Fréttablaðið - 14.11.2009, Page 82

Fréttablaðið - 14.11.2009, Page 82
BAKÞANKAR Atli Fannar Bjarkason 54 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Í vikunni las ég sorglega frétt um að ein-hleypir karlmenn séu í miklum meirihluta á Íslandi. Um 46 prósent íslenskra karl- manna eru á lausu, en aðeins um 35 prósent af kvenþjóðinni. Íslenskir karlmenn eru nokkrum þúsundum fleiri en konurnar, sem þýðir að gríðarlegur fjöldi einhleypra karla ráfar eymdarlega um göturnar á degi hverj- um. En hvernig stendur á þessu? KANNSKI eru íslenskar konur búnar að fá nóg. Kannski leita þær í auknum mæli út fyrir landsteinana í von um ást og umhyggju. Hvað útskýrir það? Jú, kannski er íslenski karlmaðurinn loksins að súpa seyðið af áralangri og vel heppnaðri mark- aðssetningu um að íslenskar konur séu fallegustu konur heims. EKKI ætla ég að rengja það – íslenskar konur eru upp til hópa megaskutlur. En markaðssetningin er búin að búa til afgangsstærð úr íslenskum karlmönn- um. Þegar erlendir fjölmiðlar birta lærðar greinar um fegurð íslensku konunnar er hvergi minnst á atgervi íslenska karlmannsins – hvað þá útlit. Við erum ekkert í augum heimsins. NÚ VIRÐIST markaðssetningin vera byrjuð að skila tölfræðilegum árangri. Útlendingar eru ekki þeir einu sem telja að íslenska konan sé sú glæsileg- asta – heldur trúa þær því sjálfar. Íslenska konan er orðin svo góð með sig að hún sækir ást til útlanda. Líklegast þykir mér að suð- rænir sjarmörar með nöfn eins og Juan og Fernando séu að stela kvenfólkinu okkar, enda erfitt að keppa við menn sem eru súkk- ulaðibrúnir frá náttúrunnar hendi og leggja sig ekki í lífshættu til að bæta næpuhvítan húðlitinn. HVAÐ ER TIL RÁÐA? Við þurfum að fá stelpurnar til að trúa að við séum betri en ofurmennin úr suðri. Við þurfum að hefja öfluga markaðssetningu sem byggir á nýjum gildum. Ekki getum við sagst vera sterkast- ir – það er ekkert töff lengur. Við getum ekki heldur sagst vera ríkastir – af augljósum ástæðum. Við þurfum eitthvað annað: Við þurfum að verða fyndnustu karlmenn heims. FLESTAR KONUR eru sammála því að karl- maður sem kemur þeim til að hlæja er lík- legri en aðrir til að fá að liggja með þeim í suður-evrópskum faðmlögum. Þess vegna þurfum við að koma öllum erlendum konum sem við hittum til að hlæja. Með samstilltu átaki munu konur um allan heim spyrja hver aðra: „Did you know that Icelandic men are the funniest men in the world?“ Þetta skapar afbrýðisemi hjá íslensku konunni, sigurinn verður okkar og skökku hlutföllin leiðrétt- ast. Vandamál íslenskra karla Þetta árið skipuleggja heldri dömurnar Jóla- keppni ellilífeyrisþega! Nei hvur and- skotinn! Engin stórbreyting þetta árið sumsé? Nei þetta var svo flott, þú manst það vel! Hver getur gleymt því? Sigurvegarinn í ár fer heim með hinn heilaga gral ellilífeyrisþeganna: „Gyllta krummafótinn“! Ojoj! Ætlarðu að keppa? Nja, ég var ekki farin að hugsa út í það! Við verðum að búa til pláss í hillunni! Kringlan Bílastæði Ég er með lausa tönn! Ég líka! Mín er lausari. Ekki lengi. Ég náði minni úr. Ég líka. Ég held að það sé að fara að líða yfir mig. Ha! Ég er þegar dott- inn út! Palli, þú mátt vita að þú getur beðið okkur um hvað sem er. Hvað sem er? Já. Hugsa sér, hvað sem er. Vá. Viljið þið láta mig í friði hér eftir? Allt annað en það. Eins gott að það er komin kreppa og jólaörtröðin er minni en í fyrra! FULLT AF AUKA VINNINGUM: EYEPET LEIKIR · DJ HERO LEIKIR TÖLVULEIKIR · PEPSI · DVD MYNDIR OG FLEIRA AðALVINNINGUR VILTU VINNA EINTAK? + SENDU SMS SKEYTIÐ EST PEV Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! Skemmtilegasti og frumlegasti tölvuleikur ársins! Taktu völdin í tónlistinni í einhverjum harðasta tónlistarleik ársins! KOMNIRÍ ELKO Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. Leik lýkur 27.11.09
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.