Fréttablaðið - 14.11.2009, Blaðsíða 110
82 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT 2. á endanum, 6. í röð, 8.
hald, 9. tækifæri, 11. komast, 12. tíð-
indi, 14. dótarí, 16. guð, 17. sjáðu, 18.
hætta, 20. hreyfing, 21. málmhúða.
LÓÐRÉTT 1. helminguð, 3. pot, 4.
máski, 5. skjön, 7. at, 10. sægur, 13.
eldsneyti, 15. hanga á, 16. upphaf,
19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. loks, 6. áb, 8. tak, 9. lag,
11. ná, 12. fregn, 14. drasl, 16. ra, 17.
sko, 18. ógn, 20. ið, 21. tina.
LÓÐRÉTT: 1. hálf, 3. ot, 4. kannski, 5.
ská, 7. bardagi, 10. ger, 13. gas, 15.
loða, 16. rót, 19. nn.
„Ég get vel skilið þetta,“ segir
tískufrömuðurinn Karl Berndsen.
Þrátt fyrir að íslenskt kvenfólk hafi
hingað til verið talið það fegursta
í heiminum er það aðeins í þriðja
sæti ef marka má stefnumótasíð-
una Beautifulpeople.com. Alls fá
66% íslenskra kvenna að birta
persónuupplýsingar um sig á
síðunni, sem er þriðja hæsta
hlutfallið í heiminum. Norsk-
ar konur eru í efsta sætinu
því 75% þeirra fá aðgang að
síðunni. Næstar á eftir koma
sænskar konur, með 68%
hlutfall. „Þó að þetta
séu voðalegar blondín-
ur held ég að þær séu
meira í tengslum við
sína kvenlegu fegurð,“
segir Karl um sænsku og norsku
konurnar. „Ég held að við séum
undir rosalega miklum áhrifum
frá Ameríku og New York-konun-
um. Þær eru harðari týpur en þess-
ar skandinavísku,“ segir hann um
íslenskt kvenfólk. „Ef þú ferð til
Kaupmannahafnar er til dæmis
mikið af síðu fallegu hári þar
og þær eru kvenlegri. Þær eru
allar fallegar en falla samt
voðalega mikið undir sama
hattinn,“ segir hann.
„Íslenskar konur eru áberandi fal-
legar en ekki eins fallegar í heild
sinni.“
Það er hægara sagt en gert að
fá aðgang að Beautifulpeople.com
því frá því að síðan var stofnuð
árið 2002 hefur tveimur milljónum
umsækjenda verið neitað um aðgang
vegna þess að þeir þykja ekki nógu
fallegir.
Sænskir karlmenn virðast vera
fegurstir samkvæmt síðunni því
65% þeirra fá aðgang. Í öðru sæti
eru Braslíumenn með 45% hlutfall
og Danir eru í því þriðja með 40%.
Aðeins 12% breskra karla komast
aftur á móti inn á síðuna, auk þess
sem 9% Rússa og Pólverja hljóta náð
fyrir augum hennar. Þessar tölur
koma Karli ekki á óvart. „Þetta
eru voðalegir gel-piltar og meira
„pretty boys“ en aðrir,“ segir hann
um sænsku karlmennina og þykir
honum þeir fullmiklir metrómenn
fyrir sinn smekk. - fb
Íslenskt kvenfólk aðeins í þriðja sæti
ÍSLENSK FEGURÐ Keppendur í Ungfrú
Ísland fyrr á þessu ári. Íslenskar konur
eru þær þriðju fallegustu samkvæmt
síðunni Beautifulpeople.com.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KARL BERNDSEN
Íslenskar konur
eru harðari týpur
en þær norsku og
sænsku.
„Þetta er hið horfna en nýfundna Jólaguðspjall Leik-
félags Reykjavíkur sem kemur í leitirnar eftir öll
þessi ár,“ segir Benedikt Erlingsson leikstjóri, um
verkið Jesús litli sem verður frumsýnt 21. nóvember.
Æfingar eru í fullum gangi fyrir verkið, sem gæti
vakið athygli fyrir hispurslaus efnistökin.
Prestar og guðfræðingar hafa komið Benedikt og
samstarfsfólki hans til hjálpar við Biblíurannsókn-
ir en lengra ná áhrif þeirra ekki. „Yndislegir prestar
hafa komið og hjálpað okkur og varpaði ljósi á Jesú
þó að hann tali nú oftast mjög illa um guðfræðinga og
kirkjan hafi ekkert einkaleyfi á Jesú frekar en skatt-
stjórinn eða Fréttablaðið,“ segir Benedikt. „Vandinn
með Jesú er að allir vilja eigna sér hann og þótt ég
vildi gjarnan draga hann í minn flokk er það ekki
hægt því hann er allra.“
Halldóra Geirharðsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson
leika í verkinu trúðana Úlfar og Barböru sem fá lið-
sinni frá söngdívunni Kristjönu Stefánsdóttur sem
hefur fætt trúðinn Bellu. „Þau eru að segja söguna um
hvernig ljósið kemur í heiminn, fæðingu Jesú litla. Við
getum sagt að þetta sé sunnudagaleikhús fyrir full-
orðna,“ segir Benedikt.
Síðasta sýning trúðanna var Dauðasyndirnar sem
hlaut sex tilnefningar til Grímunnar og verður fróð-
legt að sjá hvort Jesús litli fær jafngóð viðbrögð. - fb
Prestar aðstoða við Jesúleikrit
BENEDIKT ERLINGSSON Benedikt leikstýrir verkinu Jesús litli
sem verður frumsýnt 21. nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Haraldur Jónasson, gefur út
tímaritið Stoppað í matargatið.
Aldur: 33 ára.
Starf: Ég er ljósmyndari og blaða-
útgefandi.
Búseta: Ég bý í Hlíðunum.
Fjölskylda: Ég er giftur og á tvö
börn.
Stjörnumerki: Meyja.
GLÆNÝ LÚÐA
TÚNFISKUR
LAXAFLÖK
XL HUMAR
SKÖTUSELUR
Helgi Björnsson er þessa dagana
staddur í Berlín þar sem tökur
standa yfir á kvikmyndinni Hea-
ven´s Taxi í leikstjórn Daryush
Shokof frá Íran.
„Þetta er allt skotið í miðborg-
inni og við vorum í kringum
Brandenborgarhliðið á miðviku-
daginn. Það er dálítið lýjandi að
vera í þessu en það er líka mjög
gaman. Þetta eru langir dagar.
Maður vaknar sex á morgnana og
er að koma heim tíu eða hálfellefu.
En þetta er mjög skemmtilegt engu
að síður,“ segir Helgi en tökur hóf-
ust fyrir rúmri viku og lýkur þeim
innan skamms.
Í myndinni leikur hann rann-
sóknarlögreglumanninn Hans sem
sérhæfir sig í hryðjuverkamálum.
Meðal þeirra sem leika á móti
honum er íranska leikkonan Taies
Farzan og hinn virti þýski leik-
ari Vadim Glowna. Heaven´s Taxi
er nokkurs konar ádeila á írönsk
stjórnvöld og frumsýning hennar
fyrirhuguð í mars á næsta ári.
Leikstjórinn Shokof hefur
gert um fimmtán stuttmyndir og
myndir í fullri lengd á ferli sínum.
Þekktasta mynd hans er Seven
Servants frá árinu 1995 sem var
síðasta mynd goðsagnarinnar
Anthony Quinn. Hún var þó ekki
frumsýnd fyrr en fyrr á þessu ári.
Myndir sínar hefur hann unnið
sjálfstætt án aðkomu stórra kvik-
myndavera og eru þær oftast með
pólitískum og heimspekilegum
undirtóni.
Helgi hefur fleiri járn í eldin-
um því til stendur að hann leiki í
nýrri mynd finnska leikstjórans
Rennys Harlin, Mannerheim. Enn
á þó eftir að ákveða hvenær tökur
á henni hefjast. „Það er búinn að
vera höfuðverkur að fjármagna
hana en mér skilst að það sé að
nálgast,“ segir hann. Einnig er
hugsanlegt að Helgi leiki í annarri
þýskri mynd á næsta ári en það á
allt saman eftir að koma betur í
ljós.
Helgi átti að syngja með hljóm-
HELGI BJÖRNSSON: LÝJANDI EN MJÖG SKEMMTILEGT VERKEFNI
Tökum á Heaven ś Taxi að
ljúka í miðborg Berlínar
MISSIR AF GIGGI
Helgi Björnsson við tökur
á kvikmyndinni Heaven´s
Taxi í miðborg Berlínar. Þar
leikur hann rannsóknarlög-
reglumanninn Hans undir
leiðsögn leikstjórans Daryush
Shokof. Kormákur Geirharðs-
son skilur þessar sérstöku
aðstæður kvikmyndastjörnunnar
Helga Björns.
sveit sinni Kokteilpinnunum í Þjóð-
leikhúskjallaranum í kvöld en eftir
að tökurnar á Heaven´s Taxi frest-
uðust varð að aflýsa gigginu. „Því
miður þurftum við að fella niður
sýninguna út af þessu en um næstu
helgi verður allt á sínum stað,“
segir hann hress.
Kormákur Geirharðsson, félagi
hans úr Kokteilpinnunum, er
svekktur yfir því að aflýsa þurfti
tónleikunum en skilur vel þessar
óvenjulegu aðstæður. „Þetta hitt-
ir svona slysalega á en menn neita
ekki kvikmyndatilboði frá erlendri
grund, sérstaklega ekki þegar
menn fá borgað í evrum.“
freyr@frettabladid.is
Fjórða sólóplata Jóhanns G.
Jóhannssonar – Á langri leið
– kemur út í nóvember. Jóhann er í
takt við nýja tíma þar sem strax eftir
helgi verður hægt að hala plötunni
niður fyrir þúsund krónur á síðunni
johanng.is. Tíu frumsamin lög eru á
plötunni, sem er beðið
með eftirvæntingu.
Jóhann ætlaði
upphaflega að fá
ýmsa söngvara til
að syngja lögin en
vegna mikillar
hvatningar
syngur hann
þau öll lögin
sjálfur.
Hann fær
þó aðstoð
frá Regínu
Ósk við
röddun.
Líkt og fjölmargir aðrir fór Bubbi
Morthens í svínaflensu-
sprautu og er að eigin
sögn búinn að vera
„drulluslappur“ síðan.
Hann fékk sýkingu í
lunga og segist vera
komin „á stöff“. Enn-
isholurnar eru einnig
með í samsærinu.
Bubbi tók þó á
honum stóra
sínum og
hefur spilað á
öllum bókuð-
um giggum.
Skemmtikrafturinn og blaðamað-
urinn Sólmundur Hólm sendi á
dögunum frá sér ævisögu Gylfa
Ægissonar. Sólmundur er liðtæk
eftirherma og kann betur en flestir
að herma eftir Gylfa. Færri vita
að undanfarnar vikur hefur hann
unnið að því að fullkomna aðra
persónu, Sultan
Kosen – hæsta
mann heims.
Nú bíða
menn
spenntir eftir
hvernig þessi
meðalmaður
túlki risann.
- drg, afb
FÓLK Í FRÉTTUM
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á blaðsíðu 8.
1 Hún borðaði gull.
2 Þjóðfundur.
3 Eiríkur Örn Norðdahl skrifar
Gæsku.