Fréttablaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 30
8. DESEMBER 2009 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● jólagjöfi n hans
Mjúkir pakkar eru vísir með að hitta í mark en þó er gullna
reglan sú að þekkja vel smekk viðkomandi áður en fest eru
kaup á gjöfinni. Fréttablaðið fékk tvö pör til að fara í verslun-
arleiðangur, þar sem dömurnar fengu fyrst að klæða herrana
upp og svo fundu herrarnir á sig fatnað að eigin vali. Eins og
sjá má á meðfylgjandi myndum geta pör haft ólíkar hug-
myndir um hvað klæðir herrann best.
Afslappað eða
uppstrílað
Erna Björk Sigurgeirsdóttir, viðskiptafræðingur og sambýliskona Valgeirs,
valdi á hann alklæðnað úr versluninni Kultur Menn. Skórnir eru úr smiðju Paul
Smith, peysan frá Matinque, buxurnar frá Tiger og jakkinn frá Private Label.
Erna þekkir augljóslega smekk síns manns, sem vill látlausan fatnað og forð-
ast sterka liti. Valgeir var því að vonum ánægður með útkomuna.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Hólmfríður Anna Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi og sambýliskona Freys, valdi á hann fatnað úr
verslun inni Andersen & Lauth. „Mér finnst hann flottur í James Bond stíl og hafði það til hliðsjónar þegar ég valdi fatn-
aðinn, sem er hannaður undir merkjum Andersen & Lauth,“ segir Anna og bætir við að bindið og jakkinn hafi fengið að
ráða ferðinni. Þess má geta að svo vel líkaði Frey útkoman að hann keypti fatnaðinn.
Freyr Eyjólfsson fréttamaður segist ekki hafa neinn fast-
mótaðan smekk, helst ráðist stílinn af tilefninu hverju
sinni. Við þetta tilefni valdi hann sér föt í Herrafataverslun
Kormáks og Skjaldar, þar með talið gamlan breskan líf-
varðafrakka, pípuhatt og svartan staf. „Mér finnst þetta
bara rosalega jólaleg föt,“ segir Freyr. „Tignarlegt, hugsaði
ég líka með mér, þótt ég líkist sjálfsagt Jóakim aðalönd,
svona eftir á að hyggja,“ segir hann hlæjandi og bætir við
að aðeins hafi tekið hann fimm mínútur að velja gallann
meðan hans heittelskaða þurfti heilar 45 mínútur til þess.
Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður var ekkert að flækja
hlutina þegar hann valdi á sig föt. Manchester United
treyja í Útilífi varð fyrir valinu. „Áður en við Erna konan
mín byrjuðum saman keypti ég árlega svona treyju, en
það var áður en hún kenndi mér betur á tískuna,“ segir
Valgeir og bætir við að fótboltatreyjur séu ekki bara
flottar heldur þægilegar.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
ÓVISSUTÍMI FYRIR ÁST-
FANGNA Rómantískur óvissutími er
frábær jólagjöf fyrir hinn heitt elskaða,
hvort sem sambandið er nýhafið eða
hjónabandið hefur enst í fjörutíu ár.
Það er að sjálfsögðu val hverrar og
einnar hversu löngum óvissutíma hún
vill eyða með sínum heittelskaða en
sex tímar eru nú lágmark og sólar-
hringur eða heil rómantísk helgi frá-
bært. Þá er bara að nota hugmynda-
flugið, það þarf hvorki að vera dýrt né
umfangsmikið. Ástina er þó fallegast
að sýna í verki með því að taka mið af
því sem honum finnst gaman, hvort
sem það er fótbolti, golf, sagnfræði
eða myndlist. Það er svo aldrei að vita
nema áhugi vakni á áhugamálum
hins heittelskaða ef hún hefur ekki
áhugann fyrir, fari hún að kynna sér
þau með opnum huga. Sameiginleg
áhugamál fá ástina til að blómstra.
- uhj
HEITAR LAUGAR
læsileg bók um eitt
lsta undrið í náttúru
Íslands.
allað er um á annað
ndrað laugar um allt
nd, náttúrulaugar og
manngerðar laugar.
auðsynleg handbók
yrir alla sem ferðast
um Ísland.
SKRUDDA
★★★★