Fréttablaðið - 14.11.2009, Síða 32

Fréttablaðið - 14.11.2009, Síða 32
32 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR Ofurfæðutegundir innihalda meiri næringu en aðrar fæðutegundir. Margar þeirra er hægt að nálgast í heilsubúðum hér á landi en þó ekki allar. Virkni sumra þeirra er svo mikil að þær hafa verið flokkaðar með náttúrulyfjum í innflutningi til landsins. Úlfaber Fáar berjategundir innihalda eins mikið magn næringarefna og úlfaber, eða goji-ber. Berin hafa verið ræktuð í Asíu í fimm þúsund ár, enda innihalda þau flest nauðsynleg næringar- efni; mikið magn andoxunarefna, C-vítamína, karótíns, B- og E-vítamína. Berin gefa mikla orku og draga úr þreytueinkennum. Fleiri góða eiginleika hafa berin; þau auka meðal annars kyngetuna, bæta sjónina og styrkja ónæmis- kerfið. Kakóbaunin Margar konur og sumir karlar hafa fyrir löngu komist að þeirri niðurstöðu að eitthvað í súkkulaði geri manni gott. Þetta „eitthvað“ mun vera kakóbaunin, sem sögð er best geymda leyndarmál matarsögunnar, hvorki meira né minna. Hún styrkir kransæðakerfið og þar með hjartað. Hún er sögð vera besta leið náttúrunnar til þyngdar- taps og aukinnar orku. Kakóbaunin er full af andoxunarefnum, magnesíum, járni, krómi, sinki, C-vítamínum og Omega 6-fitusýrum. Maca-rótin Maca-rótin hefur verið ræktuð í hæstu hæðum Andesfjalla í meira en 2.000 ár. Þar hefur hún verið notuð sem náttúrulegt lyf gegn ófrjósemi. Duft úr maca-rótinni er fullt af vítamínum, stein- og snefilefnum, ensímum og amínósýr- um. Til viðbótar við ófrjósemi hefur það meðal annars verið notað við minnisleysi, krónískri þreytu, þunglyndi, vannæringu, tíðaverkjum og fleiri algengum kvillum. Það er mjög orkugefandi og eykur einbeitingu og úthald. Býflugnaafurðir Býflugnaafurðir eru með næringarríkari fæðuteg- undum. Hreint hunang er fullt af steinefnum, and- oxunarefnum og ensím- um. Rannsóknir á blóma- frjókornum (bee pollen) sýna að þau innihalda svo hátt magn andoxunarefna að þau eru sögð stuðla að langlífi. Þá muni hunangið einnig búa yfir eiginleikum sem auka frjósemi. Það auki jafnframt kraft, úthald og orku. Spírúlína Spírúlína er ákveðin tegund af blágrænum ferskvatnsþörungum sem innihalda fjöldann allan af næringarefnum og steinefnum, meira en nokkur önnur þekkt planta, korn eða jurt. Hún er rík af blaðgrænu, sem eykur hæfni blóðrauðans til að flytja meira súrefni. Hún hjálpar til við að efla ónæmiskerfið, lækka kólesteról og taka upp steinefni. Blágrænir þörungar Blágrænir þörungar sem safnað er í ferskvatni eru með samþjappaðri næringarefnum en völ er á og þeir eru að auki mjög auðmeltir. Í þeim eru mikilvægar amínósýrur, blaðgræna, beta karotín og B-12 vítamín. Þeir eru sagðir virka vel á fjölda kvilla, þar á meðal húðvandamál, offitu, þunglyndi og hæga meltingu. Plöntusvif Plöntusvif eru smásæjar plöntur, eða lífverur sem líkjast plöntum, og fljóta í sjónum. Þær mynda undirstöðu fæðukeðjunnar. Rannsóknir benda til þess að plöntu- svif innihalda einmitt þau næringarefni sem nauðsynleg eru til að nýskapa og viðhalda frumum. Þau nýtast mannslík- amanum 100 prósent. Það er ótrúlegt í ljósi þess að í holl- ustu fæðutegundum er jafnan um helmingur ómeltanlegur eða nýtileg næring. Aloe Vera Aloe Vera-plantan hefur verið þekkt fyrir lækningamátt sinn frá örófi alda. Safinn í plönt- unni inniheldur A-, C- og E-vítamín, fjölda steinefna og andoxunarefna. Þá hefur hún hefur meðal annars reynst góð við maga- sári, harðlífi, gyllinæð, kláða í endaþarmi og ristilbólgum. Hún stuðlar að bættum efnaskiptum, eykur orkuframleiðslu líkamans og bætir meltinguna. Hampfræ Hampur er talinn með ríkustu næringarupp- sprettum jarðarinnar. Hampfræin innihalda allar nauðsynlegar amínósýrur og fitusýrur sem líkaminn þarf á að halda. Engin náttúruleg fæða er próteinríkari en hampur nema þör- ungar og plöntusvif. Þá inniheldur hampfræið mikið magn lesitíns, sem meðal annars byggir upp heilafrumur og styrkir lifrina. Kókoshnetur Kókosvatn er fitulaust og hitaeiningasnautt en inniheldur fjölda efna sem eru góð fyrir bein og taugar, til dæmis bæði kalk og magnesíum. Samsetning kókosvatnsins er svo lík samsetn- ingu blóðs að um aldir hefur það beinlínis verið notað við blóðgjafir á ýmsum menning- arsvæðum. Meðal góðra eiginleika kókoshnet- unnar eru að hún bætir meltinguna og byggir upp ónæmiskerfið. Þá inniheldur hún kraftmikil andoxunarefni. M á ekki bjóða þér að smakka þetta súkku- laði, þú átt eftir að verða svo hamingju- söm!“ segir David Wolfe og brýtur vænan bita af súkkulaði. Hann er einn eftirsóttasti fyrirlesari heims og var staddur hér á landi í síðustu viku, ein- mitt í þeim erindagjörðum að kenna Íslendingum að borða ofurfæði. Það eru fæðutegundir sem innihalda mun meiri næringu en sú fæða sem flestir innbyrða frá degi til dags. David segir satt, súkkulaðið er flauelsmjúkt og minnir frekar á sviss- neskt gæðasúkkulaði en heilsufæði. Ekki er laust við að birti yfir dimm- um nóvembermorgninum. Súkkulaðið er hans eigin afurð og inniheldur kaldpressaða kókosolíu og kakób- aunina óunna, með aðferð sem hann segir að hafi áður verið notuð í súkk- ulaðigerð. „Allt súkkulaði er gert úr kjarna kakóbaunarinnar. En þegar þú eldar hana eða ristar eyðileggur þú omega 6 fitusýrurnar í henni. Við komumst að þessu fyrir tilviljun því við komum að iðnaðinum út frá sjónarmiði hráfæðisins.“ Hráfæði matgæðingsins David segir þetta einmitt framtíðina í matvælaiðnaðinum – að nálgast hann út frá heimi hráfæðisins annars vegar og matgæðingsins hins vegar. Hann trúir því að með því að bæta ofurfæði inn í mataræði sitt geti fólk viðhaldið heilsunni, hamingjunni og fullkominni þyngd fyrir lífstíð. Hann trúir því að fólk eigi að inn- byrða ofurfæðið, sem eru í reynd læknandi fæðutegundir, dagsdaglega. Þó eigi ekki bara að skella þeim í sig, heldur njóta þeirra líka. „Heilsufæði er eitt en heilsufæði matgæðingsins er eitthvað allt annað. Það er lykillinn að þessu. Megrunarbækur segja okkur að við eigum að búa yfir viljastyrkn- um til að borða eitthvað sem er vont á bragðið. En ef maturinn er ekki góður þá heldur þú átakið ekki út. Um leið og þér er farið að finnast maturinn betri á bragðið en það sem þú varst að borða áður og finnur hvað það gerir þér gott þá verður ekki aftur snúið.“ Bættu því við Menntun Davids er vægast sagt skraut- leg. Hann er með gráður í stjórnmála- fræði, umhverfis- og vélaverkfræði, lögfræði og meistarapróf í næringar- fræði. Foreldrar hans eru báðir lækn- ar. Í æsku fór hann daglega í húsvitjan- ir með föður sínum og lærði sitt hvað um heim læknavísindanna. Það er því ekki auðvelt að rökræða við hann, og sérstaklega ekki um næringarþörf, en það má samt reyna. Hvað með okkur sem getum ekki lifað án blóðugs kjöts- ins, ostsins, smjörsins og allra hinna mjólkurvaranna. „Í fyrsta lagi verð ég að svara því þannig að auðvitað þarf enginn að borða kjöt. Heilu menning- arsamfélögin eru til í heiminum sem snerta ekki á því. Meðalkjötætan borð- ar um fimm sinnum meira kjöt en for- feður okkar gerðu fyrir 200 árum. Kjötneysla er helsta ástæða of fitu, nýrnasjúkdóma og hjartasjúkdóma í heiminum í dag. Ég segi fólki að borða það sem það vill, en reyna samt að koma mataræðinu í eðlilegra jafnvægi.“ Áhrif eftirspurnar Ekki þarf að skoða listann yfir ofur- fæðið lengi til að sjá að Íslendingum gæti reynst erfitt að borða það dags- daglega. Fæstar tegundirnar vaxa á Íslandi og það kostar sitt að færa sig Allir ættu að borða súkkulaði Bandaríkjamaðurinn David Wolfe er einn helsti sérfræðingur heims á sviði hráfæðis. Hann ferðast nú um heiminn og vekur at- hygli fólks á svokölluðu ofurfæði – fæðutegundum sem lækna samhliða því að seðja. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir gæddi sér á meinhollu súkkulaði með Wolfe og samstarfskonu hans og óopinberum hráfæðissérfræðingi Íslands, Sólveigu Eiríksdóttur. SKÁL Í GRÆNU „Allir verða að innbyrða eitthvað grænt á hverjum einasta degi,“ segir hráfæðisgúrúinn David Wolfe og bætir við: „Og þá er ég ekki að tala um græna tilbúna orkudrykki.“ Hér er Wolfe með Sólveigu Eiríksdóttur, vinkonu sinni og samstarfskonu hér á landi. TÍU HELSTU OFURFÆÐUTEGUNDIRNAR alfarið yfir í heilsufæði. Hvað eigum við þá til bragðs að taka? „Í fyrsta lagi ættu allir að bæta því inn í mataræði sitt sem er hollt og styrkir sjálfbæran landbúnað. Ekkert hefur meiri áhrif á umhverfi okkar en landbúnaður. Með því að borða öðruvísi mat og skapa eftirspurn eftir öðruvísi mat breytum við landbúnaði. Í dag eru einfaldar upp- skerur eins og korn og hrísgrjón lang- stærstar. Uppskerurnar sem eru bestar fyrir okkur eru hvorki einfaldar og það er ekki auðvelt að rækta þær heldur. En með því að auka eftirspurnina gerum við þessar vörur almennari og á end- anum geta allir haft ráð á henni. Verðið á heilsuvörum hefur lækkað á undan- förnum árum. En við viljum fá verðið enn þá neðar og það er á réttri leið.“ Skýrari hugur Áður fyrr borðaði David allan mat eins og flestir í kringum hann. Átján ára hætti hann að borða mjólkurvörur og fáeinum árum síðar var hann kominn alveg út í hráfæðið. Hann segir margt hafa breyst til hins betra með því. Bæði sé hann í mun betra líkamlegu formi en áður. Þá sé hugur hans allt- af skýr og hann finni aldrei til þreytu eða doða. Skýringuna segir David felast í því að fæðið sé einfalt, náttúrulegt og ósnert og líklega það sem manneskj- um var upphaflega ætlað að borða. „Staðreyndin er sú að það er lífsnauð- synlegt að bæta hráfæði við mataræð- ið. Rannsóknir á dýrum hafa sýnt að þegar þau fá ekki hráfæði deyja þau út á innan við þremur kynslóðum. Við mannfólkið erum bara komin svo langt út af sporinu að maður eins og ég get haft lifibrauð af því að fara um heim- inn og segja fólki að það verði að borða hráfæði. Ég ætti ekki að þurfa að segja nokkrum manni það.“ Meðalkjöt- ætan borðar um fimm sinnum meira kjöt en forfeður okkar gerðu fyrir 200 árum. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.