Fréttablaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 32
8. DESEMBER 2009 ÞRIÐJUDAGUR6 ● fréttablaðið ● jólagjöfi n hans
● YLJANDI GJÖF Vönduð pressukanna, góður kaffipakki og tveir
krúttlegir bollar er vinargjöf sem getur sannarlega komið sér vel og
verið grundvöllur að notalegum og uppbyggilegum stund-
um fyrir viðtakandann. Ekki spillir ef súkkulaði er látið fylgja
með.
Espresso-kanna sem hituð er á eldavél eða
stungið er í samband við rafmagn gerir auðvitað
sama gagn. Valið er algerlega frjálst af hálfu gefandans
og úrvalið af bollum er slíkt í búðum að þar
finnur hann pottþétt einhverja sem fellur
fyrir.
● AÐ METAST UM TAPPATOGARA Áhugi á
góðum vínum hefur aukist gríðarlega hér á landi á síð-
ustu árum, ekki síst meðal karlmanna. Smökk-
un og samanburður ólíkra vína er að verða
að áhugamáli margra, sem og það hvers
konar vín hentar með hvaða mat. Jóla-
gjöfin hans í ár gæti því verið falleg tæki
og tól, jafnvel hönnun sem hæfir þessu
áhugamáli. Það er sama hvert áhugamálið er, að
eiga bestu græjurnar, jafnvel þótt það sé bara
tappatogari, fullkomnar nautnina sem viðkom-
andi fær út úr áhugamálinu. Karlmenn hafa alltaf
nett gaman af því að metast.
● DAÐRAÐ VIÐ LISTAGYÐJUNA Ef listamaður
leynist innra með manninum þínum er tilvalið að gefa
honum eitthvað sem leysir sköpunarkraftana úr læð-
ingi. Blýantar og skissublokk, olíulitir, strigi, trönur,
leir og tiltæk áhöld ættu að hitta beint í mark. Svo
er í boði fjöldi sniðugra námskeiða í hinum ýmsu
listgreinum fyrir byrjendur og lengra komna sem
ættu að gleðja þinn heittelskaða, bæði á vegum
einstaklinga sem og helstu listaskóla landsins. Það
er ágætt að fara á Netið og kynna sér úrvalið.
Matmaðurinn í lífi þínu elskar
þig ef þú gefur honum eitt-
hvað í jólagjöf sem þjónar
ástríðum hans.
Þú vilt vera réttu megin við mat-
gæðinginn. Hann býður nefnilega
oft í mat og eldar alveg dásamlega
rétti sem hann ýmist tók úr ein-
hverri stórkostlegri matreiðslubók
eins og Silfurskeiðinni, stal frá
Jóa Fel í sjónvarpinu og betrum-
bætti „a la moi“ með trufflusvepp-
um og koníaki, eða hreinlega sauð
sjálfur saman úr úrvalshráefni,
kryddum og hugmyndaflugi.
Besta gjöfin, bæði frá þínum
bæjardyrum og hans, er að við-
halda þessari ástríðu með því að
gefa honum eitthvað sem vekur
nýjar og áður ókannaðar bragð-
lendur í munni þessa lífsnautna-
manns. Framandi krydd, úrval
af framandi salti og óvenjulegar
olíur renna ljúflega inn í hjarta
matgæðingsins í lífi þínu.
Matargerðaráhöld eru líka
vel þegin. Íslenski leirpotturinn
sem gerir himneskar kássur úr
öllu mögulegu hráefni býður upp
á endalausar samsetningar og
möguleika og fallegt mortél er
hagnýt heimilisprýði.
Margir setja spurningarmerki
við að gefa hnífa enda telja sumir
það boða ógæfu en hægt er að
bægja öllu slíku frá sér með því
að gefa viðkomandi krónu um leið
og þú afhendir pakkann og taka
hana svo af honum aftur, án út-
skýringa. Þá hefurðu strangt til
tekið ekki gefið honum hnífinn
heldur selt hann og því fylgir
engin ógæfa.
Áhöld til eftirréttagerðar slá
líka í gegn, ísvélar og brennarar
til að gera hinn vandasama
eftirrétt Crème brûlée eiga eftir
að gleðja þig ekki síður en hann á
komandi árum.
Svo má auðvitað ekki gleyma
matreiðslubókunum. Bækur
Nönnu Rögnvaldardóttur eru
nauðsynleg eign hverjum mat-
gæðingi og ekki má gleyma undir-
stöðu íslenskrar eldamennsku,
Matreiðslubók Helgu Sig sem er
nýkomin aftur á markaðinn. Þú
getur sem best gefið þér leið að
hjarta matgæðingsins og þannig
tryggt þér gott í gogginn allt
næsta ár. - bb
Leiðin að hjarta matgæðingsins
Íslenskir lerkisveppir eru
sannkölluð sælkerafæða. Fást í
Búrinu og kosta 1.640 krónur.
Íslenskur leir-
pottur, frábær
til hægeldunar
á hverju sem er.
Fæst í Kokku og
kostar 25.900
krónur.
Matgæðingurinn fær aldrei nóg af efni-
við í sköpun sína.
Helga Sig-
urðardóttir
– Matur og
drykkur er
grunnrit
íslenskrar
matargerðar.
Unaðslegar og fram-
andi hnetuolíur úr
Búrinu. Þrjár í pakka
kosta 2.950 krónur.
Svart eða
appelsínu-
gult salt
frá Hawaii.
Svarta saltið
kostar 2.250
krónur en það
appelsínugula
1.950 krónur.
Fæst í Búrinu,
Nóatúni.
Það er áfangi fyrir hvern
áhugakokk að gera sitt
fyrsta Crème brûlée. Brenn-
arinn og fjögur form fást
í Byggt og búið og kosta
5.990 krónur.