Fréttablaðið - 14.11.2009, Side 68
MENNING 10
Um miðjan september verður
sýningin Óþekkt augnablik
opnuð í Þjóðminjasafni Íslands.
Sýningin er greiningarsýn-
ing á ljósmyndum frá tímabil-
inu 1900-1960 úr Ljósmynda-
safni Íslands í Þjóðminjasafni og
hefur verið leitað aðstoðar safn-
gesta við að greina myndefnið.
Miklar upplýsingar hafa borist
um myndirnar á sýningunni og
því hefur verið ákveðið að skipta
þeim út fyrir nýjar.
Allar myndir sýningarinnar
eru aðgengilegar á heimasíðu
safnsins, en þar má einnig sjá
þær upplýsingar sem hafa borist
hingað til.
Á þessari sýningu er brugðið
upp myndum úr sex filmusöfn-
um. Þeim er ætlað að sýna þver-
skurð af viðfangsefnum ljós-
myndaranna og sýna þróun
íslensks samfélags á þeirri rúmu
hálfu öld sem þær spanna. Jafn-
framt eru þær gestaþraut þar
sem leitað er í smiðju safngesta
um þekkingu á því sem mynd-
irnar sýna. Hvar eru myndirnar
teknar? Hvaða fólk er á þeim?
Í tengslum við sýninguna
hefur verið opnað sérstakt
vefsvæði á heimasíðu Þjóðminja-
safnsins, www.thjodminjasafn.is.
Þar er hægt að skoða myndirnar
og geta gestir skráð athugasemd-
ir við þær ef þeir þekkja til fólks
eða staða á myndunum.
Hverjir eru á
ljósmyndinni?
Ein myndanna sem þarf að greina en
hún er úr hinu stóra og merkilega safni
Guðna Þórðarsonar sem fór að taka
myndir eftir stríðið og eru flestar þeirra
teknar upp úr 1950.
Þ
að má segja að þetta
sé kaffiborðsbók með
fræðiritsívafi,“ segir
Arnar Eggert Thorodd-
sen, sem ásamt Jónatani
Garðarssyni er höfundur bókar-
innar 100 bestu plötur Íslands-
sögunnar sem kemur út á vegum
Senu í næstu viku.
Tildrög bókarinnar voru þau
að Félag hljómplötuframleið-
enda, Tónlist.is og Rás 2 stóðu
fyrir kosningu um hundrað
bestu íslensku plöturnar fyrr á
árinu, og voru plöturnar valdar
bæði af fagfólki og almenningi.
Arnar og Jónatan tóku svo að
sér það verkefni að skrifa um
plöturnar. „Í bókinni er að finna
sögurnar á bak við hverja plötu
fyrir sig, upptökuferlið, umsagn-
ir blaða, ljósmyndir og ýmis-
legt fleira,“ segir Arnar Egg-
ert. „Þarna les fólk sig í gegnum
sögu íslenskrar dægurtónlistar
upp að vissu marki.“
Hann segist vona að bókin
höfði til hins almenna íslenska
tónlistaráhugamanns. „Ætlunin
var ekki að skrifa texta fyrir
poppnörda, en þeir fá þó sitthvað
fyrir sinn snúð með ýmsum
sértækum fróðleik. Ég held að
úrslit kosningarinnar séu nokk-
uð lýsandi fyrir tónlistarsmekk
almennings eins og hann er
í dag,“ segir Arnar Eggert
Thoroddsen. - kg
SAGAN Á BAK VIÐ
Hundrað bestu plöt-
urnar voru valdar af
fagfólki og almenn-
ingi í kosningu sem
fram fór fyrra hluta
árs. Bók Jónatans
Garðarsonar og
Arnars Eggerts Thor-
oddsen inniheldur
umfjallanir um allar
plöturnar, auk frekari
fróðleiks.plöturnar