Fréttablaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 8. desember 2009 11
SAMGÖNGUR Ríkið hyggst styrkja færri ferðir
en áður með ferjum, flugvélum og áætlunarbíl-
um. Vegagerðin áætlar að spara með þessu á
bilinu 130 til 140 milljónir króna á næsta ári.
Ætlun Vegagerðarinnar er að styrkja viku-
lega tólf ferðir Herjólfs til Vestmannaeyja í
stað fjórtán eins og verið hefur á þessu ári.
Ríkisstyrktar ferðir með Breiðafjarðarferj-
unni Baldri verði sex í stað sjö. Tvær ferðir
verða með Grímseyjarferjunni Sæfara í stað
þriggja. Hríseyjarferjan Sævar fær greitt með
38 ferðum á viku í vetur í stað 44 áður. Að sum-
arlagi verða 63 ferðir styrktar í stað 77 ferða.
Þá verður hætt að styrkja Mjóafjarðarferj-
una að sumarlagi og í skoðun er að hætta að
styrkja þær tvær ferðir sem nú eru styrktar til
Vigurs og Æðeyjar.
Í áætlunarflugi verða áfram styrktar
fjórtán ferðir vikulega milli Reykjavíkur og
Vestmannaeyja fram til 1. ágúst en þá verður
styrkjunum hætt. Tvær ferðir verða áfram
til Gjögurs fyrir utan að á tímabilinu júní til
september verður aðeins ein ferð styrkt. Í
stað sex ferða á viku til Sauðárkróks verða
fimm ferðir styrktar og átta ferðir á Höfn í
Hornafirði í stað níu áður. Þá verður dregið
saman í styrkjum á ýmsum sérleyfisleiðum
áætlunarbíla.
„Rétt er að minna á að rekstraraðilum er
að sjálfsögðu heimilt að fara fleiri ferðir
þótt Vegagerðin styrki þær ekki,“ bendir
Vegagerðin á. - gar
Spara á 140 milljónir króna með lækkun styrkja til almenningssamgangna:
Ríkið veitir minna fé í rútur, ferjur og áætlunarflug
GRÍMSEYJARFERJAN SÆFARI Niðurskurður Vegagerðarinnar bitnar meðal annars á þeim sem sigla með Grímseyjar-
ferjunni því styrktar ferðir verða aðeins tvær á viku í stað þriggja. MYND/FREYR ANTONSSON
Bestu vinir þínir eru bestu vinir þínir og Síminn elskar alla jafnt.
Í Sex vinir óháð kerfi hjá Símanum velurðu þér sex vini hjá
hvaða farsímafyrirtæki sem er og sendir þeim SMS eða
hringir í þá fyrir núll krónur.*
Skráðu þína sex vini á siminn.is, í næstu verslun Símans
eða í síma 800 7000.
Sex vinir alveg óháð kerfi
Sími
Netið
SjónvarpÞað er800 7000 • siminn.is
Hengjum
okkur ekki í
smáatriði!
Vinátta – alveg
óháð kerfi.
ÍRAK, AP Kosningum sem halda
átti í Írak 16. janúar næstkomandi
verður að líkindum frestað um 45
daga, til 27. febrúar.
Kjörnefnd landsins lagði til
að kosningunum yrði frestað til
að frambjóðendur fengju betri
tíma til að aðlagast nýjum kosn-
ingareglum sem samþykktar
voru nýverið. Yfirgnæfandi
líkur eru taldar á því að tillögur
nefndarinnar um kjördag verði
samþykktar.
Sérfræðingar óttast að breyt-
ingin verði til að seinka því að
bandarísk stjórnvöld dragi her-
afla sinn frá landinu. Áformað
hafði verið að hefja brottflutning
þeirra 120 þúsund hermanna sem
nú eru í Írak um miðjan mars. Þau
áform gætu nú verið í uppnámi,
en ekki hafði verið tilkynnt um
frestun brottflutningsins í gær. - bj
Kosningum í Írak frestað:
Líklega kosið í
lok febrúar
SVEITARFÉLÖG Hugmyndir sveitarfé-
laganna um styttingu kennslutíma í
grunnskólum munu í fyrsta lagi ná
fram að ganga
næsta haust.
Að sögn Hall-
dórs Halldórs-
sonar, formanns
Sambands
íslenskra sveit-
arfélaga, hefur
menntamálaráð-
herra ekki gefið
sveitarfélögun-
um endanlegt
svar um hvort hún ætli að koma
til móts við hugmyndir þeirra um
að breyta lögum til að stytta lág-
markskennslutíma í grunnskóla um
3-4 kennslustundir á viku.
Halldór segir þó ljóst að breyt-
ingarnar muni í fyrsta lagi taka
gildi í byrjun nýs skólaárs næsta
haust. Sveitarfélögin eru nú að
ljúka við að afgreiða fjárhagsáætl-
anir sínar vegna 2010 og miðast
þær við óbreytt lágmark kennslu-
stunda fram á vorið.
Halldór segir að ef verði muni
sveitarfélögin nýta sér heimild til
að draga úr kennslu í mismiklum
mæli. Sum sveitarfélög geti látið
nægja að hagræða í rekstri grunn-
skóla með því að hætta að ráða nýja
starfsmenn í stað þeirra sem hætti.
Þar sem fjárhagsstaðan sé verst
geti hins vegar þurft að draga úr
kennslutíma til að ná nauðsynlegri
hagræðingu. - pg
Ráðherra hefur ekki svarað sveitarfélögum um lágmarkskennslu í grunnskólum:
Breytingar í fyrsta lagi í haust
HALLDÓR HALLDÓRSSON Formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga segir
breytingarnar taka gildi næsta haust.
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
STJÓRNMÁL Fjórir stærstu raforku-
notendur landsins, Járnblendifé-
lagið, Norðurál, Rio Tinto Alcan
og Alcoa, ætla að greiða hluta
af sköttum sínum fyrir fram og
stuðla þannig að auknum fjárfest-
ingum í atvinnulífinu.
Greiða þau samtals 1,2 millj-
arða króna árlega á næstu þremur
árum upp í væntanlega álagningu
á árunum 2013-2018.
Samkomulag um þetta var
undirritað í gær. Í framhaldi
þessa mun ríkisstjórnin leggja
fram frumvarp til laga um íviln-
anir vegna fjárfestinga á Íslandi
sem ætlað er að örva fjárfestingu
í atvinnurekstri. - bþs
Stórnotendur raforku:
Borga skatta
fram í tímann
ORKUMÁL Heildsöluverð raforku
frá Landsvirkjun mun hækka
um 4,4 prósent um áramótin.
Hækkunin byggir á ákvæðum í
langtímasamningum um breyt-
ingar í samræmi við hækkandi
verðlag, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Landsvirkjun.
Á grundvelli sömu ákvæða
hækkaði Landsvirkjun raforku-
verð um 7,5 prósent í júlí síð-
astliðnum. Þá hafði vísitala
neysluverðs hækkað um 11,9
prósent, og er því Landsvirkjun
nú að hækka um það sem upp á
vantaði í 11,9 prósenta hækk-
unina, segir í tilkynningu frá
fyrirtækinu. - bj
Gjaldskrá Landsvirkjunar:
4,4% hækkun
um áramótin