Fréttablaðið - 14.11.2009, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 14.11.2009, Blaðsíða 90
62 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is HJÁ NÝJA OFNINUM Kristinn Vagnsson hjá nýja, sérinnflutta tandoori-ofninum ásamt yfirkokkinum Samuel Kamran Gill. Þeir hyggjast bjóða upp á holla og ódýra indverska rétti á nýja staðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Opnar Tandoori- stað í bankaútibúi „Það er búið að blunda í mér í mörg ár að gera þetta,“ segir Kristinn Vagnsson sem opnar í dag veitinga- staðinn Tandoori ásamt eiginkonu sinni Guðnýju Sigurðardóttir. Stað- urinn er í Skeifunni 11, þar sem SPRON var áður til húsa og verð- ur hluti af innréttingunum þaðan nýttur á nýja staðnum. Kristinn er lærður matreiðslu- meistari og markaðshagfræðingur. Þrátt fyrir að veitingastaðurinn sé í fyrrverandi bankaútibúi er Kristinn ekki fyrrverandi bankamaður, held- ur bjó hann í Danmörku í nokkur ár þar sem hann var yfirkokkur á veit- ingastaðnum Dronning Louise. Eftir það hefur starfaði hann sem sölu- og framkvæmdastjóri hjá innflutnings- fyrirtækjum. „Þarna sameina ég matreiðsluna og markaðsmenntunina í eitt,“ segir Kristinn, sem telur að þörfin fyrir nýja staðinn sé vel fyrir hendi. „Það er til staður sem heitir Saffran en þau þar eru meira í írönskum og írökskum mat. Ég er meira með ekta indverskan mat og þá stemningu sem þar er. Ég er búinn að ráða þarlenda kokka og þetta verður mjög kósí stemning.“ Yfirmatreiðslumeistari staðarins er Samuel Kamran Gill, sem hefur margra ára reynslu af indverskri og pakistanskri matargerð. Hjarta Tandoori er stór og sérinn- fluttur tandoori-ofn sem er hægt að hita allt upp í 400°. Verð aðalrétta er á bilinu 890 til 1.590, sem Krist- inn telur að sé vel samkeppnishæft við aðra indverska staði hér á landi. Bætir hann við að hollustan verði í fyrirrúmi á veitingastaðnum. - fb „Þessi plata er frábrugðin mínum fyrri og öðrum íslenskum rappplöt- um að mörgu leyti,“ segir Steve Samp- ling um plötuna Milljón mismunandi manns, sem hann leggur nú lokahönd á. „Þetta er fyrsta íslenska rapp-„kons- eptplatan“ og hún skartar rjómanum af röppurum íslands.“ Platan verður þriðja plata Steves Sampling – eða Stefáns Ólafssonar, eins og hann heitir – en áður gerði hann eina plötu undir nafninu Mezz- ías MC. Nýja platan kemur út 4. desember og verður hún í boði ókeypis á síðunni coxbutter.com – en þar má fá hauga af ólgandi íslensku rappi og allt algjörlega ókeypis. Platan er útskriftarverkefni Stefáns úr hljóðtækninámi hjá Stúdíó Sýrlandi. Hann gerir músíkina en fékk níu rapp- ara til að sjá um rappið. „Þeir skipta á milli sín lögunum, sem saman mynda sögu sem á sér stað á langri nótt í Reykjavík,“ segir hann. „Hver rapp- ari túlkar sömu söguhetjuna, bara í mismunandi andlegu ástandi og á mismunandi tíma sólarhringsins. Ég skrifaði grófan söguþráð og deildi honum á milli listamannanna ásamt laginu. Menn gerðu þetta hver í sínu lagi en heildarmyndin gengur fárán- lega vel upp.“ Meðal þeirra rappara sem taka þátt eru þungavigtarmenn á rappsenunni á borð við Didda Fel & Birki úr Forgotten Lores, Gnúsa Yones e.þ.s. Magse, oftast kenndan við Subterranean, G. Maris og Marlon Pollock. „Það eru hittarar á plötunni og maður hendir eflaust einhverju í útvarpsstöðvarnar. Hipphopp er þó aldrei spilað í útvarpi á Íslandi svo ég býst ekki við neinu,“ segir Stefán. - drg Fyrsta íslenska rapp-„konseptplatan“ SKARTAR RJÓMANUM Steve Sampling gerir plötuna Milljón mismunandi manns. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR Icefitness 2009 fer fram í dag. Keppnin er haldin í Íþrótta- húsinu við Sunnubraut og hefst klukkan 16, en meðal þeirra sem keppa eru Ásdís Þorgilsdótt- ir, Eva Lind Ómarsdóttir, Jakob Már Jónharðsson, Vikar Karl Sigurjónsson og Íslandsmeistari síðustu tveggja ára, Sævar Ingi Borgarsson. Icefitness er keppni í fitness þar sem reynir á alhliða form keppenda; styrk, úthald, snerpu, tækni og samræmi í vöðvaupp- byggingu. Í kvennaflokki er keppt í hraðaþraut, armbeygj- um, fitnessgreip og samanburði og í karlaflokki er keppt í hraða- þraut, upphífum, dýfum og samanburði. Keppnin var haldin fyrir fullu húsi í Reykjanesbæ í fyrra og vonast skipuleggjendur til að sem flestir leggi leið sína í Íþróttahúsið við Sunnubraut í dag. Icefitness 2009 í dag KEPPT Í FITNESS Icefitness fer fram í Reykjanesbæ í dag, en í keppninni reynir á alhliða form keppenda. > AFSÖKUNARBEIÐNI Fatafellan, sem á að hafa haldið við eiginmann söng- konunnar Fergie, hefur nú beðið hana afsökunar skyldi hún hafa sært hana. Hún vill þó ekki meina að hún hafi gert neitt af sér þar sem Fergie er enn ham- ingjusamlega gift. Góð af- sökunarbeðni það. Johnny Depp og Nicolas Cage eru gamlir vinir og hefur Depp látið þau orð falla að hann eigi Cage margt að þakka því það var hann sem kom honum af stað í leiklist- inni. Depp og Cage kynntust fyrst í gegnum fyrrverandi eiginkonu Depps, sem þá var blankur og atvinnulaus gítarleikari. „Ég hitti umboðsmann Nicks stuttu eftir okkar fyrsta fund og hann redd- aði mér prufu fyrir kvikmyndina Nightmare On Elm Street. Ég fékk hlutverkið,“ sagði Depp. Nú þegar Cage stendur frammi fyrir gjaldþroti á Depp að hafa hringt í gamla vin sinn og boðið fram aðstoð sína. „Johnny hefur aldrei gleymt þessu greiða. Þegar hann heyrði af fjárhagserfiðleik- um Nicks þá vildi hann hjálpa. Hann hringdi í hann og sagði honum að hann mundi aðstoða hann ef hann vildi. En Nick hefur ekki þegið aðstoð hans enn,“ var haft eftir heimildarmanni. Depp hjálpar Cage í veseni VINUR Í RAUN Johnny Depp er vinur vina sinna. Hann hefur boðið Nicolas Cage aðstoð sína.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.