Fréttablaðið - 08.12.2009, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2009
● EFTIRMINNI-
LEG STUND Alltaf
vekur lukku að gefa gjöf
sem er ávísun á ánægju-
lega stund og skilur eftir
sig skemmtilegar minn-
ingar. Ferð í leikhús fell-
ur í þann flokk en mörg
leikhúsanna selja gjafa-
, áskriftar- eða afsláttar-
kort sem hægt er fá nán-
ari upplýsingar um á
heimasíðum leikhúsanna
eða með því að hafa sím-
leiðis samband við miða-
sölu. Til að auðvelda leit-
ina má benda á að vef-
síðan www.leikhus.
is er með tengla
á öll helstu at-
vinnu- og áhuga-
mannaleikhús á
landinu, sömuleiðis
fréttir úr leikhúslíf-
inu, upplýsingar um
helstu sýningar sem
eru í gangi og þær
sem eru væntanlegar á
næstunni.
Allir hafa þörf fyrir endurnær-
ingu, slökun og dekur stöku sinn-
um og hvað er þá betra en nudd og
gufa? Aðgangur að slíkum þægind-
um er hlýleg gjöf sem öllum kemur
vel. Að láta þreytuna líða úr lík-
ama og sál, finna vöðvana slakna
og áhyggjurnar dvína er eftirsókn-
arverð upplifun.
Víða er völ á þannig munaði og
því ætti að vera vandalaust að finna
stað sem hentar þeim sem gjöf-
in er ætluð. Einn af ákjósanlegum
stöðum er Alsæla/Spa á Álftanesi
þar sem boðið er upp á taílenskt
nudd og gufu og einnig heitan sjó-
pott uppi á svölum með útsýni yfir
Skerjafjörðinn og borgina. - gun
Slökun, nudd og dekur
Í Alsælu/Spa á Álftanesi eru taílenskir nuddarar en áður en þeir taka til starfa er
gestum gefið angandi engiferte að sötra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● BÍTLAR FYRIR ALLA
Fyrr á árinu voru allar hljóðversplötur Bítlanna, auk safns laga sem ekki
náðu inn á plöturnar og heyrðust einungis á smáskífum, endurunnar
og gefnar út í glæsilegri geisladiskaöskju með gnótt af upplýsingum,
heimildarmyndum og fleira góðgæti fyrir aðdáendur fjórmenninganna
frá Liverpool.
Í raun er erfitt að mæla á móti því að þessi Bítlakassi sé jólagjöfin í ár
fyrir alla, konur sem karla, gamla sem unga, mennska sem ómennska og
þar fram eftir götunum. Bítlarnir gerðu bestu plötur sem heyrst hafa og
þær hafa aldrei hljómað betur. Að vísu kosta herlegheitin skildinginn, en
aurnum þeim er vel varið.
fyrir herrana
Gjafakort Landsbankans er greiðslukort sem býður uppá að
gefandinn ákveði upphæðina og viðtakandinn velji gjöfina.
Þú færð gjafakortið í næsta útibúi Landsbankans.
Ein gjöf sem hentar öllum
GJAFAKORT | landsbankinn.is | 410 4000
N
B
I h
f.
(L
an
ds
ba
nk
in
n)
, k
t.
47
10
0
8
-0
28
0
.
EN
N
EM
M
/
SÍ
A
/ N
M
39
89
0