Fréttablaðið - 08.12.2009, Page 54

Fréttablaðið - 08.12.2009, Page 54
38 8. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 564 0000 L L 16 L 10 10 JULIE AND JULIA kl. 5.20 - 8 - 10.35 ARTÚR 2 kl. 4 - 6 THE BOX kl. .5.30 - t8 - 10.30 LOVE HAPPENS kl. 8 2012 kl. 4.45 - 8 - 10.30 2012 LÚXUS kl. 4.45 - 8 SÍMI 462 3500 2012 kl. 8 THE BOX kl. 8 - 10.10 LOVE HAPPENS kl. 6 9 kl. 6 10 16 L 7 7 12 10 L 16 WHATEVER WORKS kl. 5.50 - 8 - 10.10 A SERIOUS MAN kl. 5.40 - 8 - 10.20 2012 kl. 5.45 - 9 DESEMBER kl. 6 - 8 STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM kl. 10 SÍMI 530 1919 L 16 10 16 16 JULIE AND JULIA kl. 5.20 - 8 - 10.35 PARANORMAL ACTIVITY kl. 8 - 10 2012 kl. 6 - 9.15 ZOMBIELAND kl. 6 STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM kl. 6 - 9 SÍMI 551 9000 SÍÐUSTU SÝNINGAR SÍÐ UST U S ÝNI NG AR .com/smarabio 600 Gildir ekki í Lúxus 600 600 600 600 600 600 600 600 600 600 700 AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ, BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL. SÍÐUSTU SÝNINGAR 30.000 MANNS! 32.000 MANNS! JÓLAMYNDIN Í ÁR! FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA EKKI VIÐ HÆFI UNGRA BARNASÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. J i m C a r r e y ROBERT PATTINSON OG KRISTEN STEWART ERU MÆTT Í EINNI STÆRSTU KVIKMYNDASERÍU ALLRA TÍMA! Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna16 16 16 NINJA ASSASSIN kl. 5:50 - 8 - 10:10 NINJA ASSASSIN kl. 8 - 10:10 TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 5:20 - 8 - 10:10 - 10:40 TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 5:20 A CHRISTMAS CAROL M/ Ensku. Tali kl. 5:50(3D) Ótextuð A CHRISTMAS CAROL M/ ísl. Tali kl. 5:50 A CHRISTMAS CAROL M/ Ensku. Tali kl. 8 - 10:10 PANDORUM kl. 8 LAW ABIDING CITIZEN kl. 8 COUPLES RETREAT kl. 5:50 NINJA ASSASSIN kl. 8 - 10:40 TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 6 - 8 - 9 - 10:10 A CHRISTMAS CAROL M/ ísl. Tali kl. 5:50(3D) A CHRISTMAS CAROL M/ Ensku. Tali kl. 5:50(3D) Ótextuð THE TWILIGHT SAGA: NEW MOON kl. 8 - 10:30 MORE THAN A GAME kl. 6 NINJA ASSASSIN kl. 8 - 10 CHRISTMAS CAROL M/ ísl. Tali kl. 6 FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR MATRIX HÖRKU HASARMYND 12 12 12 12 V I P V I P 7 7 7 7 7 7 7 7 16 16 ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í SAMBÍÓUNUM Í DAG KR. 500 GILDIR EKKI Í VIP, Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG Á MYNDIR Í 3D OG BEINAR ÚTSENDINGAR - bara lúxus Sími: 553 2075 EXTRACT kl. 6, 8 og 10 12 ARTHÚR 2 - Íslenskt tal kl. 6 L COCO BEFORE CHANEL kl. 8 og 10.10 L 2012 kl. 7 og 10.10 10 HUGLJÚF OG HEILLANDI MYND UM ÆVI COCO CHANEL JÓLAMYNDIN Í ÁR 500 kr. 500 kr. 500 kr. 500 kr. Tónlist ★★★★ Dry Land Bloodgroup Blóðflokkur A+ Í Bloodgroup eru systkinin Lilja, Hallur og Ragnar Jónsbörn, sem ólust upp á Egilsstöðum, og Færeyingurinn Janus Rasmussen. Þau hafa harkað af ástríðu í tölvupoppinu undanfarin ár og mæta nú með plötu númer tvö, Dry Land. Það er auðheyrt frá fyrstu tónum plötunnar að nú dregur til tíðinda. Fífldjarft stuðið á fyrstu plötunni Sticky Situations hefur verið dempað til mikilla muna. Hér er rólegra yfir, dekkra, alvarlegra og mun almennari sval- heit í gangi. Mér finnst þetta frábær skipti því galsaskapur fyrstu plötunnar höfðaði ekkert sérstaklega til mín og varð ansi fljótt leiðigjarn. Hann var sem saminn inn í fyrirliggjandi mót frá svipuðum skoppandi neonlitum hljóðgervlasveitum. Nú er bandið sloppið úr mótinu og fer sínar eigin leiðir. Ég á von á að þessi plata verði lífseigari, enda vinnur hún hægt og bítandi á og er stórgóð þegar hún hefur verið melt. Hljóðgervla- og trommuheilaknúið rosapopp nær hér áður óþekktum hæðum á Íslandi. Þykkar og djúsí mottur frábærlega samansettra takta og gervla eru kryddaðar stöku sinnum með strengjum í útsetningum Ólafs Arnalds. Janus, sem áður var aðallega í því að reka upp stuðhvetjandi gól, er nú farinn að syngja annað hvert lag á móti Lilju, og bæði standa sig vel. Svalt undirspil og góður söngur myndi auðvitað litlu máli skipta ef melódíurnar væru eitthvert krapp. Sem betur fer eru þær mjög góðar og útpældar. Tónlistin minnir á Human League á köflum, bæði á tímabilið þegar Human League var vinsælt poppband og líka á fyrra tímabil sveitar- innar þegar bandið var þungt og alvarlegt. Þetta er tónlist til að kinka kolli við á reykmettuðum bar árið 2020 og það eru auðvitað vélmenni á barnum sem bera fram drykkina. Og hér koma svo stóru orðin: Að mínu mati skara tvær íslenskar plötur fram úr á ágætu útgáfuári og fá fullan skammt af stjörnum. Terminal með Hjaltalín og þessi frábæra plata með Bloodgroup. Bravó! Dr. Gunni Niðurstaða: Stórt stökk í þróunarferli Bloodgroup. Önnur af bestu íslensku plötum ársins. DJ Kiki-Ow og DJ Curver halda „Millennium“-partí á Nasa á gamlárskvöld. Þar verður spiluð tónlistin sem hljómaði um árþús- undaskiptin, á árunum 1999 til 2001. Á meðal þeirra flytjenda sem fá að hljóma eru Destiny´s Child, Aphex Twin, Daft Punk, Peaches, Fatboy Slim, Beastie Boys og Quarashi. Partíið hefst klukkan 1 eftir miðnættti og er miðaverð 2.900 krónur. Aldurs- takmark er tuttugu ár. Miðasala hefst mánudaginn 14. desember á Midi.is. Einnig verða miðar til sölu í verslunum Spútnik. Árþúsunda- partí á Nasa KIKI OG CURVER DJ Kiki-Ow og DJ Curver spila lög frá árþúsundaskiptun- um í partíinu á Nasa á gamlárskvöld. Bókaforlagið Bjartur efndi til hófs í bæki- stöðvum sínum við Bræðraborgarstíg fyrir skömmu til að fagna vel heppnuðu útgáfuári. Bjartur með útgáfuhóf Ármann Jakobsson, Páll Valsson og Þórdís Gísladóttir voru á meðal gesta í útgáfuhófinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Bjarni Þorsteinsson og Halla Kjartansdóttir litu við. Lilja Sigurðardóttir og Elísa Björg Þorsteinsdóttir mættu í hófið. Þröstur Helgason og Pétur Ólafsson voru á meðal gesta.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.