Fréttablaðið - 14.11.2009, Qupperneq 80
52 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
CONDOLEEZZA RICE ER FÆDD
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1954.
„Við þurfum á sameigin-
legum óvini að halda til að
efla eininguna.“
Condoleezza Rice var utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna í
stjórn George W. Bush.
„Við ætlum að bjóða okkar félagsmönnum og velunnurum í
afmælisveislu í Heilsustofnun NLFÍ (Náttúrulækningafélag
Íslands) í Hveragerði og halda upp á daginn með pompi og
prakt. Hollar veitingar verða í boði, Karlakór Selfoss tekur
nokkur lög, ávörp verða flutt og Geir Jón Þórisson, yfir-
lögregluþjónn í Reykjavík, annast veislustjórn. Svo verður
gestum boðið að skoða stofnunina sem er auðvitað flaggskip
félagsins,“ segir formaðurinn Ingi Þór Jónsson um fyrir-
hugaða afmælisveislu Náttúrulækningafélags Reykjavík-
ur á morgun, 15. nóvember, en þá verða 60 ár síðan félagið
var stofnað.
Náttúrulækningafélag Reykjavíkur varð formlega til 15.
nóvember árið 1949 þegar NLFÍ varð að bandalagi nátt-
úrulækningafélaganna. Um leið urðu allir fyrrverandi fé-
lagsmenn NLFÍ félagar í NLFR. Tilgangur félagsins hefur
frá upphafi verið að breiða út boðskap náttúrulækninga-
manna, að vekja almenning til umhugsunar um heilbrigða
og skynsama lifnaðarhætti meðal annars með fræðslustarfi
og málþingum hvers kyns.
„Við, eða réttara sagt félagið í heild sinni, það er NLFÍ,
stöndum enn fyrir fræðslu og tökum þátt í málþingum.
Svo höfum við skipulagt grasaferðir og matreiðslunám-
skeið,“ segir Ingi Þór. „Ekki má gleyma því að við höfum
veitt viðurkenningar til einstaklinga, fyrirtækja og stofn-
ana, sem okkur þykir hafa með sýnilegum hætti lagt sitt
af mörkum til að efla heilbrigði og framboð af lífrænum
hollustuvörum.“
Náttúrulækningafélag Reykjavíkur hefur allt frá stofnun
verið fjölmennasta náttúrulækningafélagið á landinu. Þegar
Björn L. Jónsson, veðurfræðingur og síðar yfirlæknir Heilsu-
hælisins, tók fyrstur við embætti formanns félagsins 1949
voru félagsmenn 1.150 talsins. Að sögn Inga Þórs hafði fé-
lagsmönnum fækkað eitthvað á tíunda áratugnum þegar talan
fór niður í 300 en hefur fjölgað aftur á síðustu tíu til fimmtán
árum og eru nú um 840 talsins.
„Hinn vestræni heimur hefur breyst mikið og áhuginn á
heilbrigðum lifnaðarháttum eykst sífellt,“ segir Ingi Þór, sem
er lærður matreiðslumaður og segist í gegnum starf sitt hafa
öðlast áhuga á félaginu. „Svo fannst mér saga félagsins ekki
síður spennandi og sú þekking sem það geymir. Síðustu sex-
tán ár hef ég sem formaður haldið uppi merkjum félagsins
með góðu fólki mér við hlið: þau Ásthildi Einarsdóttur vara-
formann, Brynju Gunnarsdóttur ritara og Bjarna Þórarinsson
gjaldkera.“
Og hvað er svo fram undan? „Að gera enn betur og horfa
kannski svolítið til fortíðar. Stuðla að frekara fræðslustarfi
og vera í samvinnu við fyrirtæki og félög með svipaðar
áherslur. En fyrst er það afmælið,“ segir Ingi Þór og bætir
við að veisluhöldin hefjist á morgun klukkan 15. „Þess skal
líka getið að allir sem mæta fá frítt í baðhús HNLFÍ og svo
afmælispakka í tilefni dagsins.“ roald@frettabladid.is
NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG REYKJAVÍK-
UR: FAGNAR 60 ÁRA AFMÆLI Á MORGUN
Vel tekið á móti
boðsgestum
FORMAÐURINN Ingi Þór í Krúsku, verslun og matstofu, sem er í eigu
NLFÍ. Félagið starfrækti á árum áður matstofu að Skálholtsstíg 7 og
síðar Á næstu grösum á Laugavegi 20B. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Auðar Vordísar
Jónsdóttur
Hrafnistu í Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu deildar H1 í
Reykjavík fyrir frábæra umönnun og umhyggju.
Jón Heiðar Guðmundsson Þóra Björg Stefánsdóttir
Elín Guðmundsdóttir Guðjón Ármann Einarsson
Helga Guðmundsdóttir Ólafur E. Jóhannsson
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Guttormur Ármann
Gunnarsson
frá Marteinstungu, Holtum,
andaðist á Landspítalanum þriðjudaginn 10. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Marteinstungukirkju
laugardaginn 21. nóvember kl. 14.00.
Elke Gunnarsson,
börn, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Svanfríðar Kristínar
Benediktsdóttur
frá Hnífsdal,
Sóltúni 2, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni fyrir frábæra umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Ágúst Jónsson Birna Geirsdóttir
Sigurborg Sveinbjörnsdóttir Jón K. Guðbergsson
Anna Jenný Rafnsdóttir Gylfi Ingólfsson
Ásdís Lára Rafnsdóttir
Elínborg Jóna Rafnsdóttir
Edda Maggý Rafnsdóttir Þórarinn Kópsson
Aðalheiður Arna Rafnsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Rögnvaldur H.
Haraldsson
Sóleyjarima 9, Reykjavík,
lést á Landakotsspítala fimmtudaginn 12. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ingibjörg Andrésdóttir
Brynja Björk Rögnvaldsdóttir Þórhallur G. Harðarson
Rögnvaldur Óttar Rögnvaldsson Margrét Gísladóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýju við andlát
og útför elsku hjartans dóttur okkar,
systur og barnabarns,
Guðrúnar Hebu
Andrésdóttur
Guð blessi ykkur öll.
Andrés Sigmundsson Þuríður Freysdóttir
Sigmundur Andrésson Azadeh Masoumi
Sigurjón Andrésson Margrét Sara Guðjónsdóttir
Agnes Sif Andrésdóttir
Ágúst Örn Gíslason
Sigmundur Andrésson Dóra Hanna Magnúsdóttir
Aðrir aðstandendur.
Ástarþakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför ástkærs sonar okkar,
bróður, mágs og frænda,
Kristins Arnar
Friðgeirssonar
Barðastöðum 35, Reykjavík.
Guðbjörg Erla Andrésdóttir Friðgeir Sveinn Kristinsson
Guðmundur Friðgeirsson Hildur Björk Hafsteinsdóttir
Margrét Friðgeirsdóttir
Daníel Örn Guðmundsson Kári Steinn Guðmundsson
Ragnheiður Jóna A. Laufdal Kristinn Sæmundsson
Birkir Blær Kristinsson Aðalsteinn Einir Kristinsson
Innilegar þakkir færum við þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Fríðu Sólveigar
Ólafsdóttur
Þökkum af hlýhug starfsfólki Landspítalans, Sigurði
Björnssyni lækni, hjúkrunarfólki á 11B og líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Einnig viljum við þakka
heimahjúkrun Karitas, þau öll studdu okkur svo dyggi-
lega. Vinnuveitendum og samstarfsfólki viljum við
einnig þakka fyrir umburðarlyndi og skilning á erfiðum
tímum.
Gunnar R. Jónsson
Gunnar Atli Gunnarsson Sonja Sif Jóhannsdóttir
Ragnheiður Gunnarsdóttir
Hákon Gunnarsson Katrín Kristjánsdóttir
og ömmubörn.
MOSAIK
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
Solveig Sigurlaug
Ólafsdóttir
Hlévangi, Keflavík,
andaðist sunnudaginn 8. nóvember. Útförin fer fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Ólöf Guðjónsdóttir Þorsteinn Árnason
Jón Ágúst Guðjónsson Ragnheiður Guðbjörg
Óskarsdóttir