Fréttablaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 8. desember 2009 17
UMHVERFISMÁL Íbúafundur í Mýr-
dalshreppi hafnaði friðlýsingu
á hvannastóði undir Reynis-
fjalli. Þar er búsvæði sniglateg-
undarinnar brekkubobba og vill
Umhverfisstofnun friða það.
Í niðurstöðu íbúafundarins,
sem sóttur var af 80 til 100
manns, sagði hins vegar að ekki
yrði séð að hvönn eða brekku-
bobba væri nokkur hætta búin
af manna völdum. Þá sagði
umhverfis- og náttúruverndar-
nefnd Mýrdalshrepps að sú sátt
sem ætti að vera forsenda friðlýs-
ingarinnar meðal heimamanna
væri ekki fyrir hendi. Í kjölfarið
hafnaði sveitarstjórn öllum frið-
lýsingaráformum að svo komnu
máli. - gar
Íbúafundur í Mýrdalshreppi:
Vilja ekki friða
búsvæði snigla
REYKJAVÍK Varamaður F-lista,
Gunnar H. Hjálmarsson, segir að
skrifstofustjóri borgarstjórnar
hafi ýjað að því að hann ætti ekki
að hafa kafla um meint hagsmuna-
tengsl Kjartans Gunnarssonar
og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
borgarstjóra í bókun F-lista 1.
desember.
„Hann spurði hvort þetta væri
viðeigandi og hvort þetta væru
ekki dylgjur eða slíkt. Ég er nú
kannski ekki vanur stjórnmála-
maður og ég lét þetta hafa áhrif á
mig,“ segir Gunnar, sem tók kafl-
ann út.
Fulltrúar F-lista hafa haldið því
fram að Hanna Birna hafi verið
vanhæf í málum þar
sem Landsbankinn
kom við sögu, meðal
annars vegna sam-
starfs Hönnu Birnu
og Kjartans Gunn-
arssonar, fyrrum
framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokks og
stjórnarformanns
Landsbanka.
Ólafur Kr. Hjörleifsson,
skrifstofustjóri borgar-
stjórnar, vill ekki ræða
um einstök samtöl við
borgarfulltrúa. Oft sé
þeim þó bent á hvað
kunni að stangast á við
fundarsköp borgarinn-
ar. Það sé svo undir við-
komandi borgarfulltrúa
komið hvort hann taki
mark á því eður ei.
Samkvæmt 19. grein sam-
þykktar um stjórn borgar-
innar og fundarsköp borgar-
stjórnar er vítavert
að bera aðra
menn brigsl-
um. - kóþ
Varamaður Ólafs F. hætti við að fjalla um Hönnu Birnu og Kjartan Gunnarsson:
Breytti bókuninni á síðustu stundu
„Þetta mál verður enn alvarlegra
þegar horft er til þess að árin 1999-
2006 var Hanna Birna Kristjáns dóttir
aðstoðar framkvæmda stjóri Sjálf-
stæðisflokksins. Yfirmaður hennar
í Valhöll og jafnframt náinn vinur
um árabil var Kjartan Gunnarsson
fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins. Hann er þó þekkt-
astur fyrir að gleyma því hverjir gáfu
Sjálfstæðisflokknum 30.000.000 kr.
í kosningastyrki, en það var einmitt
Landsbankinn þar sem Kjartan
Gunnarsson var stjórnarmaður bæði
fyrir og eftir einkavinavæðingu Sjálf-
stæðisflokksins á bankanum.“
ORÐIN SEM HURFUDÓMSMÁL Þrír menn hafa verið
dæmdir í tveggja mánaða
skilorðs bundið fangelsi fyrir
að slasa mann með höggum og
spörkum og kasta svo í hann reið-
hjóli. Sá sem fyrir árásinni varð
úlnliðsbrotnaði og brotnaði einn-
ig á baugfingri, auk fleiri áverka.
Árásin átti sér stað við
verslunar miðstöðina Fjörð í
Hafnarfirði.
Rétt þótti að skilorðsbinda refs-
inguna í tvö ár þar sem óútskýrð-
ur dráttur hafði orðið á rannsókn
málsins. Einn mannanna var fyrr
á árinu dæmdur í hundrað þús-
und króna sekt fyrir eignaspjöll.
- jss
Þrír karlmenn dæmdir:
Köstuðu reið-
hjóli í mann
Bæjarráð Hveragerðis hafnar því
að greiða fyrir nám barns sem býr
í bænum en vill vera í Ísaksskóla í
Reykjavík. Bæjarráð segir umsóknina
ekki falla undir reglur bæjarins um
nám utan lögheimilis sveitarfélags.
SVEITARSTJÓRNIR
Ekki styrktur í Ísaksskóla
Maður hefur verið ákærður fyrir að
kýla og nefbrjóta mann fyrir þremur
árum við Hressingarskálann í Reykja-
vík. Fórnarlambið krefst 325 þúsunda
króna í bætur.
DÓMSTÓLAR
Kýldi mann og nefbraut
GUNNAR H. HJÁLMARS-
SON Vara borgar-
fulltrúi F-
listans.
RÚMENÍA, AP Sósíaldemókratar
í Rúmeníu draga í efa opinber
úrslit forsetakosninganna á
sunnudag.
Kjörstjórn lýsti í gær núver-
andi forseta, Traian Basescu,
sigur vegara kosninganna, með
50,33 prósent atkvæða þegar
99,95 prósent höfðu verið talin.
Leiðtogi Sósíaldemókrata, Mir-
cea Geoana, var sagður hafa
fengið 49,66 prósent. Sósíaldemó-
krataflokkurinn er arftaki gamla
Kommúnistaflokksins, sem
stjórnaði landinu í fjóra áratugi.
- gb
Bascescu lýstur sigurvegari:
Sósíaldemó-
kratar ósáttir
MIRCEA GEOANA Leiðtogi Sósíaldemó-
krata sættir sig ekki við niðurstöðu
kjörstjórnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP