Fréttablaðið - 14.11.2009, Síða 4
4 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
SÓNATA FYRIR SVEFNINN EFTIR ÞÓRDÍSI BJÖRNSDÓTTUR
ÁSTARÓÐUR TIL LÍFSINS
Sónata fyrir svefninn er önnur
skáldsaga Þórdísar Björnsdóttur
en frumraun hennar, Saga af bláu
sumri, fékk frábærar viðtökur
lesenda og gagnrýnenda.
„... viðvarand
i
fantastískt au
gna-
blik … dökkb
lár
ástaróður til l
ífsins.“
– Víðsjá um S
ögu af
bláu sumri
SKIPULAGSMÁL Deiliskipulag um
miklar viðbyggingar við Iðnskól-
ann í Reykjavík hefur verið fellt úr
gildi af úrskurðarnefnd skipulags-
og byggingarmála.
Auka átti byggingarmagnið á
Skólavörðuholti um rúmlega sjö
þúsund fermetra. „Þrátt fyrir það
er í engu gerð grein fyrir því hvern-
ig leyst skuli úr bílastæðaþörf er
skapast vegna þessarar aukning-
ar. Í hinni kynntu tillögu að breyttu
deiliskipulagi svæðisins var gert
ráð fyrir að gerður yrði bílakjallari
á Skólavörðuholti í þessu augnamiði
en við samþykkt tillögunnar var
horfið frá þeim áformum án þess að
grein væri gerð fyrir því í tillögunni
með hvaða öðrum hætti bílastæða-
kröfu yrði mætt,“ segir í niðurstöðu
úrskurðarnefndarinnar.
Reykjavíkurborg fyrir sitt leyti
sagði nýrri viðbyggingu við Iðn-
skólann að mestu ætlað að taka við
starfsemi og nemendum sem væru
í Vörðuskólanum. Því væri ekki
um einfalda fjölgun nemenda að
ræða. Ekki væri talið að breyting-
arnar myndu valda auknu álagi á
bílastæði.
Íbúi við Bergþórugötu sem kærði
deiliskipulagið taldi hins vegar að
það væri andstætt reglum að gera
ekki ráð fyrir nýjum bílastæðum
eins og niðurstaða borgaryfirvalda
hafi orðið með því að hætta við að
„sprengja Skólavörðuholtið“ til að
koma þar fyrir bílakjallara vegna
andstöðu nágranna Iðnskólans við
þá framkvæmd. Meðal annars ótt-
aðist sóknarnefnd Hallgrímskirkju
skemmdir á byggingunni vegna
sprenginganna. - gar
GENGIÐ 13.11.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
239,4267
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,73 125,33
208,06 209,08
185,48 186,52
24,925 25,071
22,155 22,285
18,119 18,225
1,388 1,3962
199,13 200,31
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
ALÞINGI Útlit er fyrir að halli ríkis-
sjóðs verði minni í ár en áður var
talið. Það skýrist af lægri vaxta-
kostnaði en reiknað var með og
minna atvinnuleysi en spáð var.
Um leið stefna tekjur ríkissjóðs –
einkum af virðisaukaskatti – í að
vaxa meira en ráð var fyrir gert.
Að þessu samantöldu gerir
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra sér vonir um að hægt
sé að draga úr áður áformuðum
skattahækkunum. Fjárþörfin hafi
minnkað.
Steingrímur upplýsti þetta í
umræðum um skatta á Alþingi í
gær.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, hóf umræð-
una og fann skattaáformum ríkis-
stjórnarinnar allt til foráttu.
Talsmenn annarra stjórnarand-
stöðuflokka voru á sama máli.
Bjarni sagði fjárlagagatið,
sem stoppa þyrfti í, ekki stafa af
skattalækkunum undanfarinna ára
heldur því að skattstofnarnir hefðu
brostið. Búa þyrfti svo um hnúta
að þeir skiluðu á ný sömu tekjum
og fyrr. Hann ítrekaði ágæti til-
lögu sjálfstæðismanna um skatt-
breytingu í lífeyriskerfinu; með
henni væri hægt að brúa fjárlaga-
hallann.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sagði ríkisstjórnina ekkert hugsa
um verðmætasköpun og kvað ekki
hægt að vinna sig út úr kreppu með
því að hækka skatta. Benti hann á
skattahækkanir í Bandaríkjunum
í kreppunni miklu sem hefðu haft
slæm áhrif. Skattalækkanir nýrr-
ar ríkisstjórnar hefðu hins vegar
gefist vel.
Þór Saari, Hreyfingunni, sagð-
ist ekki fráhverfur skattahækk-
unum á einstaklinga en kolrangt
væri að gera það núna; aðstæður
Horfur hafa batnað
Fjármálaráðherra sýnist að hægt sé að draga úr áður áformuðum skattahækk-
unum. Engu að síður er mikil þörf fyrir auknar tekjur sem aflað verður með
sköttum. Stjórnarandstaðan leggst alfarið gegn skattaleiðum ríkisstjórnarinnar.
Í frétt blaðsins um skattamál í gær,
sem byggð var á gögnum frá Data-
market, var ranghermt að meðaltals-
skatthlutfall væri 28 prósent fyrir utan
útsvar. Útsvarið er inni í þeirri tölu.
LEIÐRÉTTING
Hvernig væri að brosa þegar góðar
fréttir koma?
Steingrímur J. Sigfússon VG.
Ríkisstjórnin þarf að hlífa fólkinu.
Bjarni Benediktsson
Sjálfstæðisflokki.
Ríkisstjórnin er jafnt og þétt að eyði-
leggja innviði samfélagsins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Framsóknarflokki.
Þeir sem eiga mest geta að sjálf-
sögðu lagt meira í sameiginlega
sjóði.
Magnús Orri Schram
Samfylkingunni.
Því miður vilja margir halda að hægt
sé að skattleggja sig út úr kreppu.
Illugi Gunnarsson
Sjálfstæðisflokki.
Við ætlum að nota skattkerfið til
að jafna tekjur. Sýnum samstöðu,
jöfnum kjörin.
Lilja Mósesdóttir VG.
Við köllum eftir samráði en ríkis-
stjórnin vill ekki hlusta á okkur.
Birkir J. Jónsson Framsóknarflokki.
Fyrst þarf að leiðrétta höfuðstól
íbúðalána, svo má hækka skattana.
Margrét Tryggvadóttir
Hreyfingunni.
ÚR UMRÆÐUNUM
TEKIST Á UM SKATTANA Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafn-
ar skattahækkanaleið ríkisstjórnarinnar. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
segir skattahækkanir nauðsynlegar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
byðu ekki upp á það. Hann vildi á
hinn bóginn skattleggja atvinnu-
greinar sem byggðu starfsemi
á sameiginlegum auðlindum
þjóðarinnar.
Þráinn Bertelsson sagðist
geta fullyrt að venjulegt launa-
fólk væri ekki aflögufært; leita
þyrfti uppi peningana þar sem
þeir væru.
Helgi Hjörvar, Samfylking-
unni, sagði ríkisstjórnina vera
að reyna að skapa sátt um leiðir
í skattamálum. Upphrópanir og
heimsendaspár væru honum von-
brigði. bjorn@frettabladid.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
25°
12°
13°
12°
14°
13°
15°
11°
11°
23°
14°
22°
15°
26°
6°
14°
16°
8°
Á MORGUN
Strekkingsvindur.
MÁNUDAGUR
Minnkandi strekkingur.
6
3
1 2
3
3
1 2
3
2 4
5
4
4 4
3
4
6
5
7
-1
7
12
15
10 7
7
7
11
6
5
8
KÓLNAR Það
verður heldur
vindasamt á land-
inu næstu daga
og þá sérstaklega
norðvestan- og
suðaustanlands.
Norðaustanáttin
verður ríkjandi
og það kólnar nú
um helgina þó
að hitinn haldist
yfi r frostmarki að
deginum til.
Ingibjörg
Karlsdóttir
Veður-
fréttamaður
NEÐRI-ÞJÓRSÁ Ekki er algengt að
níðstangir séu reistar. Bóndi við Bíldudal
gerði það fyrir tæpum þremur árum
og óskaði manni í plássinu útlegð eða
dauða. Hann var kærður til lögreglu fyrir
morðhótun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MÓTMÆLI „Rjúpan og krían hafa
orpið í haganum í átta þúsund ár
og missa sitt en ég missi útsýn-
ið,“ segir Egill Egilsson, sum-
arbústaðaeigandi í Gnúpverja-
hreppi.
Egill ætlar að reisa níðstöng
á Djáknhóli í landi Fosslands í
Gnúpverjahreppi klukkan fimm
í dag og formæla virkjanaáform-
um Landsvirkjunar á Neðri-
Þjórsá.
Stöngin er þriggja metra há
með heilum hrosshaus og mun
hún standa í viku. Í stað augn-
tótta hefur Egill komið fyrir
ljósum, sem hann vonar að verði
ógurleg í rökkrinu.
Egill segir athöfnina sjálfa
taka fimm mínútur en hann
mun fara með bölbæn, þá sömu
og Egill Skalla-Grímsson reisti
Eiríki konungi blóðöx og Gunn-
hildi drottningu í Egilssögu.
- jab
Mótmælir virkjanaáformum:
Egill reisir
Landsvirkjun
níðstöng
AFGANISTAN Herhundur sem var
týndur í fjórtán mánuði í Afgan-
istan hefur fundist heill á húfi.
Tíkin Sabi var í eftirlitsferð
með áströlskum og afgönskum
hermönnum þegar árás var gerð
á hópinn í Uruzgan í september
í fyrra. Níu hermenn, þeirra á
meðal þjálfari Sabi, særðust í
árásinni og tíkin týndist. Leitað
var að Sabi í marga mánuði án
árangurs. Bandarískur hermað-
ur fann hana svo á dögunum. Hún
virðist ekki vera búin að gleyma
þjálfun sinni og mun því snúa
aftur til starfa á næstunni. - þeb
Herhundur í Afganistan:
Fannst eftir
fjórtán mánuði
VIÐ IÐNSKÓLANN Hætt var við að
sprengja bílakjallara. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Deiliskipulag um sjö þúsund fermetra stækkun Iðnskólans í Reykjavík ógilt:
Bílastæðavandanum var ekki mætt
SVISS, AP Persónuverndarstofn-
unin í Sviss ætlar að kæra net-
fyrirtækið Google fyrir götu-
myndaþjónustu þess á vefnum.
Á vefnum má sjá býsna
nákvæmar myndir af götum,
húsum, bifreiðum og jafnvel
fólki í bæjum og borgum lands-
ins, einum of nákvæmar að mati
stofnunarinnar.
„Fjölmörg andlit og bílnúm-
eraplötur eru ekki máð nógu vel
út til þess að standast persónu-
verndarkröfur,“ segir Hanspet-
er Thür, persónuverndarfulltrúi
svissnesku stjórnarinnar. Víða
í Evrópu hefur þessi þjónusta
Google sætt gagnrýni. - gb
Persónuvernd í Sviss:
Dregur Google
fyrir dómstól
DÓMSMÁL Nálgunarbann hefur
verið dæmt í Hæstarétti á mann.
Hann hafði hótað barnsmóður
sinni og fjölskyldu hennar lífláti,
ásamt fleiru. Hann var á reynslu-
lausn úr fangelsi þegar hann ógn-
aði konunni, sem hann er ekki
lengur í sambúð með.
Manninum var veitt reynslu-
lausn 2. september. Þá hafði hann
afplánað helming níu mánaða
fangelsisdóms fyrir ofbeldisbrot.
Eftir það hefur konan tvívegis
kært hann fyrir hótanir og alvar-
legt áreiti. Þá hafa móðir konunn-
ar og stjúpfaðir hennar lagt fram
kæru á hendur manninum vegna
lífláts- og ofbeldishótana í garð
fjölskyldunnar. -jss
Dæmdur í nálgunarbann:
Hótaði fjöl-
skyldu lífláti
Kramnik heldur efsta sætinu
Vladimír Kramnik er einn í efsta sæti
fyrir síðustu umferð á minningarmót-
inu um Mikhaíl Tal. Heimsmeistarinn
Anand og Úkraínumaðurinn Vassilí
Ívantsjúk eru hálfum vinningi á eftir.
Í lokaumferðinni í dag eigast við
Ívantsjúk og Kramnik.
SKÁK