Fréttablaðið - 14.11.2009, Blaðsíða 28
28 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
K
yla er átta ára stelpa sem býr með foreldrum sínum og tveim-
ur bræðrum í Idaho í Bandaríkjunum. Hún fæddist strákur
en var ekki nema tveggja ára þegar henni var sjálfri ljóst að
hún væri í raun og veru stelpa. Fram á síðasta ár klæddi hún
sig þó eins og strákarnir, í stuttbuxur og stuttermabol. En foreldrar
Kylu tóku ákvörðun um að leyfa henni að lifa lífi stelpu, eftir að hún
greindist með kynsemdarröskun. Eftir tvö ár mun Kyla byrja að taka
inn andrógenblokkara, til að stöðva framleiðslu karlhormóna og aftra
því að hún verði að unglingsdreng. Þegar hún verður tólf eða þrettán
ára mun hún svo byrja að fá reglulegar sprautur með kvenhormóninu
estrógen, sem mun koma henni á kvenlegt kynþroskaskeið.
Óalgengt er að börn, sem upplifa sig af röngu kyni, fái leiðréttingu
á barnsaldri. Eftir því sem næst verður komist hefur aldrei komið upp
dæmi hér á landi um að barn undir sextán ára aldri hafi sóst eftir að
komast í það ferli.
Í langflestum tilfellum kviknar tilfinningin um að vera í röngum
líkama í kringum þriggja til fimm ára aldur og hverfur sjaldnast. Að
sjálfsögðu er mikilvægast að sjá til þess að viðkomandi sjái ekki eftir
ákvörðuninni seinna á lífsleiðinni, þótt margt mæli með því að hefja
meðferð eins snemma og unnt er, þar sem margar þær breytingar sem
verða á kynþroskaskeiði eru óafturkræfar.
Átta ára stelpa í líkama stráks
Kyla Lechelt er alveg eins og svo margar aðrar átta ára stelpur. Bleikur er uppáhaldsliturinn hennar, hún hefur gaman af því að
fá að prófa gloss mömmu sinnar og setja á sig naglalakk. En æska Kylu er að einu leyti allt öðruvísi en annarra stelpna á hennar
aldri. Fyrir ári var hún nefnilega lítill drengur og svaraði nafninu Kai. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skoðaði sögu Kylu.
KYLA Þegar hún var tveggja ára var hún sjálf með það á hreinu að hún væri stelpa,
þrátt fyrir að hafa líkama stráks. MYNDIR/GETTY
FJÖLSKYLDAN Foreldrar Kylu tóku ákvörðun um að ala hana upp sem stelpu, eftir að hún greindist með kynsemdarröskun sjö ára
gömul.
STELPUSTELPA Naglalökk og varagloss þykja Kylu spennandi. Hana langar að verða tískuhönnuður eða fyrirsæta þegar hún verður
stór.
Í HERBERGINU SÍNU Í dag er Kyla átta ára og lifir sambærilegu lífi við aðrar stelpur á
hennar aldri.
KAI Fyrir ári svaraði Kyla nafninu Kai og var einn þriggja sona foreldra sinna.