Fréttablaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
jólagjöfin hansÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordis@365.is 512 5447
Þegar blaðamaður náði tali af séra Gunnari var hann á leiðinni á bekkpressumót lögreglumanna en gaf sér tíma til að svara nokkrum spurningum. Því lá fyrst beint við að spyrja hvaða erindi sérann ætti á samkomuna. „Ég hef verið gesta-keppandi á mótunum,“ svarar hann hress í bragði. Tekur fram að þar sem hann sé í aukahlutverki sýnihann keppendunu fi
hann hreppti titilinn sterkasti prestur heims 2004. „Ég sigraði í keppni sem var haldin fyrir til-stuðlan Ante Ledic, prests í Bosn-íu og þáverandi methafa. Hann hafði unnið mikið með stríðshrjáð-um og skoraði á presta í aflrauna-keppni í þeim tilgangi að brúa bilið milli múslima og kristinna “ist G
Þarna upplifi ég að menn eru bræð-ur í leik,“ segir hann og bætir við að þessi íþróttagrein henti að auki vel mönnum á sínum aldri. „Þetta er miklu skemmtilegra en göngu-túrar og svo er minna um slys en í hópíþróttum.“Sjálfur fó G
Lyftingar göfga andann
Gunnar Sigurjónsson, sóknarprestur við Digraneskirkju í Kópavogi, hefur stundað kraftlyftingar um
nokkra hríð og segir leitun að íþróttagrein þar sem jafn mikið er lagt upp úr liðsheild og félagsanda.
UPPELDI SEM VIRKAR – færni til framtíðar er foreldranám-
skeið þar sem lögð er áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að
skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í
lífi barns. Hægt er að kaupa gjafabréf á slík námskeið á Þroska- og
hegðunarstöð, Þönglabakka 1. www.heilsugaeslan.is
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/PJETU
R
„Ég var svolítið latur í sumar en er að rífa mig af stað og hef verið að bæta mig,“ segir séra Gunnar Sigurjónsson.
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
www.eirberg.is • 569 3100
Rafknúnir
hæginda-
stólar
•
standa upp
• Einfaldar stillingar
og fjölbreytt úrval
Fi
ÞRIÐJUDAGUR
8. desember 2009 — 290. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
SÉRA GUNNAR SIGURJÓNSSON
Telur kraftlyftingar
göfga andann
• heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Gekk á
Kilimanjaro
Björn Matthíasson
hagfræðingur er
sjötugur í dag.
TÍMAMÓT 28
Birting virðingar
„Það er mikill munur á því að
reigja sig og þykjast vera eitthvað
eða því að kikna í hnjánum og
biðjast afsökunar á að vera til,“
skrifar Jónína Michaelsdóttir.
Í DAG 20
Mannauðs-
gjörningur
Myndlistarkonurnar
Helena Hans
og Elín Anna
Þórisdóttir búa til
sultuna Eldmóð.
FÓLK 46
FÓLK Bók Nönnu Rögnvaldardóttur, Maturinn hennar
Nönnu, er tilnefnd í tveimur flokkum til hinna
virtu verðlauna Gourmand World Cookbook sem
frumlegasta bókin og best myndskreytta árið 2009.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem bók eftir íslenskan
höfund er tilnefnd því Delicious Iceland eftir kokk-
inn Völund Snæ Völundarson hefur unnið til verð-
launanna, en samkeppnin um þau er mjög hörð. Í
fyrra voru sendar inn rúmlega 6.000 bækur frá 107
löndum og í ár taka alls 136 lönd þátt í keppninni.
Markmið verðlaunanna er meðal annars að hjálpa
lesendum að velja milli þeirra 26.000 titla sem
koma út árlega um mat og vín og auka þekkingu og
virðingu fyrir matar- og vínmenningu.
„Það skiptir máli að hafa verið valin þarna í ákveð-
ið úrval. Þetta þýðir að þær bækur sem eru tilnefnd-
ar, hvort sem þær fá verðlaun eða ekki, verða á sýn-
ingum víða og vekja meiri athygli,“ segir Nanna.
Úrslitin verða tilkynnt á matreiðslubókasýningu í
París 11. febrúar. - ag /sjá síðu 46
Matreiðslubókin Maturinn hennar Nönnu vekur athygli:
Tilnefnd til alþjóðlegra bókaverðlauna
JÓLAGJÖFIN HANS
Tæki, alklæðnaður,
áhöld og ástarbréf
Sérblaðið Jólagjöfin hans
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
3
3
2
3
5
163 skattfrjálsir
vinningar
að verðmæti
22.690.000 kr.
Krabbameins-
félagsins
Jóla-
happdrætti
Dregið 24. desember 2009
GÓÐ NÆRING,
FYRIR HRESSA KRAKKA!
1.731 vika
x 7 + 3 Vá!
12.120 dagar
Ó
· 1
29
64
www.tiger.is
FÓLK Bandaríski háskólaprófess-
orinn Michael Novak hefur fóstr-
að sex kindur á Íslandi í gegnum
verkefnið Kindur.is. Hann heim-
sótti landið fyrst árið 2007 og
hefur síðan þá ferðast hingað til
lands nokkuð reglulega.
Novak segist hafa heillast af
hugmyndafræðinni að baki verk-
efninu, en það er að bæta aðgang
borgarbúa að sveitinni. Novak
hefur tvisvar heimsótt Ísland
ásamt hóp af nemendum sínum
frá Bandaríkjunum og segir
íslenska lambakjötið vera besta
kjötið sem hann hafi nokkru
sinni smakkað. - sm
Michael Novak:
Elskar lömb og
lambakjöt
BÍTLALAG VIÐ REYKJAVÍKURTJÖRN Karlakórinn Fjallabræður söng í gær Bítlalagið All You Need Is Love í blíðskaparveðri við
Reykjavíkurtjörn. Alls sungu fulltrúar frá 158 þjóðum þetta vinsæla lag samtímis og verður útkoman sýnd á heimasíðunni
Starbucksloveproject.com. Allur ágóði af verkefninu rennur til baráttunnar gegn alnæmi í Afríku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Enginn þingmaður óskaði
nokkurn tímann eftir því að trún-
aði á tölvupóstsamskiptum Ind-
riða H. Þorlákssonar og Marks
Flanagan yrði aflétt.
Þetta segir Guðbjartur Hannes-
son, formaður fjárlaganefndar
Alþingis.
Þingmenn gátu lesið tölvupóst-
ana, ásamt ýmsum öðrum gögnum
er varða Icesave-málið, í lokuðu
herbergi í húsakynnum Alþing-
is gegn heiti um að halda trún-
að. Gögnin hafa legið fyrir með
þeim hætti frá því í júní. Almenn-
ingur hefur haft aðgang að lista
yfir trúnaðargögn á vefsvæðinu
island.is.
Tölvupóstarnir komu fyrir
sjónir almennings í fyrrakvöld á
upplýsingasíðunni WikiLeaks. Þar
má lesa bréf Indriða, þá ráðuneyt-
isstjóra í fjármálaráðuneytinu
og fulltrúa í samninganefnd
Íslands vegna Icesave, og Marks
J. Flanagan, yfirmanns sendi-
nefndar Alþjóðagjaldeyris sjóðs-
ins á Íslandi.
Í framhaldinu kröfðust nokkrir
stjórnarandstöðuþingmenn þess,
á þingfundi í gær, að trúnaði yrði
létt af öllum gögnum.
Guðbjartur Hannesson, formað-
ur fjárlaganefndar, kveðst ekki
ætla að taka afstöðu til þeirrar
kröfu. Í fjárlaganefnd hafi orðið
sá sameiginlegi skilningur að
almennt yrðu minnisblöð með
einhliða frásögnum af fundum og
sambærilegir tölvupóstar bundn-
ir trúnaði. Hins vegar hafi hann
gengist fyrir því að trúnaði yrði
aflétt af öllum þeim plöggum sem
óskað hafi verið eftir. „Við sóttum
þá heimild fyrir því og fengum.
Slíkum beiðnum var aldrei neit-
að,“ segir Guðbjartur.
Spurður hvort samskipti Ind-
riða og Flanagans hafi verið rædd
í fjárlaganefnd segir Guðbjartur
svo ekki hafa verið. „Enginn tók
þau upp þó að þau hafi vitaskuld
mátt ræða í nefndinni.“
- bþs / sjá síðu 4
Trúnaði létt af öllu
sem óskað var eftir
Orðið hefur verið við óskum um opinberun gagna er varða Icesave. Aldrei beðið
um að trúnaði yrði létt af samskiptum Indriða Þorlákssonar og starfsmanns AGS.
BANDARÍKIN, AP Breski auðkýfing-
urinn Richard Branson kynnti í
gær nýtt geimfar, sem vellauðug-
ir einstaklingar geta keypt sér far
með út í geiminn.
Þetta verður fyrsta einkarekna
geimferðaþjónusta veraldar.
Nú þegar hafa þrjú hundruð
manns bókað far, sem kostar 200
þúsund Bandaríkjadali, en það
samsvarar nærri 25 milljónum
króna á núverandi gengi.
Bransons vonast til þess að
fyrstu geimfararnir komist
út fyrir gufuhvolfið einhvern
tímann á árinu 2011, en fyrst
þarf að gera margvíslegar örygg-
isprófanir á farartækinu. Sjálfur
ætlar Branson að fara með fjöl-
skyldu sinni í fyrstu ferðina. - gb
Um 300 manns hafa bókað:
Geimferðir
boðnar til sölu
NÝJA GEIMFLAUGIN Branson kynnti
SpaceShipTwo í Los Angeles í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fínt veður NA-til Í dag verða
austan 8-13 m/s S- og V-til, annars
yfirleitt mun hægari. Fer að rigna
sunnan- og suðaustanlands síð-
degis. Hiti 0-8 stig, mildast syðst.
VEÐUR 4
Naumur
Gróttusigur
Grótta og Valur
eru komin áfram
í undanúrslit
bikarkeppni karla
í handbolta.
ÍÞRÓTTIR 40