Fréttablaðið - 14.11.2009, Blaðsíða 12
14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
verður haldinn 30. nóvember 2009 kl. 19:30 á Hilton
Reykjavík Nordica.
Dagskrá:
1. Samningar og stöðugleikasáttmáli
(Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR).
2. Skipulag launþegahreyfingarinnar:
a) VR (Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR).
b) LÍV (Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður LÍV).
c) ASÍ (Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ).
3. Stefnumótun VR (fulltrúar ParX kynna).
4. Umræður, stjórn situr fyrir svörum.
Fundarstjóri: Pétur Guðmundsson
Félagsfundur VR
Upplýsinga- og umræðufundur
GÓÐAR
FRÉTTIR
Frídreifing verður áfram á höfuðborgarsvæðinu, suðvestur-
horninu, Akranesi, Reykjanesi, Akureyri, í Borgarnesi og Árborg.
Nú verður Fréttablaðið líka aðgengilegt í öllum öðrum
landshlutum og fæst í lausasölu á kostnaðarverði.
Þeir sem hafa áhuga á að fá blaðið til sölu á kostnaðarverði
vinsamlegast hafið samband við Pósthúsið í síma 585 8300.
Hér færðu Fréttablaðið á kostnaðarverði:
Nú er Fréttablaðið
aðgengilegt hringinn
í kringum landið.
Ásbyrgi Verslunin Ásbyrgi ehf
Baula Verslun
Blönduós N1
Potturinn og pannan
Dalvík N1 – Olís
Egilsstaðir N1
Eskifjörður Shell skáli
Kría veitingastaður
Fellabær Olís
Hella Olís
Hellissandur Hraðbúð N1
Húsavík N1 – Olís – Shell skáli
Hvolsvöllur N1
Höfn N1 – Olís
Ísafjörður N1
Kópasker Búðin Kópasker
Laugavatn Tjaldmiðstöðin
Neskaupstaður Olís
Ólafsfjörður Olís
Ólafsvík N1 – Olís
Raufarhöfn Verslunin Urð
Reyðarfjörður N1 – Olís – N1
Rif Umboð Shell / Tandur
Sauðárkrókur N1 – Shell skáli
Siglufjörður Olís
Skagaströnd Olís
Staðarskáli N1
Stykkishólmur Bónus – Olís – Bakarí
Stöðvarfjörður Brekkan veitingastaður
Vestm.eyjar N1
Víðigerði Verslunin Víðigerði
Vík N1
Vopnafjörður N1
Þórshöfn N1
Allt sem þú þarft...
Hægt er að fá Fréttablaðið sent
frítt í tölvupósti á morgnana
eða nálgast það á Visir.is.
JAPAN, AP Barack Obama Banda-
ríkjaforseti hóf vikulanga Asíu-
ferð sína á því að hitta Yukio Hat-
oyama, sem nýlega tók við sem
forsætisráðherra Japans.
Á blaðamannafundi þeirra í
Tókýó sagði Obama meðal ann-
ars stutt í að hann tæki ákvörð-
un um framhald hernaðar Banda-
ríkjamanna í Afganistan. Hann
sagðist fyrst vilja tryggja að rétt
ákvörðun yrði tekin. Hann sagð-
ist ekki vera að bíða eftir nýjum
upplýsingum og neitaði því að hik
væri komið á Bandaríkjamenn
gagnvart Afganistan.
Hatoyama skýrði hins vegar
frá því að Japanar myndu hætta
að veita eldsneytisaðstöðu fyrir
Bandaríkjaher á leiðinni frá
Bandaríkjunum til Afganist-
ans. Hann sagði þó að Japanar
myndu gefa fimm milljónir dala
til uppbyggingar í Afganistan.
Þeir Obama og Hatoyama hétu
því að styrkja tengsl ríkjanna á
ný. Nokkur óvissa hefur þó ríkt
um samband Japans og Banda-
ríkjanna undanfarið.
Hatoyama hafði í kosninga-
baráttunni verið gagnrýninn
á náið vinasamband fyrri
Japansstjórnar við Bandaríkin,
og lagði þá meðal annars áherslu
á að herstöðvar Bandaríkjanna í
Japan yrðu fluttar frá þéttbýlum
svæðum.
Eitt viðkvæmasta deilumál ríkj-
anna snýst um bandarískar her-
stöðvar á eyjunni Okinawa. Banda-
ríkjamenn litu svo á að samið hefði
verið um framtíð þeirra fyrir þrem-
ur árum, en Hatoyama hefur sagt
nauðsynlegt að taka þá samninga
til endurskoðunar.
Hatoyama telur best að færa her-
stöðvarnar alveg frá Okinawa, en
Bandaríkjamenn vilja færa þær á
afskekktari stað á eyjunum, eins
og um var samið árið 2006.
„Við Yukio vorum báðir kosnir
út á loforð um breytingar,“ sagði
Obama. Hann sagði verkefnið nú
vera að finna nýjar leiðir til að
endurnýja tengsl landanna. Hann
sagði tengsl Japans og Bandaríkj-
anna vera á jafnræðisgrundvelli og
markmið beggja væri að tryggja
vörn Japans með sem minnstu
raski fyrir íbúana.
Obama verður á ferð um Asíu
næstu vikuna til þess að styrkja
tengsl Bandaríkjanna við þennan
heimshluta, sem nú er í miklum
uppgangi.
Hann ætlar næst til Singapúr, þá
til Kína og síðan til Suður-Kóreu.
gudsteinn@frettabladid.is
Obama í Asíuferð til
að styrkja tengslin
Bandaríkjaforseti hóf í gær vikuferð sína um Asíu með heimsókn til Japans.
Obama segir stutt í ákvörðun um framhald hernaðar í Afganistan.
OBAMA OG HATOYAMA Bandaríkjafor-
seti og forsætisráðherra Japans heilsast.
NORDICPHOTOS/AFP
VEIÐI Laxar veiddir á stöng sumarið
2009 voru rúmlega 72 þúsund sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Veiði-
málastofnunar. Það er fjórtán pró-
sentum minni veiði en metsumarið
2008 og næstmesta stangveiði sem
skráð hefur verið úr íslenskum lax-
veiðiám. Met voru sett í nokkrum
ám, þar á meðal Hrútafjarðará,
Miðfjarðará, Blöndu, Fljótaá, Sval-
barðsá og Kálfá. Í samanburði við
árið 2008 kom fram minni stang-
veiði í öllum landshlutum nema á
Norðurlandi vestra.
Stangveiði þeirra áa sem byggja
veiði á náttúrulegum stofnum var
um 53.800 laxar. Af veiði sumars-
ins voru um 18.500 laxar veiddir í
ám þar sem meiri hluti laxastofns-
ins var upprunninn úr seiðaslepp-
ingum. Langflestir þessara laxa
veiddust í Rangánum, um 10.700 í
Ytri-Rangá og um 4.300 í Eystri-
Rangá. Auk þeirra var umtalsverð
veiði úr sleppingum í Norðlinga-
fljóti, Tungufljóti í Árnessýslu,
Skógá og Vatnsá.
Hafa verður í huga að inni í
stangveiðitölum síðari ára er fisk-
ur sem sleppt er og veiðist aftur.
Veiðitölurnar eru því ekki fylli-
lega sambærilegar. Ekki er enn
vitað hversu mörgum fiskum var
sleppt í sumar en það hlutfall hefur
hækkað og var um tuttugu prósent
á árinu 2008. - shá
Laxveiðisumarið 2009 gaf tvöfalda meðalveiði áranna 1974 til 2008:
Sumarið gaf 72 þúsund laxa
SKUGGI Í LANGÁ Á MÝRUM Sumarið
fór langt með að gefa jafnmarga laxa
veidda á stöng og metsumarið 2008.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA