Fréttablaðið - 19.12.2009, Qupperneq 6
6 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
BRUNI Talsverðar skemmdir urðu
á báðum íbúðum í tvíbýlishúsi í
Vestmannaeyjum aðfaranótt föstu-
dags eftir að húsráðandi í kjallara
sofnaði út frá eldamennsku.
Kona sem býr á efri hæðinni
vaknaði klukkan fjögur um nóttina
við reykjarlykt og kom íbúanum
í kjallaranum til bjargar. Erfið-
lega gekk að vekja hann, en þau
voru komin út þegar lögregla og
slökkvilið komu á vettvang.
Þegar slökkvilið kom að var eng-
inn eldur í húsinu, sem er þriggja
hæða timburhús, en reykræsta
þurfti báðar íbúðir. - bj
Sofnaði út frá eldamennsku:
Talsvert tjón af
völdum reyks
REYKUR Íbúi á efri hæð vaknaði við
reykjarlykt og gat komið húsráðanda í
kjallaranum út. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
FÆREYJAR Hjálparstofnanir í Fær-
eyjum segja að þörf Færeyinga á
aðstoð fyrir jólahátíðina sé meiri í
ár en í fyrra.
Harðara sé í ári hjá fleiri fjöl-
skyldum, en sér í lagi hjá einstæð-
um mæðrum.
Fjórðungi fleiri fá pakka
frá Hjálpinni, segir Leif Erik
Nicklasen við Sósíalinn. Alls 170
fjölskyldur.
Frá SMS-verslunarmiðstöðinni,
sem er að hluta til í eigu Íslend-
inga, fóru 133 fjölskyldur með mat-
arpakka eða gjafakort í ár, en SMS
gaf ekki fátækum í fyrra. - kóþ
Kreppan kemur víða við:
Færeyingar fá
meiri jólahjálp
EFNAHAGSMÁL Bætt hefur verið
inn möguleika á að fletta upp
kennitölum til að kanna hvort
þær hafi verið skráðar á vefsíðu
InDefence-hópsins.
Þar stendur yfir undirskrifta-
söfnun þar sem skorað er á for-
seta Íslands að synja lögum um
Icesave staðfestingar þegar
Alþingi hafi samþykkt lögin.
Gagnrýnt hefur verið að ekki sé
hægt að fletta upp eigin kennitölu
til að kanna hvort hún hafi verið
ranglega skráð. Tæplega 34.500
höfðu skrifað undir áskorunina
á vef InDefence um miðjan dag í
gær. - bj
Breyting á söfnun InDefence:
Hægt að fletta
upp kennitölu
LÖGREGLUMÁL Rannsókn Fjármála-
eftirlitsins (FME) á meintum inn-
herjasvikum Baldurs Guðlaugsson-
ar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í
fjármálaráðuneytinu, einskorðað-
ist í upphafi við atburði í september
í fyrra. Við endurupptöku málsins
síðasta sumar, í kjölfar ábendinga,
beindist rannsóknin að atburðum
sem gerst höfðu fyrir september.
Þetta skýrir hvers vegna fund-
argerðir samráðshóps Seðlabank-
ans um fjármálastöðugleika frá
því sumarið 2008, sem síðan hafa
reynst innihalda mikilvægar upp-
lýsingar, voru ekki skoðaðar áður
en fyrri rannsókn var hætt. Þetta
segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins.
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að fundargerðirnar hefðu ekki verið
teknar til athugunar í fyrri rann-
sókn þrátt fyrir að Jónas Fr. Jóns-
son, sem var forstjóri FME, hefði
setið í samráðshópnum. Ábending
sem barst í sumar um efnisatriði
í fundargerðunum varð til þess að
FME hóf rannsókn málsins á ný.
Gunnar segir að rannsóknin hafi
þá verið víkkuð út og ákveðið verið
að taka lengra tímabil til skoðun-
ar, sem síðan hafi leitt til þess að
sérstakur saksóknari rannsaki nú
málið.
Gunnar vildi í samtali við Frétta-
blaðið í gær ekki leggja mat á það
hvort Jónas hefði átt að láta víkka
út rannsóknina þegar í upphafi í
ljósi þeirra upplýsinga sem hann
bjó yfir eftir setuna í samráðs-
hópnum. Gunnar segist ekki vilja
fara í „díalóg við fyrrverandi for-
stjóra um málið fram og til baka“.
Þó væri hefðbundið að frumrann-
sókn á meintum innherjasvikum
tæki fyrst og fremst til daganna í
kringum meint brot.
Í yfirlýsingu sem Jónas sendi frá
sér vegna fréttar blaðsins í gær
sagði hann að þegar hann hefði
látið af störfum forstjóra FME hefði
rannsóknin á máli Baldurs ekki
verið komin á það stig að vera á
borði forstjóra. Fundargerðir sam-
ráðshópsins hefðu verið í skjalaskrá
FME og hann hefði bent rannsak-
endum á að kynna sér efni þeirra.
Fullyrðing Jónasar um fundar-
gerðirnar stangast á við það sem
kom fram í máli Björns Þorvalds-
sonar saksóknara við málflutning
í héraðsdómi í vikunni. Þar sagði
Björn, að því er segir í Viðskipta-
blaðinu, að FME hefði þangað til nú
í sumar ekki haft aðgang að fund-
argerðunum. Ekki hafa fengist
skýringar á þessu misræmi.
Fréttablaðið sendi Jónasi
fyrirspurnir um málið í gær en
fékk ekki svar. stigur@frettabladid.is
Fyrri rannsókn FME
bundin við haustið
Fundir sem fram fóru sumarið 2008 voru ekki skoðaðir í fyrri rannsókn FME á
máli Baldurs Guðlaugssonar vegna þess að rannsóknin einskorðaðist við atburði
í september. Málið var aldrei á borði forstjóra í minni tíð, segir Jónas Fr. Jónsson.
BALDUR GUÐLAUGSSONGUNNAR Þ. ANDERSEN
„Þegar undirritaður lét af störfum forstjóra FME var
rannsókn á máli Baldurs Guðlaugssonar ekki komin á
það stig að vera á borði forstjóra. Fundargerðir svo-
nefnds samráðshóps voru fyrirliggjandi í skjalavörslu
FME og það kunnugt viðeigandi starfsmönnum. Jafn-
framt benti undirritaður rannsakendum á að kynna
sér fundargerðir samráðshópsins. Það er annarra að
svara fyrir framkvæmd og ákvarðanatöku við rannsókn
sem átti sér stað í tæpa 4 mánuði eftir að ég vék úr
starfi, og lauk þá án frekari aðgerða.“
YFIRLÝSING JÓNASAR FR. JÓNSSONAR
JÓNAS FR.
JÓNSSON
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin staðfesti
í gær samning um stofnun sendi-
nefndar Evrópusambandsins á
Íslandi.
Í samningnum er fjallað um
lögformlega stöðu sendinefndar-
innar og margvíslegar heimild-
ir hennar. Þá er kveðið á um að
hún skuli njóta þeirra réttinda,
forréttinda og friðhelgi, og vera
bundin af þeim skyldum, sem
Vínarsamningurinn um stjórn-
málasamband kveður á um.
Samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins er stefnt að því að
tólf starfsmenn verði á skrifstofu
sendinefndar ESB á Íslandi. Að
líkindum verða sjö þeirra fast-
ráðnir starfsmenn sambandsins
í Brussel en fimm verða ráðnir
á Íslandi.
Leitað er að húsnæði fyrir
nefndina, sem helst vill vera
í miðborg Reykjavíkur, nærri
helstu stjórnsýslubyggingum.
Nefndin tekur til starfa á
Íslandi í byrjun nýs árs. Yfir-
maður hennar og sendiherra
Evrópusambandsins verður Timo
Summa, sem verið hefur starfs-
maður á stækkunarskrifstofu
þess. Er hann Finni eins og yfir-
maður hans hjá ESB, Olli Rehn.
Evrópusambandið starfrækir
sendiráð eða -nefndir í um 130
ríkjum heimsins. Ísland hefur til
þessa heyrt undir sendiráð þess
í Ósló en stofnað er til starfsem-
innar hér nú í ljósi aðildarum-
sóknar Íslands. - bþs
Sendinefnd ESB nýtur forréttinda og friðhelgi samkvæmt Vínarsamningnum:
Tólf manns á Íslandsskrifstofu ESB
HÖFUÐSTÖÐVAR ESB Leit stendur yfir að
húsnæði fyrir sendinefnd sambandsins
á Íslandi.
Rósa vill fyrsta sætið
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði,
sækist eftir fyrsta sæti á lista flokksins
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor.
Rósa hefur setið í bæjarstjórn frá
síðustu kosningum.
HAFNARFJÖRÐUR
SJÁVARÚTVEGSMÁL Fimmtán þjóðir
veiddu meiri fisk en Íslendingar
á árinu 2007. Kína er langsam-
lega stærsta fiskveiðiþjóðin, en í
næstu sætum eru Perú, Indónes-
ía og Bandaríkin, að því er fram
kemur á vef Hagstofu Íslands.
Fiskveiðar virðast þó mikil-
vægari fyrir Ísland en aðrar
þjóðir sem veiddu yfir eina millj-
ón tonna árið 2007, og langmest
veitt hér á landi sé miðað við hina
frægu höfðatölu.
Á Íslandi voru veidd 4.600 tonn
fyrir hvern landsmann árið 2007,
en næst á eftir komu Noregur þar
sem veidd voru 500 kíló, og Perú
þar sem veidd voru 250 kíló á
hvern landsmann. - bj
Mestu fiskveiðiþjóðir heims:
Ísland nær sex-
tánda sætinu
LÖGREGLUMÁL Stjórn Lögreglu-
félags Suðurlands óttast afleið-
ingar mikils niðurskurðar og
fækkunar lögreglumanna sem
boðuð er í umdæminu á næsta
ári. Þetta kemur fram í ályktun
frá stjórnarfundi á miðvikudag.
Fækka á lögreglumönnum á
vakt og getur það komið niður
á starfsöryggi lögreglumanna,
sem og öryggi íbúa og gesta
sýslunnar, segir í ályktuninni.
Fækkun lögreglumanna mun
óhjákvæmilega minnka þjón-
ustustig, sem er bagalegt þegar
innbrotum og öðrum verkefnum
fjölgar í kjölfar efnahagsþreng-
inga, segir þar enn fremur. - bj
Lögreglufélag Suðurlands:
Óttast fækkun
lögreglumanna
Er hægt að ráða við fjárþörf
þjóðarbúsins án þess að breyta
skattkerfinu?
Já 58,6%
Nei 41,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eru of mörg sveitarfélög á
höfuðborgarsvæðinu?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
KJÖRKASSINN