Fréttablaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 64
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000
Mest lesið
VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Með dýrasta vatni í Kína
Athafnamaðurinn og vatnsbóndinn
Jón Ólafsson hefur síðasta hálfa
mánuðinn ferðast um Kína og
lagt grunninn að markaðssetningu
fyrir vatn úr Ölfusi. Í síðustu viku
var hann tekinn tali í kínversku
dagblaði, þar sem eftir því var tekið
að vatnið væri nokkuð dýrt (um 235
krónur, hálfur lítri), fimmtungi dýrara
en Evian-vatn. Jón sagði
skýringuna þá að vatnið
væri hollt og gott, en auk
þess dýrt að flytja
um langan veg.
Vatnið kostar ámóta
og ódýrustu bjórar eða
kaffibollar á veitinga-
stöðum.
Bíóferðir þingmanna
Tölvupóstar Indriða H. Þorlákssonar
á WikiLeaks voru stjórnarandstöð-
unni fóður í málþófsumræðu gær-
dagsins á Alþingi. Pétur H. Blöndal
spurði Ragnheiði Elínu Árnadóttur
hvað hún héldi um dulkóðun í ráðu-
neytistölvupósti. Ragnheiður kvaðst
þekkja vel til í ráðuneytum en vissi
þó ekki um dulkóðunina. Hún hafði
þó deginum áður séð kvikmyndina
„Karlar sem hata konur“.
Þar hafði persóna komist
í allan tölvupóst. Hvort
það væri hægt í alvöru
vissi hún ekki. Pétur steig
aftur í pontu og gladdist
yfir því að þingmenn
kæmust í bíó.
Nýr bæklingur
er kominn út
Kringlunni • Smáralind • Laugavegi • Akureyri www.tiger.is
15% afsláttur
af vetrar yfirhöfnum
til jóla ásamt fjölda
annarra tilboða
Frjálsi lífeyrissjóðurinn var valinn besti lífeyrissjóður á Íslandi á árlegri verðlaunahátíð á vegum
fagtímaritsins Investment Pension Europe (IPE) nú í nóvember. Okkur er einnig sérstök
ánægja að greina frá því að Frjálsi lífeyrissjóðurinn var valinn næstbesti lífeyrissjóður í Evrópu
af lífeyrissjóðum sem eru minni en 1 milljarður evra (183 milljarðar kr.).
Í umsögn dómnefndar segir m.a. að Frjálsa lífeyrissjóðnum hafi tekist að vernda hagsmuni sjóðfélaga við erfiðar
markaðsaðstæður með því að minnka áhættu sjóðsins í fjárfestingum og einnig er vakin athygli á uppbyggingu
sjóðsins og auknu gagnsæi.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er rekinn af Arion banka, er um 75 milljarðar kr. og sjóðfélagar rúmlega 43.000.
Sjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða 12% lágmarksiðgjald og jafnframt
hentar hann þeim sem vilja ávaxta viðbótarlífeyrissparnað.
Nánari upplýsingar um Frjálsa lífeyrissjóðinn hjá lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444 7000 eða á frjalsilif.is
Frjálsi lífeyrissjóðurinn
hlýtur alþjóðleg verðlaun
sem besti lífeyrissjóður
á Íslandi
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
R
I
48
21
8 Hafðu samband
sími 444 7000 • frjalsilif.is
Bjarnfreðarson í útrás
Eftirvæntingin eftir kvikmyndinni
Bjarnfreðarson er gríðarleg enda
lokahnykkurinn í einni vinsælustu
sjónvarpsþáttaröð seinni tíma. Brot
úr myndinni hafa vakið sterk við-
brögð og á vef Ásgríms Sverrissonar,
icelandcinemanow.is, er verið að
kjósa besta bíóplakat áratugarins þar
sem Bjarnfreðarson er með yfirburð-
arstöðu. Athyglisverðast er hins
vegar að vefsíðan slashfilm.
org hefur fjallað um mynd-
brotið en hún sérhæfir sig
í slíkum skrifum. Þar
er stiklan sögð ein
sú fyngnasta sem
sést hafi lengi.
- óká, fgg
1 Hagaskóli rýmdur vegna
reyksprengju
2 Steinunn Valdís hlaut
heilahristing þegar hún rann
á svelli
3 Tölvupóstsamskipti Indriða
við AGS á lista yfir
trúnaðargögn
4 Útsýni framtíðarinnar?
5 Enron-hneykslið verður
söngleikur á Broadway