Fréttablaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 8
8 8. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1 Sjö íslensk folöld eru á lang-
ferðalagi um þessar mundir.
Hver er áfangastaðurinn?
2 Hvar er fimmtánda loftslags-
ráðstefna Sameinuðu þjóðanna,
sem hófst í dag, haldin?
3 Hvað heitir söngvarinn
í hljómsveitinni The Virgin
Tongues sem slasaðist illa hér
á landi?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46
KAUPMANNAHÖFN Niðrandi ummæli
á bloggsíðu danskrar lögreglukonu
um innflytjendur frá Mið-Austur-
löndum urðu til þess að henni var
sagt upp í gær.
Áður hafði hún hlotið dóm fyrir
að hafa brotið lög sem banna
niðrandi ummæli um minnihluta-
hópa á opinberum vettvangi.
Konan taldi sér til málsbóta að hún
hefði ekki vitað að allir gætu lesið
bloggsíðuna hennar, sem hún sagði
ætlaða vinum sínum.
Forsaga málsins var sú að konan
var kölluð til vinnu um helgi þegar
hún átti að vera í fríi í febrúar í
fyrra. Mikið var að gera hjá lög-
reglunni í Kaupmannahöfn þá
vegna innflytjenda, sem höfðu
meðal annars kveikt í ruslatunn-
um og bílum.
Samkvæmt vefsíðu dagblaðsins
Politiken íhugar konan að áfrýja
máli sínu til hæstaréttar en hún
hefur verið dæmd sek á tveimur
neðri dómsstigum landsins. - sbt
Dönsk lögreglukona talaði niður til innflytjenda:
Rekinn vegna um-
mæla á bloggsíðu
ORKUMÁL Skuldir Orkuveitu Reykjavíkur (OR)
hafa rúmlega fjórfaldast frá árslokum 2005,
síðasta heila árinu sem Reykjavíkurlistinn var
við völd, segir Sigrún Elsa Smáradóttir, full-
trúi Samfylkingarinnar í stjórn OR.
Sigrún segir útilokað að skýra þessa gríð-
arlegu skuldaaukningu með hruni krónunnar
einu. Nærtækara sé að líta til framkvæmda-
hraða undanfarinna ára.
Sigrún segir skuldir OR, uppreiknaðar á
verðlag í júní 2009, hafa numið 55,1 milljarði
króna í árslok 2005. Í dag standi þær í 231
milljarði króna, sem sé ríflega fjórföldun á
fjórum árum.
Í Markaðspunktum, sem greiningardeild
Arion banka sendi frá sér í gær, kemur fram
að skuldir OR hafi tvöfaldast vegna gengisfalls
krónunnar eftir að kreppan skall á. Á móti
komi að vaxtalækkanir erlendis hafi dregið úr
vaxtakostnaði fyrirtækisins í erlendri mynt.
Lánshæfi OR sé í ruslflokki, sem muni gera
endurfjármögnun lána og nýjar lántökur dýr-
ari og erfiðari en ella.
Þessi erfiða staða OR mun sníða fyrirtæk-
inu verulega þröngan stakk á næstu misserum
nema nýtt eigið fé verði sett í fyrirtækið, eða
krónan styrkist verulega. Hvorugt er líklegt á
næstunni, að mati greiningardeildar Arion.
Að mati greiningardeildarinnar er svig-
rúm OR til nýrra fjárfestinga á næstunni
afar þröngt, nema með aukinni lántöku. Það
sé aftur óæskilegt hjá svo skuldsettu fyrir-
tæki. Þá sé svigrúm fyrirtækisins til að greiða
arð mjög takmarkað, og óeðlilegt væri ef til
arðgreiðslna kæmi á sama tíma og skuldsett
einkafyrirtæki séu að auka hlutafé sitt og
vinna að frekari endurskipulagningu. Erlend
lán námu samkvæmt síðasta árshlutareikningi
206 milljörðum króna. Af því eru um áttatíu
milljarðar á gjalddaga næstu fimm árin, segir
í Markaðspunktum Arion banka. - bj
Ekki hægt að kenna hruni krónunnar um allan vanda OR segir fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn fyrirtækisins:
Segir skuldir OR hafa fjórfaldast frá 2005
HELLISHEIÐI Svigrúm Orkuveitu Reykjavíkur til nýrra
fjárfestinga á næstunni er afar þröngt að mati greining-
ardeildar Arion banka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Leiga í Soginu hækkar
Stangaveiðifélag Reykjavíkur þarf að
borga hærri leigu fyrir veiðiréttindi
í Soginu í samræmi við áður gerða
samninga. Vegna efnahagsþrenging-
anna óskaði félagið eftir því að leigan
vegna sumarsins 2010 myndi ekki
hækka en sveitarstjórn Grímsness- og
Grafningshrepps hafnaði þeirri ósk.
SVEITARSTJÓRNIR
Friðarsiglingum lýkur
Síðasta friðarsigling ársins út í Viðey
verður í kvöld. Siglingarnar eru farnar
í tengslum við friðarsúlu Yoko Ono,
og siglt hefur verið öll kvöld frá 9.okt-
óber, þegar kveikt var á Friðarsúlunni.
Lagt er af stað klukkan átta og siglt í
land klukkan tíu.
REYKJAVÍK
VIÐSKIPTI Fjárhagsleg endurskipu-
lagning sparisjóðsins Byrs er vel á
veg komin og er nú beðið þess að
eiginfjárframlagið sem óskað var
eftir hjá ríkinu í vor skili sér. Það er
lokahnykkurinn á endurskipulagn-
ingu sparisjóðsins. Í framhaldinu
verður eiginfjárhlutfall sparisjóðs-
ins í samræmi við reglur Fjármála-
eftirlitsins. Hlutfallið hljóðar upp á
átta prósenta eiginfjárhlutfall.
Jón Finnbogason sparisjóðsstjóri
segir stjórnina hafa átt gott sam-
starf við bæði Fjármálaeftirlitið og
fjármálaráðuneytið auk kröfuhafa.
„Við bindum miklar vonir við að
niðurstöður muni liggja fyrir innan
nokkurra vikna,“ segir hann. Málið
sé í eðlilegum farvegi.
Fjármálaráðuneytið hnykkti á því
sömuleiðis í gær. Í tilkynningu frá
því sagði að ráðuneytið ynni með
efnahags- og viðskiptaráðuneyti,
Seðlabanka og Fjármálaeftirlitinu
að leiða endurskipulagningu spari-
sjóðanna til lykta. Í ofanálag sagði
Samband íslenskra sparisjóða auð-
velt að sýna fram á að það kostaði
þjóðfélagið 80 til 120 milljarða að
leggja sparisjóðunum ekki til tut-
tugu milljarða króna eiginfjár-
framlag.
Fréttablaðið greindi frá því
í gær að kostnaður ríkisins við
eiginfjárframlag til Byrs næmi
tæpum ellefu milljörðum króna.
Það er tveimur milljörðum meira en
ríkið lagði í Arion banka og Íslands-
banka samanlagt þegar upp var
staðið. Björgun Byrs væri kostn-
aðarsöm aðgerð og hagkvæmara
kynni að vera að annað fjármála-
fyrirtæki tæki yfir starfsemi spari-
sjóðsins.
Stofnfjáreigendur í Byr eru
margir mótfallnir því að ríkið leggi
honum til fé enda ljóst að stofnfjár-
eign þeirra í sparisjóðnum muni
verða að nær engu. Tveir þriðju
hlutar stofnfjáreigenda þurfa að
samþykkja ríkisleiðina.
Þeir sem Fréttablaðið hefur
rætt við segja stöðu sparisjóðanna
almennt sterka úti á landi og sinni
þeir hlutverki sínu almennt vel.
Hins vegar þurfi að sníða stakk
eftir vexti. Fjármálakerfi landsins
sé enn of stórt og því þurfi að finna
hagkvæmar leiðir til að skera það
niður. jonab@frettabladid.is
BYR Þótt stjórn sparisjóðsins hafi óskað eftir eiginfjárframlagi frá ríkinu til að bæta
stöðuna eru dæmi um að stofnfjáreigendur séu því mótfallnir. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Byr segir allt
tilbúið og rík-
isfjárins beðið
Stofnfjáreigendur eru ekki áfjáðir í að ríkið leggi fé
í Byr. Endurskipulagning miðar við að féð skili sér.
Samband íslenskra sparisjóða segir þjóðfélagið geta
tapað 120 milljörðum hjálpi ríkið ekki sjóðnum.
Við bindum miklar vonir
við að niðurstöður muni
liggja fyrir innan nokkurra vikna
JÓN FINNBOGASON
SPARISJÓÐSSTJÓRI
VEISTU SVARIÐ?