Fréttablaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 44
28 8. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
JIM MORRISON FÆDDIST Á ÞESSUM
DEGI ÁRIÐ 1943.
„Hatur er mjög vanmetin
tilfinning.“
Söngvarinn og ljóðskáldið Jim
Morrison fæddist í Flórída í
Bandaríkjunum árið 1943. Hann
var söngvari hinnar goðsagna-
kenndu hljómsveitar The Doors,
sem naut mikilla vinsælda á síð-
ari hluta sjöunda áratugarins og
í upphafi þess áttunda. Morrison
lést í París árið 1971.
Björn Matthíasson, hagfræðingur hjá fjármálaráðuneytinu,
hélt upp á sjötugsafmælið sitt í júlí með því að ganga upp á
hið risavaxna fjall Kilimanjaro í Tansaníu. „Því fylgdi mikil
sigur- og sælutilfinning að komast upp á gígbrúnina. Ég hafði
lengi gengið með þetta í maganum og það er alltaf gaman að
ná svona markmiði,“ segir Björn.
Hann var eini Íslendingurinn í tólf manna hópi sem tókst
á við fjallið, en hinir voru frá Bretlandi. „Þetta var ágætis
fólk og okkur kom vel saman. Einn þeirra var frá Plymouth
í Englandi, og hann sagði mér að meðlimur í borgarstjórn-
inni þar hefði átt fimmtíu milljónir punda inni á Icesave-
reikningi. Það þótti mér heilmiklir peningar, en það varð
enginn óvinskapur úr þessu,“ segir Björn.
Kilimanjaro er 5.892 metrar á hæð og Björn slapp við
hæðarveiki þá sem algengt er að fólk fái ofarlega á fjallinu.
„Þetta var átta daga gönguferð. Við byrjuðum öfugu megin
við uppgöngustaðinn, gengum um þrjá fjórðu hluta í kringum
fjallið og hækkuðum okkur smám saman á leiðinni þannig að
við vöndumst hæðinni. Þannig höfðum við gengið um 4.600
metra áður en lokaatrennan tók við, en hún var nokkuð erfið.
Þetta var nokkur þolraun, en ég hef nú lent í verri veðrum og
meiri áreynslu á íslenskum fjöllum,“ segir Björn.
Afmælisbarnið gengur reglulega á fjöll á suðvesturhorninu
með fjallgönguhópnum Toppförum og hefur gengið þrisvar
sinnum á Hvannadalshnúk. Björn kynntist fjallgöngu fyrst
þegar hann starfaði með Hjálparsveit skáta í kringum
tvítugsaldurinn, fyrir um hálfri öld.
Björn útskrifaðist með meistaragráðu í hagfræði frá Yale-
háskóla í Bandaríkjunum árið 1964. Eftir það starfaði hann
hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í ein fimm ár. „Þar vann ég
meðal annars við að lána Íslandi peninga árið 1968. Svo ég
viti til er ég eini Íslendingurinn sem starfaði af hálfu sjóðs-
ins í því máli, en mótaðilar hér á landi voru þeir Jónas Har-
alz og Jóhannes Nordal. Síðan hefur Ísland ekki fengið lán
frá sjóðnum fyrr en nú,“ segir Björn.
Síðar vann Björn hjá Seðlabanka Íslands og Fríverslun-
arsamtökum Evrópu (EFTA), en hefur starfað í fjármála-
ráðuneytinu síðustu tvo áratugina. Hann lætur af störfum í
þessum mánuði vegna aldurs. Afmælisdeginum eyðir Björn
ásamt eiginkonu sinni, Heiðrúnu Guðmundsdóttur, á skipi í
Karíbahafinu. kjartan@frettabladid.is
BJÖRN MATTHÍASSON: SJÖTUGUR
Sælutilfinning
HÁPUNKTUR Björn hafði íslenska fánann meðferðis. MYND/ÚR EINKASAFNI
Ástkær eiginkona mín, móðir mín,
dóttir okkar og systir,
Elva Dögg Pedersen
Mosarima 12, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn
9. desember klukkan 13.00.
Haukur Sigurðsson
Alexander Hauksson
Palle Skals Pedersen
Sæunn Elfa Pedersen
Daníel Thor Skals Pedersen
Arnór Ingi Ingvarsson
Kær bróðir okkar,
Karl Hreiðar Mikaelsson
Reynihvammi 2, Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala sunnudaginn 29. nóvember.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miðvikudaginn 9. desember kl. 13.00.
Jónína Michaelsdóttir
Laila Michaelsdóttir
Ásta Michaelsdóttir
Linda Rós Michaelsdóttir
Dóra Jóhannesdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur og afi,
Andres Kristinsson
Þórólfsgötu 21, Borgarnesi
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 5. desem-
ber. Útför verður gerð frá Borgarneskirkju laugardag-
inn 12. desember kl. 14.00.
Ásta Kristjana Ragnarsdóttir
Ragnar Ingimar Andresson Magnea Kristín Jakobsdóttir
Sigríður Andresdóttir Ingólfur Friðjón Magnússon
Kristinn Grétar Andresson
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og bróðir,
Pétur H. Ólafsson
Lindargötu 61,
lést á líknardeild Landakotsspítala, laugardaginn
5. desember. Jarðarförin auglýst síðar.
Hrefna S. Pétursdóttir
Hugrún Pétursdóttir Marteinn E. Geirsson
Pétur K. Pétursson Anna S. Einarsdóttir
Ólína Björk Pétursdóttir
afabörnin og systkin hins látna.
Hjartkær eiginmaður, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Sigvaldi Egill Jónsson
Jarðarsbraut 29, Akranesi,
lést miðvikudaginn 25. nóvember 2009 á dvalarheimil-
inu Höfða Akranesi. Útförin hefur farið fram. Innilegar
þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýju og vin-
áttu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða.
Ósk G. Halldórsdóttir
Hilmar Sigvaldason
Helga Dóra Sigvaldadóttir
Áslaug Sigvaldadóttir
Móeiður Sigvaldadóttir Lárus Vilhjálmsson
afa- og langafabörn.
Okkar kæra,
Unnur Ólöf Andrésdóttir
fyrrverandi bóndi Móum, Kjalarnesi,
Espigerði 2,
lést á líknardeild Landspítala, Landakoti fimmtudag-
inn 3. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 11. desember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Andrés Svavarsson Þóra Stephensen
Teitur Gústafsson Katrín Guðjónsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þóra Þorbjarnardóttir
Aflagranda 40, Reykjavík,
andaðist föstudaginn 27. nóvember. Útför hennar fer
fram frá Neskirkju í dag, þriðjudag kl. 13.00.
Ásta Bára Jónsdóttir Einar Ingi Halldórsson
Þórhildur Jónsdóttir Eggert Ágúst Sverrisson
Kristín Jónsdóttir Sigurður Geir Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og bróðir,
Einar Magnússon
Suðurhólum 14, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fella og Hólakirkju
föstudaginn 11. desember kl. 13.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hans er bent á SÍBS eða aðra minningarsjóði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Petrína Einarsdóttir Hörður Kolbeinsson
Elísabet Einarsdóttir
Skarphéðinn H. Scheving Einarsson
Pálína Magnúsdóttir
95 ára afmæli
Í dag, 8. desember, er 95 ára
Dýrmundur
Ólafsson
Dýrmundur fæddist þann 8. desember 1914
á Stóruborg í Víðidal, V-Húnavatnssýslu.
Hann gegndi lengst af starfi sem póst-
fulltrúi hjá Pósthúsinu í Reykjavík.
Dýrmundur hefur alla tíð verið afar
hagmæltur og söngelskur. Hann og eigin-
kona hans, Guðrún Sveinbjörnsdóttir frá
Hnausum í Þingi, A-Húnavatnssýslu, eiga 4 börn, 16 barnabörn og
22 barnabarnabörn. Dýrmundur og Guðrún eru búsett á Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Jóhannes J. Björnsson
Byggðavegi 90, Akureyri,
lést þann 3. desember 2009.
Fyrir hönd aðstandenda,
Dagný Sigurgeirsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, amma og systir,
Katrín Hlíf Felixdóttir
Víðihlíð, Grindavík,
lést föstudaginn 13. nóvember sl. Jarðsett var í kyrrþey.
Eðvarð F. Vilhjálmsson Unnur Birna Þórhallsdóttir
Róbert M. Vilhjálmsson
barnabörn og systkini.