Fréttablaðið - 14.11.2009, Síða 26

Fréttablaðið - 14.11.2009, Síða 26
26 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR Hvers vegna ákvaðstu að skrifa starfssögu þína, frekar en eiginlega ævisögu? „Mig langaði ekki að skrifa ævi- sögu, ég er ekki svoleiðis týpa. Hins vegar var mér sagt að ég þyrfti að hengja saman ýmislegt sem ég hef gert. Mér fannst nú nóg að gert, ég hef komið svo miklu á vefinn; allir leiðararnir eru þar frá 1973, veit- ingarýni, ferðabækur, það sem ég skrifa fyrir hestamenn og fleira. En mér var sagt að ég þyrfti að búa til brú á milli allra þessara hluta. Ég ætlaði að setja það líka á vefinn, ég hafði ekki hug á bók. Þetta komst hins vegar í vindinn og útgefandi þefaði þetta uppi þannig að þetta endaði sem bók.“ Hvað stendur upp úr á ferlinum þegar þú lítur til baka? „Það er Dagblaðið frá 1975 til 1981. Titill bókarinnar er Frjáls og óháður, það er sú sigling sem ég hef verið á með öðru fólki. Á Tíman- um var fréttastofan frjáls og óháð blaðra innan um alla Framsóknar- pólitíkina. Ég kom inn í svoleiðis ástand og hélt áfram í því á Vísi og þegar Dagblaðið var stofnað. Munurinn á Dagblaðinu og DV var kannski sá að Dagblaðið var starfsmannafyrirtæki. Við vorum bara blankir og fátækir en það var rosa mikil stemning með okkur. DV var lengst af fínt fyrirtæki fjár- hagslega en stemningin ekki jafn fín og á Dagblaðinu; þetta var meira batterí. Það var heldur ekki sama stemning úti í bæ. Fólk fór ekki út á götuvígin fyrir DV, sem það fór fyrir Dagblaðið. Það er líka nokkuð sjaldgæft að starfsmenn í bransan- um stofni fyrirtæki utan um dag- blað.“ Hverjar eru markverðustu breyt- ingarnar á fjölmiðlum frá því þú byrjaðir og þar til þú lést af störfum? „Þær eru margar. En vinna blaða- mannsins er sú sama og áður. Menn vinna eins núna og fyrir fimm- tíu árum. Ef menn komust í þessa frjálsu og óháðu blöðru, sem er talin algild núna en var ekki þá, er það raunverulega sama blaðamennsk- an sem nú er stunduð og var þá. En umhverfið hefur breyst. Blöð voru mjög illa prentuð á gömlum og lélegum prentvélum. Nú eru notuð hámóðins tæki. Tölvan og netið hafa haft mikil áhrif á starf blaðamanna. Það er allt svo þægilegt núna sem var erfitt í þá daga.“ Losaði um flokkstengslin Hvernig metur þú þitt framlag til íslenskrar fjölmiðlunar? „Ég var þrjóskur í þessu allan tímann. Ég kom úr Menntaskól- anum í Reykjavík, sem var dálít- ið fúll og íhaldssamur; bæði skól- inn sem stofnun og krakkarnir líka. Þetta var uppskrúfuð stofnun fyrir upprennandi lögfræðinga og presta. Síðan fer ég til Vestur-Berl- ínar og það var eins og að ganga á vegg; ég fullorðnaðist á nokkr- um vikum. Ég kynntist fjölmiðl- um þar, sem voru kannski ekkert sérstaklega skemmtilegir en voru að minnsta kosti frjálsir og óháðir. Ég hef aldrei bakkað út úr því held- ur reynt að víkka út þessa blöðru sem ég lýsti. Á Vísi var til dæmis laustengt samband við Sjálfstæð- isflokkinn. Ég eyddi því smám saman á löngum tíma. Ég varð að gera það í sátt við menn, sem tókst þó ekki því ég var rekinn fyrir rest. Þegar Dagblaðið var stofnað var enginn kommissar lengur, enginn flokkur og ekkert vesen; ekki einu sinni útrásarvíkingur. Þeir sem áttu blaðið voru bara fátæklingar. DV var líka laust við flokkstengsl framan af. Nú hafa blöðin færst í þá átt að vera partur af einhverjum stórum auðugum pakka; þetta eru sam- steypur, Group-fyrirtæki, sem eiga fjölmiðla með öðru. Fjölmiðillinn er ekki lengur meginmálið í eign- arhaldinu. Þá er alltaf spurningin: hvaða hagsmunir eru í kringum þetta? Það getur verið smjörlíki og það getur verið kók, fragtflutning- ar eða hvað sem er. Ég sé að vísu ekki á fjölmiðlunum að þeir séu mjög háðir þessu en það er alltaf einhver sálræn sjálfsritskoðun í gangi, einhver sjálfsefi ef maður er partur af einhverri stórri heild. Ég var eiginlega búinn áður en Group-fyrirtækin komu. Þegar velgengni DV var sem mest átti ég stóran hlut í því. Sveinn Eyjólfsson átti meirihluta. En hann var engin Group, bara einstaklingur.“ Fjölmiðlar ekki nógu krítískir Líturðu á þig sem brautryðjanda? „Ég held ég hafi meira eða minna siglt inn í eitthvert ástand og verið heppinn að koma inn í þetta fyrir fimmtíu árum. Þessi sigling hefði sjálfsagt orðið þótt mín hefði ekki notið við. Ég er ekki að segja að ég hafi verið neinn prímusmótor í því, en ég barði á veggina sem voru fyrir.“ Þú lýsir sjálfum þér í bókinni sem „tortryggnum“ og „miskunnar- lausum“. „Ég lít samfélagið tortryggnum og miskunnarlausum augum. Ég vildi að blaðamenn áttuðu sig á að því, að það er alltaf verið að ljúga að þeim. Þeir yrðu að komast í það hug- arfar að passa sig og halda í sjálf- stæði sitt. Ekki beygja sig fyrir við- urkenndum sjónarmiðum um hvað sé sómasamlegt, hvað megi gera og hvað ekki. Við fórum oft út fyrir þau mörk sem margir aðrir í samfélag- inu töldu vera sómasamleg, sérstak- lega seinni árin. Þegar ég var rit- stjóri með Mikka [Mikael Torfasyni á DV] vorum við komnir í hálfgerð- an uppreisnargír. Við vorum ákveð- inn vettvangur í þjóðfélaginu sem var í stöðugum átökum við þá sem þóttust endurspegla samfélagið. Það er svo margt sem er öðruvísi en það lítur út fyrir að vera á sléttu yfirborðinu. Ég held að vandamál íslenskra fjölmiðla sé frekar að það er ekki horft nógu krítískum augum á atburði og persónur; ekki hitt að menn séu svo neikvæðir út í allt og alla.“ Fjölmiðlarnir brugðust Fjölmiðlar njóta almennt lítils trausts, hvað geta þeir gert til að bregðast við því? Skiptir eignar- Hef enga eftirsjá úr starfinu Frjáls og óháður heitir starfssaga Jónasar Kristjánssonar ritstjóra sem kom út á dögunum. Í samtali við Bergstein Sigurðsson lítur Jónas yfir farinn veg og horfir fram á við. Hann segir íslenska fjölmiðla hafa brugðist í aðdraganda hrunsins en hafa tekið á sig rögg eftir það. Fjölmiðlar standi aftur á móti frammi fyrir miklum óvissutímum og ólíklegt sé að allir lifi af. VIÐ GRÓTTUVITA „Þessi sigling hefði sjálfsagt orðið þótt mín hefði ekki notið við. Ég er ekki að segja að ég hafi verið neinn prímusmótor í því, en ég barði á veggina sem voru fyrir.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ég vildi að blaðamenn áttuðu sig á að því, að það er alltaf verið að ljúga að þeim. Þeir yrðu að komast í það hugarfar að passa sig og halda í sjálfstæði sitt. Ekki beygja sig fyrir viðurkenndum sjónarmiðum um hvað sé sómasamlegt, hvað megi gera og hvað ekki.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.