Í fórum mannanna fannst svo
búnaður sem ætlaður er til að
svíkja fé af fólki með blekking-
um og fölsun evruseðla. Sams
konar búnaður hefur áður verið
tekinn af mönnum sem hingað
hafa komið í sama tilgangi.
Við ákvörðun Útlendinga-
stofnunar var litið til frávísun-
arheimilda í útlendingalögum
þar sem skírskotað er til alls-
herjarreglu og almannaöryggis.
- jhh
Frökkum vísað úr landi:
Ætluðu að
svíkja út fé
STJÓRNMÁL „Annars vegar er um að ræða sjónarmið
þeirra sem veita þessu máli fullan stuðning og svo
hinna sem hafa efasemdir,“ segir Ögmundur Jónas-
son, þingmaður Vinstri grænna, um afstöðu meiri-
hluta efnahags- og skattanefndar til frumvarps um
ríkisábyrgð vegna Icesave. Nefndarmenn Sam-
fylkingarinnar og VG standa að tveimur álitsgerð-
um sem sendar verða fjárlaganefnd þingsins. Með
Ögmundi starfar Lilja Mósesdóttir í nefndinni sem
hefur opinberlega lýst því yfir að hún muni ekki
styðja frumvarpið.
Ögmundur vill ekki meina að meirihlutinn í
nefndinni sé klofinn og ástæðulaust sé að gera
mikið úr því þó að nefndarmenn stjórnarflokkanna
sjái málið ekki með sama hætti. „Það sem gerist í
þessari nefnd er að veita álit og miðla upplýsingum
til fjárlaganefndar. „Það er svo fjárlaganefnd sem
afgreiðir málið inn í þingið og því er ekki ástæða til
að gera mikið úr þessu.“
Ögmundur hafnar því að gefa upp hver afstaða
hans er til frumvarpsins eftir að því var breytt.
Hann segist hafa talað fyrir því að málið fái þing-
lega meðferð og þá komi afstaða hans í ljós. - shá
Meirihluti efnahags- og skattanefndar skilar tveimur álitum um Icesave:
Erum ósammála ekki klofin
ÖGMUNDUR JÓNASSON Hafnar því að meirihluti nefndarinnar
sé klofinn í afstöðu til frumvarps um ríkisábyrgð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Einkavæðing bank-
anna felldi landið
Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir lélegt eftirlit með íslensku
bönkunum eftir einkavæðingu þeirra hafa lagt grunn að fjármálakreppunni
hér. Hann svaraði í gær fimmtán einstaklingum sem leituðu svara um stöðuna.
SJÁVARÚTVEGUR Elliði Vignisson,
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
hefur skrifað sjávarútvegsráð-
herra vegna nýrrar reglugerðar
um að allur fiskur til útflutnings
skuli vigtaður hér á landi.
Elliði fer fram á að reglugerðin
verði endurskoðuð. Ástæðan er sú
að í Vestmannaeyjum er einfald-
lega ekki til búnaður til að vigta
allan fisk sem berst á land.
Í bréfi bæjarstjórans segir einn-
ig að bæjaryfirvöld hafi veruleg-
ar áhyggjur af þeim fyrirsjáan-
legu afleiðingum sem það hefur í
för með sér að brjóta upp sam-
starf útgerða í kringum sölumál
og markaðssetningu við erlenda
fiskmarkaði.“ - shá
Endurskoða þarf reglugerð:
Ekki hægt að
vigta allan fisk
„Við, undirrituð, teljum vafa undir-
orpið að sú samvinna sem Ísland
hefur tekið upp við Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn sé íslenskri þjóð til hagsbóta
og viljum fá úr því skorið. Það er
að renna upp fyrir okkur að stefna
sjóðsins er öðru fremur að skuld-
setja íslensku þjóðina til að gæta
hagsmuna fjármagnseigenda. Ábyrgð
Íslendinga er mikil og það er okkar að
koma í veg fyrir að komandi kynslóðir
verði skuldsettar með þeim hætti að
þær geti ekki staðið í skilum. Sem
almennir borgarar á Íslandi förum við
fram á skýr svör.
Skoðanakannanir sýna að meiri-
hluti íslensku þjóðarinnar er andvígur
frekara samstarfi við AGS. Þarna
vegur þyngst sú staðreynd að AGS
stillti íslenskum stjórnvöldum upp við
vegg í Icesave-deilunni við Breta og
Hollendinga. Það er óásættanlegt að
alþjóðastofnun hagi sér á slíkan hátt,
enda hefur þetta rúið sjóðinn því
trausti sem hann hafði á Íslandi.
Þar sem hagsmunir heillar þjóðar
og afkomenda okkar eru í húfi, förum
við hér með fram á fund með þér,
framkvæmdastjóra sjóðsins. Við vilj-
um ræða við þig efnahagsáætlun AGS
og fá skýringar á einstökum þáttum
hennar. Við munum leggja fram rök-
studda gagnrýni byggða á opinberum
gögnum. Fundurinn getur farið fram í
Reykjavík eða Washington eða annars
staðar ef það hentar. Afar brýnt er að
fundurinn fari fram sem allra fyrst og
eigi síðar en 15. desember 2009.“
ÚR BRÉFINU TIL STRAUSS-KAHN
VIÐSKIPTI Hreiðar Már Sigurðs-
son, Sigurður Einarsson, Bjarni
Ármannsson og Lárus Weld-
ing eru meðal tuttugu og átta
stjórnenda Kaupþings og Glitn-
is sem skattayfirvöld krefja um
þrjá milljarða króna í tengslum
við endurálagningu Ríkisskatt-
stjóra vegna söluréttarsamn-
inga. Þetta kom fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
Samkvæmt heimildum frétta-
stofunnar hefur Ríkisskatt-
stjóri nú sent bréf til um tíu
stjórnenda Kaupþings og Glitn-
is um endurákvörðun opinberra
gjalda vegna samninganna. Alls
munu tuttugu og átta stjórn-
endur Glitnis og Kaupþings fá
slíkt bréf. Restin af bréfunum
verður send út á næstu vikum.
Í heildina nemur endurálagning
um þremur milljörðum króna
en hæstu gjöldin nema um 200
milljónum króna.
Æðstu stjórnendur bankanna:
Skatturinn vill
þrjá milljarða
EINAR M.
GUÐMUNDSSON
LILJA
MÓSESDÓTTIR
GUNNAR
SIGURÐSSON
DOMINIQUES
STRAUSS-KHAN
EFNAHAGSMÁL Svartsýni er mun
meiri hér en í öðrum löndum og eru
Íslendingar líklegri til að upplifa
þunglyndi vegna efnahagsþreng-
inganna en í öðrum löndum, sam-
kvæmt niðurstöðum ársfjórðungs-
legrar könnunar WIN, samtaka
óháðra alþjóðlegra markaðsrann-
sóknafyrirtækja á áhrifum efna-
hagskreppunnar hér og í 23 öðrum
löndum.
Niðurstöðurnar benda til þess að
42 prósent landsmanna hafi fund-
ið fyrir depurð á þessu ári í kjölfar
efnahagshrunsins. Meðaltal þátt-
tökulandanna er sautján prósent.
Þá benda niðurstöðurnar til þess
að bjartsýni sé almennt að aukast á
sama tíma í öðrum löndum og svart-
sýni eykst hér.
Meginniðurstaðan á heimsvísu er
sú að fólk er almennt bjartsýnna en
í fyrri könnunum. Það sýnir minna
aðhald í eyðslu og lítur framtíðina
bjartari augum en fyrr á árinu.
Í samanburði við önnur lönd eru
Íslendingar almennt svartsýnir á
ástandið en þó virðist bjartsýnin
vera að aukast hægt og bítandi.
Mesta bjartsýnin mældist í Ástr-
alíu, Austurríki, Brasilíu, Kanada og
í Kúvæt. Íbúar í Argentínu, Búlgar-
íu, Frakklandi, Mexíkó og Rúmen-
íu voru svartsýnastir á sama tíma
ásamt Íslendingum.
Í tengslum við könnunina var rætt
við 23.659 einstaklinga í öllum þátt-
tökulöndum frá miðjum september
til loka síðasta mánaðar. - jab
Nærri helmingur Íslendinga hefur fundið til depurðar eftir efnahagshrunið hér:
Bjartsýni eykst almennt
ÞUNGLYNDI Ísland er á meðal sex landa
þar sem svartsýni mælist mest í alþjóð-
legri könnun.
SKÓGARMÍTILL
SPURNING DAGSINS