Fréttablaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 33
jólagjöfi n hans ● fréttablaðið ●
● SÉRVALDAR HÚFUR
OG HANSKAR Í desember
er veðrið óútreiknanlegt og
reyndar alveg fram í mars. Það
sem við Frónbúar vitum er
að það verður kalt, hvort sem
það verður snjór, slydda, rign-
ing eða frost. Hver vill að ást-
inni sinni verði kalt við slíkar
aðstæður? Ekki einni einustu
konu! Þær vilja allar verja sinn
mann kuldanum, helst sjálfar, en
vitaskuld geta þær ekki öllum
stundum verið til staðar til þess
að hlýja ástinni sinni. Konum
er samt ekki sama hvernig
ástin þeirra er til fara í þeim
veðurham sem guðunum hugn-
ast að senda okkur hverju sinni.
Það verður að vera smart, engir
leppar af pabba duga. Í jóla-
pakkann er því tilvalið að setja
sérvaldan sixpensara eða der-
húfu og fallega leðurhanska.
Þá getur parið spókað sig hönd
í hönd hvar sem er eftir jólin í
hvaða veðri sem er.
● LÝSANDI GJÖF Góður
lampi af einhverju tagi, annað
hvort á borð eða gólf, er gjöf
sem lýsir og ljómar. Hún hent-
ar líka hverjum sem er, því allir
þurfa á birtu að halda í lífinu.
Þegar litið er í bók getur verið
nauðsynlegt að bregða upp
ljósi og handlagnir hafa sterk
not af hvers kyns lömpum er
þeir nostra við sín
áhugamál.
Hvarvetna
í ljósabúðum
eru eigulegir
lampar og
auðvelt ætti að
vera að hitta
á einhvern
sem hentar
viðtakandan-
um.
● Á PERSÓNULEGU NÓTUNUM Þau eru áreiðanlega orðin
fá ástarbréfin sem fara á milli fólks eftir að nútímatæknin hóf inn-
reið sína. Fallegt ástarbréf er gjöf sem er sérstök, persónu-
leg og ódýr. Finnið fallegt bréfsefnið og skrifið bréf til ykkar
heittelskaða beint frá hjartanu með fallegum sjálfblekungi eða
penna. Þá er virkilega voldugt að innsigla bréfin eins og gert
var við mikilvæg bréf í gamla daga en áhöld til þess má fá í flest-
um ritfangaverslunum. Einnig geta konur sett á sig rauðan vara-
lit og einfaldlega innsiglað bréfið með kossi. Vel skrifað ástarbréf er
gjöf sem aldrei gleymist og má endurnýja kynn-
in við aftur og aftur, sérstaklega þegar í
hversdagsleikanum gleymist oft að hlúa
að rómantíkinni í sambandinu. Þá má
finna aftur hlýja strauma í hjartanu og minn-
ast góðra stunda og hlúa að ástinni. Og jafnvel
skrifa annað bréf.
Veðrið getur verið óútreiknanlegt
á Íslandi á veturna. Eitt er þó víst,
það verður kalt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
7
Ástarbréf er persónuleg gjöf sem gleður.
vellíðan
slökun
streitulosun
dekur
hvíld
afslöp
– gefðu vellíðan
Opið
Mánud.–fimmtd. 6:00–21:00
Föstudaga 6:00–20:00
Laugardaga 9:00–18:00
Sunnudaga 10:00–16:00
Hilton Reykjavik Nordica
Suðurlandsbraut 2
Sími 444 5090
nordicaspa@nordicaspa.is
www.nordicaspa.is
Gjafakort í heilsulind NordicaSpa er tilvalin gjöf handa þeim sem þú
vilt gleðja. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af nudd- og snyrtimeðferðum fyrir
bæði konur og karla. Í heilsulindinni eru tvær ilmgufur, tveir heitir pottar þar sem
boðið er upp á herðanudd, slökunarlaug og úti á veröndinni er heitur pottur
og sauna. Hægt er að kaup gjafakort fyrir ákveðna upphæð í tiltekna nudd-
eða snyrtimeðferð og ýmsa spa pakka. Einnig er hægt að kaupa gjafakort í
heilsuræktina – meðlimakort eða á hin ýmsu námskeið. Við leggjum áherslu á
andlega og líkamlega vellíðan og er NordicaSpa heimur út af fyrir sig.
gjafakort
Gefðu
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009