Fréttablaðið - 14.11.2009, Side 100
72 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Áhugaverður landsleikur fer fram í Katar
í dag þar sem England og Brasilía mætast.
Mikil forföll hafa verið í liði Englend-
inga.
Í liðið vantar David Beckham, Frank
Lampard, Steven Gerrard, Ashley Cole,
Rio Ferdinand og Glen Johnson svo ein-
hverjir séu nefndir. Svo er óvissa með
þátttöku Johns Terry í leiknum en
Wayne Rooney verður gerður að
fyrirliða fari svo að Terry geti
ekki leikið.
„Rooney er klár í slaginn og
tilbúinn að taka við fyrirliða-
bandinu ef á þarf að halda,“
staðfesti Fabio Capello, lands-
liðsþjálfari Englands.
Sökum meiðslanna má búast við
því að Michael Carrick verði aðalmaðurinn á miðj-
unni. Hann er væntanlega feginn að fá tækifæri
eftir slakan leik gegn Úkraínu. Spurs-mennirnir
Tom Huddlestone og Jermaine Jenas gætu einnig
komið við sögu.
Peter Crouch verður væntanlega í framlínunni
með Rooney en Crouch hefur gengið vel að skora
með enska landsliðinu, hefur skorað ellefu mörk í
síðustu ellefu landsleikjum. Matthew Upson verður
væntanlega við hlið Terrys ef hann getur spilað.
Hvað varðar Brasilíu er ljóst að Robinho
mun ekki spila þó svo hann sé í hópnum.
Hann er ekki enn tilbúinn. - hbg
England og Brasilía mætast í vináttulandsleik í Katar í dag:
Margir meiddir hjá Englendingum
FABIO CAPELLO Stillir ekki upp sínu
sterkasta liði í dag.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
var í vikunni gagnrýndur af Herði
Magnússyni íþróttafréttamanni í
viðtali í Morgunblaðinu. Hörður
sagði að engu líkara væri en að
Eiður Smári væri orðinn saddur
á boltanum og við það að hætta.
Sjálfur gefur Eiður Smári lítið
fyrir þessa gagnrýni Harðar.
„Eiður virkar hálf-áhugalaus og
hefur greinilega lítið sjálfstraust
þessa dagana. Honum leiðist inni
á vellinum, vill ekki fá boltann og
hreyfir sig ekki nóg. Hann virkar
ekki í sínu besta formi. Hann var
að vísu að koma úr meiðslum en
það afsakar ekki þessa frammi-
stöðu. Það er engu líkara en að
hann sé orðinn saddur á boltan-
um og sé við það að leggja skóna
á hilluna.“
Breytingin var mikil
Þannig lýsir Hörður áliti sínu á
frammistöðu Eiðs Smára með AS
Monaco í frönsku úrvalsdeildinni í
viðtali við Morgunblaðið sem birt-
ist 10. nóvember síðastliðinn. Sama
dag birtist einnig viðtal við Gunn-
laug Jónsson, þjálfara Vals og
fyrrverandi atvinnumann í knatt-
spyrnu. Hann vill gefa Eiði Smára
meiri tíma „til að aðlagast nýjum
aðstæðum“ en Eiður fór frá Barce-
lona til Monaco í lok ágústmánaðar
síðastliðins.
„Ég heyrði af þessari umfjöll-
un,“ segir Eiður Smári. „Ummæli
Gunnlaugs lýsa nákvæmlega því
sem búið er að gerast hjá mér.
Þetta var vissulega mikil breyt-
ing og kannski var hún mun
stærri en ég gerði mér grein fyrir
í upphafi,“ viðurkennir hann.
„En það er svo annar maður
sem fullyrðir að mér leiðist inni á
vellinum og að ég sé orðinn sadd-
ur,“ segir hann og gerir stutt hlé
á máli sínu. En heldur svo áfram:
„Eini maðurinn sem lítur út fyrir
að vera saddur er Hörður Magnús-
son sjálfur og þannig hefur hann
alltaf litið út.“
Hann segir það eðlilegt að hann
fái tíma til að aðlagast franska
boltanum, sem og nýju tungumáli
og hugarfari. „Mér finnst ekki
skrýtið að Hörður Magnússon, sem
var aldrei meira en áhugamaður í
fótbolta, skilji það ekki. Gunnlaug-
ur Jónsson skilur það hins vegar
vel enda margreyndur sjálfur.“
Eiður getur þó vel
tekið undir að hann
hafi ekki verið að
finna sig það sem
af er frönsku
úrvalsdeildinni
í haust. „Ég hef
ekki líkst sjálf-
um mér í þess-
um leikjum. En
það verður að hafa
það einnig í huga að
ég hef ekki feng-
ið margar mín-
útur inni á
vellinum. Ég held að samtals hafi
þetta verið um þrír heilir knatt-
spyrnuleikir við gjörbreyttar
aðstæður fyrir mig. Þar að auki var
ég frá í þrjár vikur vegna meiðsla
sem settu strik í reikninginn.“
Eiður hefur ekki fengið háar
einkunnir fyrir frammistöðu sína
í frönskum fjölmiðlum og tölfræð-
iúttektir þarlendra miðla hafa sýnt
að hann er einfaldlega mun minna
í kringum boltann en liðsfélagar
hans. Hann hefur heldur enn ekki
fengið að spila heilan leik frá
upphafi til enda.
„Ég upplifi mig ekki sem
minni þátttakanda en aðrir. Ég
held að þetta snúist frekar um
að ég er ekki kominn inn í leik-
stíl liðsins og að aðrir leikmenn
hafi ekki vanist því hvernig ég
spila. Ég hreyfi mig til að mynda
öðruvísi og tel að mínir styrkleikar
hafi ekki fengið að njóta
sín enn. Auðvitað
er líka ekkert gaman að þurfa að
fara af velli í hálfleik eða eftir sex-
tíu mínútur. Það hefur vissulega
verið hikst á þessu en maður bítur
bara á jaxlinn og heldur áfram.“
Engin vandamál hjá félaginu
Hann segir að sér hafi verið vel
tekið hjá félaginu. Honum gangi
einnig vel að læra frönsku og
kynnast liðsfélögunum.
„Ég er byrjaður að babla á
frönsku og skil nánast allt. Liðs-
félagarnir hafa tekið mér vel enda
held ég að ég sé nokkuð auðveldur
í umgengni. Samstarfið við þjálf-
arann er einnig ágætt.“
Eiður þvertekur fyrir að það
hafi verið mistök að fara til Frakk-
lands. „Alls ekki. Þó svo að lífið
hafi ekki verið dans á rósum þarf
ekki að líta á það sem mistök. Ég
hef alltaf náð að breyta hlutunum
mér í hag þegar á móti blæs og
því mun ég breyta aftur nú.
Mér bara leiðist þegar menn,
sem sitja og horfa á leikina,
eru að setja sig í spor ann-
arra og gagnrýna þá án þess
að hafa hugmynd um hvað
málið snýst um. Hörður segir
að ég hafi verið í miklu uppá-
haldi hjá sér og því hafi hann
áhyggjur af mér. Ég held að
Hörður ætti frekar að eyða
orkunni sinni í að hafa
áhyggjur af sjálfum
sér frekar en mér.“
eirikur@frettabladid.is
Ef einhver lítur út fyrir að vera
saddur þá er það Hörður sjálfur
Eiður Smári Guðjohnsen gefur lítið fyrir gagnrýni á sig sem birtist í Morgunblaðinu í vikunni. Hann sé ekki
kominn með leiða á fótbolta. „Það voru ekki mistök að fara til Frakklands,“ segir Eiður við Fréttablaðið.
ÓSÁTTUR Eiður
Smári er óánægð-
ur með gagnrýni
Harðar Magnús-
sonar.
N
O
R
D
IC
P
H
O
TO
S/
A
FP
,
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
ST
EF
Á
N
Það er mikil handboltahelgi hjá Haukum en karlalið félagsins
mætir ungverska liðinu Pler KC í tveimur leikjum um helgina.
Leikirnir eru í 3. umferð Evrópukeppni félagsliða. Fyrri leikur-
inn fer fram í dag klukkan 16 en síðari leikurinn á sunnudag
klukkan 18.
„Þetta lið er um miðja deild í Ungverjalandi sem
stendur. Því hefur gengið illa á heimavelli en þeim
mun betur á útivelli,“ segir Aron Kristjánsson, þjálfari
Hauka, en er það ekki bara ástæðan fyrir því að þeir
seldu Haukum heimaleikinn sinn? „Það er aldrei
að vita nema þetta sé einhver taktík hjá þeim. Þeir
voru annars fljótir að hringja og bjóða okkur leikinn
er þeir sáu hvað það kostar að fljúga hingað.“
Það hefði heldur ekki verið ódýrt fyrir Hauka
að fara út og þeir græða meira að segja á því að
kaupa útileikinn hingað heim. „Það munar 200
þúsund krónum á kostnaðinum, þannig að við
spörum og fáum tvo heimaleiki. Við getum ekki
kvartað.“
Pler tapaði aðeins með einu marki fyrir Pick Szeged á dög-
unum, sem Aron segir gefa til kynna að liðið búi yfir nokkrum
gæðum.
„Þetta lið er með sterkan markvörð og er jafnt heilt yfir. Engar
stjörnur en vel spilandi strákar. Fyrir fram má ætla að liðin séu
áþekk að styrkleika,“ segir Aron en smá basl hefur verið á undir-
búningi Haukanna. Gunnar Berg Viktorsson og Tjörvi Þorgeirs-
son eru veikir og svo meiddist Pétur Pálsson lítillega gegn FH.
Aron vonast þó til að allir verði klárir í slaginn í dag.
Haukunum hefur gengið vel í Evrópukeppninni undan-
farin ár og virðist það henta liðinu afar vel að spila gegn
sterkari liðum.
„Við höfum oft spilað yfir getu ef eitthvað er. Við erum
oft taldir vera minna liðið og þá náum við upp stemn-
ingu sem myndar gífurlega orku í liðinu. Hún verður
til þess að menn ná sínu besta fram. Vonandi verður
framhald á því,“ segir Aron og hvetur fólk til þess að
mæta. Miðaverð er 1.500 kr. fyrir þá sem kaupa á báða
leikina en stakur miði kostar 1.000 kr.
ARON KRISTJÁNSSON: HAUKAR SPILA TVO HEIMALEIKI AÐ ÁSVÖLLUM UM HELGINA
Græða 200 þúsund á því að kaupa útileikinn
> Leikið í N1-deild kvenna
Þrír leikir fara fram í N1-deild kvenna í handbolta í dag
þar sem hæst ber leik Íslands -og bikarmeistara Stjörn-
unnar gegn Haukum í Mýrinni í Garðabæ kl.
13. Stjarnan er á miklu skriði og hefur nú
unnið fimm leiki í röð eftir tapið gegn Val í
fyrstu umferð deildarinnar. Haukar hafa
aftur á móti tapað tveimur toppslögum
til þessa, gegn Val og Fram, og þurfa því
nauðsynlega á sigri að halda í dag til
þess að dragast ekki aftur úr. Þá tekur
Fram á móti FH í Framhúsinu kl. 15 og
Víkingur fær KA/Þór í heimsókn í Víkina
kl. 16.
FÓTBOLTI Framherjinn Mateja Zver
hefur náð samkomulagi við Pepsi-
deildarfélag Þór/KA um að vera
áfram í herbúðum félagsins og
spila með því næsta sumar.
Dragan Stojanovic, þjálfari
Þórs/KA, kveðst í viðtali á heima-
síðu Þórs vera í skýjunum með að
halda Zver hjá félaginu.
„Ég er mjög ánægður með að
okkur hafi tekist að halda henni
hjá okkur. Hún er frábær leik-
maður sem bæði getur skorað og
lagt upp mörk. Við vitum að lið frá
Rússlandi og Grikklandi sem og
lið frá Íslandi reyndu að fá hana til
liðs við sig og því er það ánægju-
efni að hún skyldi velja að halda
sig hjá okkur,“ sagði Dragan. - óþ
Mateja Zver áfram hjá Þór/KA:
Var eftirsótt af
öðrum liðum
FÖGNUÐUR Leikmenn Þór/KA náðu
besta árangri í sögu félagsins síðasta
sumar. MYND/STEFÁN
FÓTBOLTI Guðrún Jóna Kristjáns-
dóttir hætti formlega í gær sem
þjálfari Aftureldingar þegar hún
fékk sig lausa undan samningi við
Mosfellsbæjarliðið. Samningurinn
náði upphaflega út næsta sumar.
Guðrún Jóna hefur verið sterk-
lega orðuð við þjálfarastöðuna hjá
KR en hún vildi ekkert gefa upp
um það þegar Fréttablaðið heyrði
hljóðið í henni í gær.
„Það er ekkert staðfest enn
með KR. Ég vil halda áfram í
þjálfun en veit ekki hvort ég
tek mér frí núna eða ekki. Þetta
kemur fljótlega í ljós,“ segir Guð-
rún Jóna. - óþ
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir:
Ekkert staðfest
enn með KR
Aðeins eitt verð
1.190, - kr/kg
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Ath! Sama hvað það er.
Allur ferskur fi skur, allir fi skréttir
....allur fi skur í fi skborði.
Tilboðið gildir alla vikuna.